Verktækni - 01.08.1990, Page 14
:¥©síka$ákiM^79a
t »^Vn HÍK ®
HÁSKÓLI TÆKNISKÓLI BANDALAG HIÐ ÍSLENSKA VERKFRÆÐINGA- TÆKNIFRÆDINGA-
ÍSLANDS ISLANDS HÁSKÓLAMANNA KENNARAFÉLAG FÉLAG ÍSLANDS FÉLAG ÍSLANDS
Námskeiö Endurmenntunarnefndar
á haustmisseri 1990
Frá árinu 1983 hefur Verkfræðingafélag íslands og Tækni-
fræðingafélag íslands starfaö með Háskóla íslands o.fl. að end-
urmenntun háskólamanna. Hafa formaður menntamálanefndar
VFÍ og fræðslunefndar TÍ jafnan setið í Endurmenntunarnefnd
HÍ, sem er yfirstjórn starfseminnar. Til aö auka enn tengslin við
starfandi verk- og tæknifræöinga hefur Sigrún Pálsdóttir verk-
fræðingur hjá Fjarhitun hf. tekið aö sér yfirumsjón með nám-
skeiöum fyrir þá. Nú síðla sumars þegar þetta er ritað liggur
ekki fyrir endanleg dagskrá haustmisseris. Hér á eftir fer lýsing
á námskeiðum sem verða í september, auk lista yfir námskeið
sem fyrírhuguð eru síðar á misserinu og er sá listi ekki tæmandi.
Þeir sem óska eftir aö fá sent yfirlit yfir námskeiðin geta haft
samband við skrifstofu Endurmenntunarnefndar.
Námskeiö á tæknisviði
TímabUið: september - byrjun október
Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda
(„Environmental Impact Assesment -EIA“)
Þátttakendur: Stjórnendur, skipuleggjendur og eftirlitsaðilar
framkvæmda, sem þurfa aö meta umhverfisleg áhrif tiltekinna
framkvæmda.
Markmið námskeiðsins er að kynna aðferðir við mat á umhverf-
islegum áhrifum framkvæmda. Sérstök áhersla er lögð á svo
nefnda EIA aðferð, sem er aðferð við að greina framkvæmdir
og afleiðingar þeirra fyrir umhverfið bæði manngert og náttúru-
legt. Tilgangur hennar er að fyrir liggi mat sem stjórnvöld geti
vísað til og byggt ákvarðanir sínar á. Þetta mat er þverfaglegt
og notað í flestum löndum heims þ.á.m. á þremur Noröurland-
anna og einnig erfyrirhugaö að nota hana í milliríkjasamningum
innan EBE.
Leiðbeinandi: James A. Roberts PhD. Hann er þekktur fyrir störf
sín á þessu sviði. Hann er landfræöingur og skipulagshönnuður,
sem um árabil hefur rekiö sjálfstæða ráðgjöf í heimalandi sínu
Bandaríkjunum og erlendis og unnið að fjölda umhverfisúttekta.
Undanfarið hefur hann unnið fyrir Skipulag ríkisins í Svíþjóð
(Boverket), þar sem hann hefur unnið tillögur um það hvernig
taka skuli upp mat á umhverfisáhrifum þegar á skiþulagsstigi
framkvæmda. Hann mun í september aðstoða yfirvöld skipu-
lagsmála á íslandi við svipaö verkefni. Honum til aðstoðar á
námskeiðinu veröur Jónas Elíasson prófessor.
Tími: 12.-14. september, kl. 9:00-16:00. verö kr. 12.000,-
Brunatæknileg áhættustjórnun
(„Risk management")
Þátttakendur: Ætlað arkitektum, verk- og tæknifræöingum,
tæknimönnum tryggingarfélaga og slökkviliða og öðrum sem
fjalla um og taka ákvarðanir um brunavarnir bygginga s.s. eig-
endum og forráöamönnum stórfyrirtækja.
Efni: Með brunatæknileg áhættustjórnun er átt við þaö þegar
stjórnendur fyrirtækja láta meta brunaáhættu fyrirtækisins út frá
þeim varnaðarráöstöfunum sem tiltækar eru. Metin er hag-
kvæmni ráðstafananna fyrir fyrirtækið. Áhættumatið er yfirleitt
unnið í samvinnu viö tæknimenn s.s. arkitekta, verkfræðinga
eða tæknifræöinga og er námskeiðið ætlaö þessum aöiljum.
Gert er ráð fyrir að þeir hafi eitthvað unnið viö brunamál áður.
Meðal efnis verður: Brunafræði. Val á brunavörnum út frá
áhættu- og kostnaöargreiningu (brandteknisk risikovurdering)
fyrir mismunandi byggingar og starfsemi. Kostir og gallar mis-
munandi lausna. Reynsla af notkun vatnsúða (sprinkler), viðvör-
unar- og reyklosunarkerfum er varðar aukið öryggi gegn eldi.
Lýsing á viðhaldi þeirra, rekstrarkostnaði og prófunum. Kynnt
tölvureiknilíkön fyrir þróun elds í byggingum.
Leiðbeinendur: Fyrirlesarar verða frá Dansk Brandsværns
Komité og fara fyrirlestrarnir fram á ensku.
