Til sjávar - 01.04.1999, Síða 3
Rekstur Siglingastofnunar 1998
Velta Siglingastofnunar um 422 m.kr.
Velta Siglingastofnunar
1998 nam 422 m.kr.
Þar af voru sértekjur stofn-
unarinnar 123 m.kr. Framlag
á fjárlögum nam 296 m.kr.
sem skiptist i 131 m.kr. sem voru
fjármagnaðar af mörkuðum tekjustofnum
(vitagjald 72 m.kr. og skipagjald 59 m.kr.)
og 165 m.kr. sem voru fjármagnaðar af
ríkissjóði. Loks var um 3 m.kr. af
höfuðstól stofnunarinnar ráðstafað til
rekstrarins, einkum til afmarkaðra
verkefna.
Hér að neðan má sjá nánari sundurliðun
rekstrarins eftir verkefnum.
Rekstrarreikningur 1998
Almcnnir Affjár- Tekjur
Tekjur* viðskiptam. lögum Samtals
Ýmsar tekjur, bókhaldsþjónusta, þóknun, vaxtatekjur ofl. 14 . 14
Vitar og leiðsögukerfi, rekstur og stofnkostnaður 12 110 122
Rannsóknir - 39 39
Yfirumsjón og umsjón með framkvæmdum 51 - 51
Áætlanir og hagrænar athugamir 14 14
Upplýsingamiðlun 1 5 6
Stjómvaldsverkefni - 17 17
Erlend samskipti - 9 9
Skipaverkefni 8 25 33
Skoðunarsvíð 29 77 106
Véla- og tækjaleiga 7 - 7
Hafnabótasjóður 1 - 1
Tekjur samtals 123 296 419
Af höfuðstól - - 3
Alls 422
Gjöld* Gjöld
Launakostnaður 247
Önnur gjöld 146
Stofnkostnaður - vitar 19
Annar stofnkostnaður 10
Gjöld samtals 422
* Allar tölur í milljónum króna
Úthlutun Hafnabótasjóðs á móti fjárveitingu 1999
Höfn Styrkheimild Lánv.heimild
Grundarfjörður 5.250 5.250
Stykkishólmur 2.400 2.350
Vesturbyggð 150 0
Tálknafjörður 0 600
Isafjarðarbær 21.800 6.650
Drangsnes 2.400 0
Hólmavík 1.850 1.800
Hafnasamlag Eyjafjarðar 14.550 10.000
Grímsey 200 0
Hafnasamlag Norðurlands 0 22.600
Húsavík 2.150 0
Kópasker 0 450
Bakkafjörður 100 0
Vopnafjörður 6.050 0
Stöðvarfjörður 1.000 600
Breiðdalsvík 200 0
Höfn í Hornafirði 0 16.400
Vestmannaeyjar 0 9.850
Grindavík 0 700
Sandgerði 5.450 0
Samtals 63.550 77.250
Allar (járhæöir eru í þúsundum króna.
Ath! Fjárlaganefnd Alþingis hefur komið þeirri skoðun á framfæri við Hafnabótasjóð að ekki yrðu
veittir styrkir nema að formleg umsókn lægi fyrir frá viðkomandi hafnarsjóði. Forsvarsmenn
hafnarsjóða þurfa að taka tillit til þess við undirbúning framkvæmda ársins 2000.
Stuttar fréttir
Sjóvarnaáætlun 2000-2003
Samkvæmt nýlegri skýrslu Siglinga-
stofnunar um sjóvamir þarf um 340 m.kr.
til að ljúka fyrirliggjandi verkefnum.
Stofnunin hefur gert tillögu um að gerð
verði áætlun til fjögurra ára fyrir
sjóvarnir, árin 2000-2003, og að hún
verði tilbúin fyrir næsta haust.
Umsókn um fulla aðild
Fyrir hönd íslands hefur Siglingastofnun
sótt um fulla aðild að Parisarsamkomu-
laginu um hafnarríkiseftirlit. Umsóknin
verður tekin fyrir í maí nk. og ef hún
uppfyllir skilyrði samkomulagsins mun
aðild íslands öðlast fullt gildi um mitt ár
2000.
Ný skýrsla
Siglingastofnun hefur gefíð út skýrslu um
fyrirhugaðar framkvæmdir í Vopna-
ijarðarhöfn og niðurstöður líkantilrauna í
því sambandi. Höfundar skýrslunnar eru
þau Sigurður Sigurðarson, Baldur
Bjartmarsson og Ingunn Erna Jónsdóttir.
Skýrslan er númer 5 í skýrsluröð
Siglingastofnunar.
Nýir starfsmcnn
Nokkrir nýir starfsmenn hafa gengið til
liðs við Siglingastofnun sl. mánuði. I
desember kom Steingrímur Hauksson,
vélaverkfræðingur, til starfa á skoðunar-
sviði. I janúar sl. kom Sigurður Jónsson,
skipstjóri, einnig til starfa á skoðunar-
sviði. í sama mánuði kom Ómar
Kristmannsson, skipstjóri, til starfa á
vitasviði. Hafnasviði bættist liðsauki í
febrúar þegar Guðmundur Jónasson,
byggingaverkfræðingur, hóf störf hjá
stofnuninni. Loks hóf Svava Kristins-
dóttir störf á skrifstofusviði í mars.
Handbók lyfjakistu skipa
1 janúar sl. leit dagsins ljós ný útgáfa af
handbók lyfjakistu skipa sem gefm er út
skv. reglugerð nr. 365/1998 um heil-
brigðisþjónustu, lyf og læknisáhöld um
borð í íslenskum skipum. Um tvenns
konar útgáfu er að ræða. Annars vegar
fyrir báta undir 15 m og hins vegar fyrir
skip stærri en 15 m. Vakin er athygli
útgerða á því að verða sér úti um þessa
nýju útgáfu hafi þær ekki gert það nú
þegar. Handbókina er hægt að fá af-
greidda í lyfjabúðum um allt land.
3