Til sjávar - 01.08.1999, Blaðsíða 1
r
1
Lagt úr höfn
2
Þormóðssker
3
Einar skip-
herra í spjalli
4
„Breiðafjarð-
arblíðan"
5
Siglt um
Vestfirði
6
Leiðarlok
7
Unnið að
viðhaldi
3. tbl. 3. árg. ágúst 1999 F r é tta b r é f Siglingastofnuna
Eftirlit með vitum og baujum
Afskekktir vitar undir eftirliti
- frásögn af vitaferð sumarið 1999
Selskersviti í Húnaflóa
Það fer ekki alltaf mikið fyrir
umfjöllun um vita og starfseminni
í kringum þú hin síðari ár. Þessi
starfsemi er umfangsmeiri en
margan grunar. Til sjávar slóst í
för með rafvirkjum Siglinga-
stofnunar á varðskipinu Oðni í
sumar og varð margs vísari.
ann 21. júní 1999 var lagt
upp í árlega ferð til að
sinna eftirliti með baujum
og vitum á afskekktum stöðum,
eyjum og skerjum. Varðskipið
Oðinn var leigt til verksins. I
áhöfn voru alls 27, þar af 18 frá
Landhelgisgæslunni, 6 nemendur
á grunnskólaaldri í starfskynningu
auk þriggja starfsmanna Siglinga-
stofnunar, rafvirkjanna Guðmund-
ar Bernódussonar og Sigurjóns
Eiríkssonar og undirritaðs. Skip-
herra var Einar Heiðar Valsson.
Undirbúningur
21. júní: Á bak við ferð sem þessa
er mikill undirbúningur sem
Guðmundur og Sigurjón hafa
annast. Guðmundur hefur farið
slíkar ferðir á hverju ári sl. 8 ár en
Sigurjón var að fara í þriðja sinn.
Vinnan í hverjum vita fyrir sig er
þaulskipulögð en alls á að fara í
um 40 vita. Þeir hafa tekið saman
búnað sem þarf vegna eftirlits
og/eða breytinga, merkt, raðað á
bretti, sett í töskur og aðrar
hirslur. Engu má gleyma þvf ekki
er hlaupið að því að útvega aðföng
þegar út á sjó er komið. Auk
fjölda rafgeyma, rafhlaðna,
sólarspegla, verk-
færa og annars
búnaðar voru
tvær baujur til-
búnar til útskip-
unar. Önnur
þeirra var hin
svokallaða E1
Grillo bauju sem
átti að koma
fyrir á Seyðis-
firði. Hún á að
vara sjófarendur
við flaki sam-
nefnds olíu-
birgðaskips
sem sökkt var á
Seyðisfirði í feb-
rúar 1944 og
komst nýlega í
fréttirnar vegna
olíuleka.
Undirbúning-
ur undirritaðs
fólst aðallega í því að útvega
sjóveikispillur en reynsla mín af
sjóferðum var afar takmörkuð
fyrir þessa ferð. Verkfæri mín í
ferðinni voru: Myndavél, mynd-
bandsupptökuvél, diktafónn,
bækur, blöð og pennar.
Stefnan tekin á Þormóðssker
Það var svo kl. 20, átta klukku-
stundum seinna en áætlað var
vegna lítilsháttar vélarbilunar, að
lagt var af stað frá Reykjavík-
urhöfn með varðskipinu Oðni í
ágætu veðri. Sigurjón rafvirki
hafði ráðlagt mér að sleppa því að
taka inn sjóveikispilluna til að
byrja með þar eð við yrðum
komnir í Þormóðssker tveimur
klukkustundum eftir brottför.
„Pillan gerir þig sljóan og óhæfan
til vinnu“, sagði Sigurjón. Eg
féllst á þessa röksemd.
Stefnan var svo tekin á Þor-
móðssker við Mýrar sem var fyrsti
viðkomustaðurinn af um 40 vitum
og nokkrum baujum. Veðurspáin
var ekki góð. Gert var ráð fyrir
slæmu veðri um nóttina í
Faxaflóanum. Einar skipherra
taldi því best að ljúka verkefninu
strax í Þormóðsskeri.
Sjá framhald bls. 2 og 4-6
Sérblað um vitaleiðangur og vitastarfsemina
Þetta tölublað er óvenjulegt að því leyti að það fjallar varðskipinu Oðni. Einar Valsson skipherra á Oðni er
eingöngu um eitt efni: Vitamál. Meginefni blaðsins er tekinn í stutt spjall. Ýmsum fróðleik um vitastarfsem-
umfjöllun um ferð rafvirkja stofnunarinnar með ina er safnað saman og öðrum verkefnum á vitasviði.