Umsjón: Guðmundur Gunnarsson, verkfræðingur hjá Bruna-
málastofnun.
Tími: 27.-28. september. Verð kr. 17.500.-.
Hönnun glerbygginga
Þátttakendur: Allir hönnuðir bygginga; arkitektar, tæknifræð-
ingar, verkfræðingar og umsjónaraðilar glerbygginga.
Markmið: Reyna að sýna hvaö hægt er að gera með gler-
byggingum í dag; hvað þarf að varast og hvaða kröfur þarf að
gera til slíkra bygginga á norðurslóðum.
Efni: Fjallað verður um arkitektúr glerbygginga og sýnt dæmi
um slíkar byggingar. Um leið veröur þróunarsaga glerbygginga
rakin. Sagt veröur frá glerbyggingum hérlendis sem og er-
lendis. Þá verður fjallaö ítarlega um kröfur sem gera þarf til
glerbygginga bæði hvaö varðar ýmsan frágang en einnig inni
„klíma“. Stuðst veröur við reynslu og tilraunir norskra aðila en
einnig veröur dreþiö á nokkur atriði er varöa glerbyggingar hér-
lendis. Þá verða kynntar lausnir frá tveimur stórum framleiðend-
um, Schuco og Gluggasmiðjunni, sem selja efni og lausnir fyrir
glerbyggingar og fleira. Samhliða námskeiöinu verður sýning á
vörum þessara tveggja aðila.
Tími: 20. september.
Frá byggingarverkfræðiskor: löustraumfræöi
Verkfræöideild býður nemendum á 3. og 4. ári upp á ýmis sér-
námskeið sem hugsuð eru sem undirstaöa sérhæfingar við-
komandi nemenda. Þessi námskeið eiga erindi til starfandi
verkfræöinga og sérfræðinga með tilsvarandi sérfræðilega og
eölisfræðilega grunnmenntun sem vilja sérhæfa sig á viðkom-
andi sviði.
Þátttakendur: Nauösynleg undirstaða: 08.41.31 Straumfræði I,
eða hliðstæöa.
Efni: Iðustraumfræöin er grundvöllur að útreikningum á útbreiðslu
mengunar í lofti og vatni. Hún lýsir hvernig tregða, hiti og
íblöndunarefni breiðast út í iðustraumi og hvernig nálgunar-
aðferðum er beitt til að fá verkfræöilegt mat á útbreiðslunni
þegar grunnlíkingarnar eru stærðfræðilega óleysanlegar. Komið
er inná eiginleika iöustrauma, blöndun í andrúmsloftinu (loft-
mengun), blöndun straumgeisla (frá skrúfum og dælum) og
blöndun með hitauppstreymi (skorsteinar og skólpútrásir).
Tími: Námskeiðið verður meö málstofusniði. Hópurinn hittist
einu sinni í viku kl. 15-18 í 10 vikur frá og meö 39. viku. Tímarnir
veröa á föstum vikudegi sem verður auglýstur þegar stunda-
skrá Verkfræðideildar liggur fyrir. Nemendur undirbúa sig fyrir
hvern tíma samkvæmt skipulagi sem kynnt veröur þegar þátt-
taka er Ijós og halda fyrirlestur um efni sitt fyrir hóþinn. Hver
nemandi velur tvær tilraunir sem gerðar verða í tilraunastofu.
Verö: Þátttökugjald verður kr. 5.000.-. Skráning til 15. seþt.
Teiknikerfi - Autocad, grunnnámskeiö
Markmið: Auka hæfni til að velja vélbúnað fyrir tölvuvædda
hönnun. Gera þátttakendur færa um aö nota Autocad sem
teiknikerfi. Auka skilning á kostum og ókostum teiknikerfa.
Efni: Tölvuvædd hönnun : Vélbúnaöur. Hugbúnaður. Teikniað-
ferðir. Hönnunarkerfi. Autocad verkefni : Uppsetning. Teikni-
aðgerðir. Breytingar. Málsetning. Skástrikun. Blokkavinnsla.
Leiðbeinendur: Magnús Þór Jónsson, dósent HÍ. Gunnar Kjart-
ansson, verkfræðingur íslenska járnblendifélaginu..
Tími: 8.-10. október, 9:00 - 17:00.
Hönnunarkerfi - Autocad, framhaldsnámskeiö
Markmið: Stuðla aö réttu vali á hugbúnaði fyrir tölvuvædda
hönnun. Auka skilning á uppbyggingu tölvuvæddra hönnunar-
kerfa. Auka færni til að nota Autocad sem hönnunarkerfi.
Efni: Tölvuvædd hönnun: Hönnunarkerfi. Gagnaskipan. Gagna-
grunnar. Grafísk framsetning. Greining. Framleiðsla.
Autocad verkefni: Setja upp valmyndir. Autolisp -teikniaögeröir,
-listavinnsla, -gagnagrunnur, -reikniaögerðir.
Leiöbeinendur: Magnús Þór Jónsson dósent HÍ, Gunnar Kjart-
ansson verkfræðingur íslenska járnblendifélaginu, Jónas G.
14