Verktækni - 01.08.1990, Blaðsíða 11

Verktækni - 01.08.1990, Blaðsíða 11
JfenM®áks]ílz3/-90- íslenska kortageröarfélagið Þann 7. febrúar 1990 var íslenska kortagerðarfélagið stofnað. Tildrög að stofnun félagsins voru þau að í sept- ember 1989 varhaldið námskeið íkorta- gerð sem Landmælingar Islands, Sjó- mælingar Islands og jarð- og land- fræðiskor Háskóla Islands gengust fyrir. Námskeiðið stóð í 5 daga og voru þátttakendur 30. Fyrirlesarar á nám- skeiðinu voru erlendir. Þeir Christer Palm kennari í kortagerð við tækni- háskólann í Stokkhólmi og John S. Keats prófessor við landfræðideild há- skólans í Glasgow. í lok námskeiðsins voru ræddar hugmyndir um stofnun félags þeirra sem vinna við kortagerð hér á landi og áhugafólks um íslenska kortagerð. Niðurstaðan varð sú að skip- uð var undirbúningsnefnd sem í sátu þeir Gylfi Már Guðbergsson prófessor jarð- og landfræðiskorHáskólalslands, Kristinn Helgason kortagerðarmaður Sjómælingum Islands og Svavar Berg Pálsson deildarstjóri Landmælingum íslands. Nefndin gerði tillögu að lögum fyrir félagið og undirbjó stofnfund. Fundarboð var sent yfir 50 aðilum, stofnunum og fyrirtækjum. Sem fyrr segir var stofnfundurinn 7. febrúar sl. Hann var haldinn í Odda húsi Félags- vísindastofnunar Háskólans og mættu um 60 manns. Kosin var stjóm og lög fyrir félagið samþykkt. I stjórn félags- ins voru kosin: Gylfi Már Guðbergsson formaður, Helgi Kristinsson varafor- maður (Verkfræðistofan Hnit hf.), Olafur Valsson gjaldkeri (Landmæl- ingar Islands), Arni Þór Vésteinsson ritari (Sjómælingar Islands) og Ester Sigurðardóttir meðstjórnandi (Islenskir aðalverktakar). Markmið félagsins eru m.a. að efla framþróun íslenskrar korta- gerðar, vinna að menntunarmálum kortagerðarmanna og efla samstarf þeirra. Félagið mun halda fræðslufundi og ráðstefnur um kortagerð á Islandi. Starfsmenn við kortagerð og áhuga- menn sem vilja taka þátt í starfi félags- ins geta gerst félagar. Stofnanir, félög, samtök og fyrirtæki geta orðið styrkt- arfélagar. Þeir sem vilja gerast félagar geta snúið sér til stjórnar eða sent inn- tökubeiðni í pósthólf 5108, 125 Reykjavík. Frá kynningarnefnd Nýkjörin stjórn VFI skipaði á fundi sínum þann 30. apríl sl. kynningar- nefnd félagsins fyrir næsta starfsár. Þessir voru skipaðir: Þorsteinn Þorsteinsson, formaður skipunartími 2 ár Árni Björn Jónasson, skipunartími 1 ár Árni Ámason, skipunartími 1 ár Gissur Pálsson, skipunartími 1 ár Daníel Helgason, skipunartími 2 ár Friðfinnur Skaftason, skipunartími 2 ár Samkvæmt lögum Verkfræðingafél- agsins er viðfangsefni kynningar- nefndar eftirfarandi: „Kynningarnefnd skal vinna að auknu áliti verkfrœði- legrar og vísindalegrar menntunar í landinu og auka skilning á starfi verk- frœðinga. Nefndin skal vinna reglulega að kynningu á málefnum félagsins gagnvart almenningi, stjórnvöldum og fjölmiðlum í samráði við stjórnir fél- agsins. Nefndin vinnur að hlutverki sínu með því að efna tilfunda og ráð- stefna eða með hverjum þeim hœtti, sem viðeigandi er hverju sinni. Kynn- ingarnefnd skal markaður ákveðinn hluti félagsgjalda til starfsemi sinnar. Fyrir lok hvers starfsárs skal kynning- arnefnd gefaframkvœmdastjóra skýrslu um starfsemi ásamt áœtlunum um verkefni ogfjárþörf nefndarinnar fyrir nœsta starfsár. “ Nefndin hefur haldið einn fund síðan hún var skipuð og lagt línurnar l'yrir starfið í vetur. Mun nefndin reyna að halda jafn öllugu starfi og fráfarandi nefnd og nt.a. halda áfram samloku- fundum sern tekist hafa með ágætum. Samlokufundirnir verða í hádeginu annan fimmtudag í hverjum ntánuði, september til apríl. Nefndin mun og standa fyrir fræðslufundum með svip- uðu sniði og verið hefur. Kappræðu- fundir verða og á dagskránni í vetur og einnig mun nefndin eiga aðild að ráð- stefnum á vegum félagsins. Þá verður reynt að þróa talsmannakerfi út frá hugmyndum frá því í fyrra. Nefndin þiggur öll góð ráð sem geta orðið til þess að ná fram markmiðum nefndarinnar eins og þau eru í lögum félagsins. Upplýsinga- og fræðslurit Eftirtalin upplýsinga- og fræðslurit eru fáanleg hjá Almannavörnum ríkisins, Laugavegi 118D, símar 25588, 82965, 26014, 685001. Þau eru ókeypis. AV-01 AV-02 J 1 Jarðskjálftavarnir (almenningsleiðbeiningar) AV-03 01 Um almannavarnir (fræðslurit fyrir almenning) AV-04 02 Hlutverk björgunar- og ruðningssveita í almannavörnum AV-05 03 Námskeið almannavarna, Kennslutækni AV-06 04 Árásar- og varnarvopn AV-07 05 Vörn gegn utanaðkomandi geislun AV-08 06 Hegðun eftir árás AV-09 07 Frumáætlun um skýlakönnun á íslandi 08 Evrópuloft á íslandi AV-10 09 ABC vabens virkninger, Vejledning i beskyttelse AV-11 af handelsskibe AV-12 10 Mælingar jarðhræringa og viöbrögö mannvirkja við jarðskjálftum AV-13 11 Flóðalda í Vík í Mýrdal vegna Kötluhlaups AV-14 12 Áætlun um búnað og fyrirkomulag stjórnstöðvar AVRlK AV-15 Almannavarna ríkisins ▲ Landsskjálfti á Suðurlandi Æfing - Brigh Eye '83 Snjóflóö - eðli, mat áhrif leit og björgun Æfing - Flug '84, Reykjavíkurflugvöllur Vettvangssjórn, skipulag, uppsetning og framkvæmd Notkun þyrlu viö neyðar- og björgunarþjónustu Atómvopn, eðli og áhrif Gasgrímur, leiðbeiningar um notkun Brottflutningur, æfing, Kjarni 4, Rangárvalla- og Skaftafellssýslur Stríðsgas Fjarskiptakerfi almannavarna Samkomulag um heildarskipulag hjálparliðs almannavarna Æfing - KEF '86 Earthquake in Mexico (einnig til á íslensku) Snjóflóð, viðbrögð viö hættuástandi 11

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.