Til sjávar - 01.04.1999, Page 7
Kynning á starfsmönnum
Fjölbreytt flóra starfsmanna Siglingastofnunar
á því að Til sjávar hóf göngu sína í september
i 1997 hafa starfsmenn stofnunarinnar verið
kynntir jöfnum hönclum i fréttabréfinu. t þessu
tölublaði eru nokkrir starfsmenn til viðbótar
kynntir til sögunnar. í ársbyrjun 1999 störfuðu 83
starfsmenn hjá Siglingastofnun. Flestir starfa i
höfuðstöðvum stofnunarinnar í Kópavogi en einnig
eru starfandi skoðunarmenn í umdœmum um allt
land sem og starfsmenn í vitaþjónustu.
Birgir Tómas Arnar,
tæknifræóingur á haf-
nasviði. Fæddur 29.
desember 1965 í Reyk-
javík. Stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum í Breið-
holti 1987. Lauk BSc
prófi i byggingatæknifræði frá Tækniskóla íslands
1992. Starfaði hjá Byggingarfulltrúanum í
Reykjavík frá 1994 til 1997. Kom til starfa hjá
Siglingastofnun 1. febrúar 1997. Kona Birgis er
Guðrún Þóra Garðarsdóttir, verkfræðingur, og eiga
þau tvo syni.
Guðmundur Jónasson,
verkfræðingur á hafna-
sviði. Hann er fæddur í
Reykjavík ll.júlí 1960.
Guðmundur lauk bygg-
ingaverkfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1984 og
MSc prófi í verkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn
1986. Hann starfaði áður á VSB Verkfræðistofii í
Hafnarfirði en kom til starfa hjá Siglingastofnun i
febrúar 1999. Guðmundur er kvæntur Hönnu
Ingibjörgu Birgisdóttur, svæfingahjúkrunarfræð-
ingi, og eiga þau tvo syni.
Rannveig Sveinbjörns-
dóttir, tækniteiknari á
hafnasviði. Fædd í
Reykjavík 20. september
1952. Hún lauk námi í
tækniteiknun frá Iðn-
skólanum í Reykjavík.
Hóf störf hjá Vita- og Hafnamálastofnun, 1981.
Rannveig er gift Páli Valdimarssyni, rafveituvirkja,
og eiga þau eitt bam.
Ingunn Erna Jóns-
dóttir, verkfræðingur á
hafnasviði. Hún er fædd
1. september 1962. Ing-
unn lauk byggingaverk-
fræðiprófí frá Háskóla
íslands 1987 og MSCE
prófi frá University of Washington 1989. Hún kom
til starfa hjá Vita- og Hafnamálastofnun 1990.
Ingunn er gift Jónasi Þór Snæbjörnssyni, verk-
fræðingi, og eiga þau tvö böm.
Sigurður Sigurðarson,
verkfræðingur á hafna-
sviði. Hann er fæddur
þann 12. júlí 1956 í
Reykjavík. Sigurður lauk
prófi í byggingaverk-
fræði frá Háskóla íslands
1980 og meistaraprófi frá DTH í Kaupmannahöfn
1982. Vann sem verkfræðingur hjá Asbjörn
Habberstad A/S við Odense Stálskipsværft í
Danmörku 1982-1984. Kom til starfa hjá Vita- og
Hafnamálastofnun 1984. Sigurður er kvæntur
Hrönn Sævarsdóttur, innanhússarkitekt, og eiga þau
þrjú böm.
Aðalheiður Þóra
Sigurðardóttir, starfs-
maður í bókhaldi á
skrifstofusviði. Fædd í
Keflavík 4. nóvember
1953. Þóra er gagn-
fræðingur frá Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur 1970 og stundaði nám i
öldungadeild Flensborgarskóla í stærðfræði og
tölvu 1997-1998. Vann áður skrifstofustörf hjá
Rafveitu Keflavíkur, Nóa-Siríusi, Nýborg og
Vogabæ. Þóra kom til starfa hjá Siglingastofnun
1. nóvember 1998. Eiginmaður Þóru hét Ingibert
Pétursson og eignuðust þau þrjár dætur.
Jóhanna Stefánsdóttir, viðskiptafræðingur á
skrifstofusviði. Fædd á Hofsósi 28. janúar 1963.
Stúdent frá Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki
1983. Viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1989.
Kom fyrst til starfa á Vita- og Hafnamálastofnun
1983. Vann hjá Rannsóknadeild ríkisskattstjóra
1989 en kom svo aftur til
starfa hjá Vita- og Hafna-
málastofnun í nóvember
1989. Jóhanna er gift
Þorvaldi S. Þorvaldssyni,
matreiðslumanni, og eiga
þau tvo syni.
Grínia Sóley Gríms-
dóttir, starfsmaður i
nióttöku, skrifstofu-
sviði. Fædd í Reykjavík
9. júní 1974. Stúdent úr
Kvennaskólanum í
Reykjavík 1994. Hóf
störf hjá Vita- og Hafnamálastofnun í nóvember
1994. Gríma er í sambúð með Róberti Frey
Kolbeins, þrívíddarhönnuði, og eiga þau eina dót-
tur.
Guðjón Scheving Trygg-
vason, verkfræðingur á
vitasviði. Fæddur 7.
október 1951 í Vest-
mannaeyjum. Guðjón
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akur-
eyri 1971 og prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla
íslands 1976. Hóf störf hjá Vita- og Hafna-
málastofnun 1976. Guðjón er kvæntur Sigrúnu
Stefánsdóttur, meinatækni, og eiga þau þrjú böm.
Hlvnur Skúli Auð-
unsson, lögfræðingur á
skipasviði. Fæddur í
Reykjavik 23. mars 1969.
Stúdent frá Burford
School & Community
College, Oxford, Eng-
landi. Útskrifaðist úr lagadeild Háskóla íslands
1995. Aður en Hlynur Skúli kom til starfa hjá
Siglingastofnun í ágúst 1998 starfaði hann sem
verkefnisstjóri yfir fjármagnstekjuskatti hjá
embætti Ríkisskattstjóra.
Meðal efnis í næsta blaði
maí / júní 1999
• Nýtt evrópskt GPS kerfi?
• Tilskipun ESB um öryggi fiskiskipa
7