Til sjávar - 01.09.1999, Blaðsíða 4
Ráðgjafarstörf erlendis
Brimvarnargarður hannaður fyrir Norðmenn
- E. Phil & S0n / ístak átti lægsta tilboð
Sumarið 1998 komu
fulltúar frá Kystverket
í Noregi í heimsókn til
Siglingastofnunar (SÍ) til
að kynna sér gerð brimvarnargarða,
einkum bermigarða.
í framhaldi af þessari ferð var ákveðið
að Siglingastofnun tæki að sér hönnun og
ölduhæðarrannsóknir á nýjum bermigarði
á suðvesturströnd Noregs.
Leiöandi aðili í heiminum
Astæða þess að leitað var til Siglinga-
stofnunar er sú reynsla sem hún býr yfir
við hönnun bermigarða en Norðmenn
telja Siglingastofnun vera leiðandi aðila á
heimsvísu á þessu sviði. Yfir 20 slíkir
garðar hafa verið hannaðir og byggðir hér
á landi frá 1983 og er það um helmingur
þeirra bermigarða sem hafa verið byggðir
í veröldinni.
Aðrir aðilar sem koma að verkefhinu
eru: Háskólinn í Þrándheimi, SINTEF,
sem annaðist líkantilraunir af Sirevág-
höfn, ráðgjafarfyrirtækið Norconsult, sem
annaðist útboðsgögn, og Jarðfræðistofan
Stapi sem vann að grjótnámsrann-
sóknum. Fyrir hönd Siglingastofnunar
hafa verkfræðingarnir Gísli Viggósson,
Sigurður Sigurðarson og Ingunn Jóns-
dóttir unnið að verkinu.
í febrúar sl. var gerður ramma-
samningur milli Siglingastofnunar og
Kystverket um að SI veiti ráðgjöf varð-
andi hafnaáætlanir og hafnaframkvæmdir,
bermigarða og aðrar framkvæmdir við
hafnir og strendur.
Bermigarðurinn verður staðsettur fyrir
utan lítið fiskiþorp, Sirevág, sunnan við
Stavanger. Höfnin er mjög opin fyrir
vestlægum vindum og öldu úr Norður-
sjónum.
Samkvæmt niðurstöðum ölduhæðar-
reikninga SÍ og öldumælinga síðastliðinn
vetur miðast hönnunarálag við 7 m
kenniöldu. Til að hægt sé að byggja
bermigarð sem uppfyllir kröfur SI til
stöðugleika þarf stórgrýtið í ystu kápu að
vera milli 20 til 30 tonn. Það þýðir að
beita þarf stærstu jarðvinnutækjum sem
völ er á.
Hönnun berrnigarðs ræðst að verulegu
leyti af gæðum stórgrýtis og möguleikum
á að fá stórar blokkir úr grjótnámum.
Jarðfræðistofan Stapi var fengin til að
kanna hvort hægt væri að finna stórgrýti
sem uppfyllti kröfur SI. Boraðar voru
kjarnaholur víðs vegar um klappirnar.
Niðurstöður rannsókna Stapa á námum
var að hægt er að fá nægjanlegt magn af
stórgrýti sem uppfyllir gæðakröfur. Til að
vinna allt efnið þarf að opna námu við
bermigarðinn, aðra sem er gegnt
garðinum og þá þriðju sem er í um 2ja km
fjarlægð. Mikinn hluta af efninu þarf að
flytja sjóleiðis.
Þrisvar sinnum stærri en í Bolungarvík
Siglingastofnun hefur skilað skýrslu um
öldurannsóknir og aðra um hönnun og
verklýsingu fyrir bermigarðinn.
Við hönnun garðsins er leitast við að
hafa hann eins stöðugan og kostur er. Það
er gert með því að hafa stærsta grjótið þar
sem áraunin er mest. Þannig nær stærsta
grjótið 20 - 30 tonn niður á 1 m dýpi.
Araunin minnkar eftir því sem neðar
dregur og nær 10-20 tonna grjót frá 1 m
dýpi niður á 7 m dýpi. Frá 7 til 12 m dýpi
er 4 - 10 tonna grjót. Undir stórgrýtinu er
1 - 4 tonna grjót.
I garðinn fara um 640.000 rúmmetrar
af sprengdu efni, þar af helmingur
stórgrýti yfir 1 tonn. Til samanburðar fóru
200.000 rúmmetrar í brimvamargarðinn í
Bolungarvík. Garðurinn verður 500 m
langur og verður að hluta til byggður á
klöpp með breytilegu dýpi (3-22 m) en
garðendinn á sandbotni með 18 m dýpi.
Fulltrúar frá Kystverket og ráðgjafar-
fyrirtækinu Norconsult voru í heimsókn
hér á landi í september og kynntu sér m.a.
bermigarða í Helguvík, Keflavík, Bol-
ungarvík og á Homafirði.
Niðurstöður útboðs
Áður en verkið var boðið út var viðhaft
forval. Sex verktökum var boðið að bjóða
í verkið, fjórum norskum (AF Spesial-
prosjekt, NCC Eeg-Henriksen, Selmer og
Veidekke) og Suðurverki og E. Phil &
Son/Istaki. Tveir síðastnefndu verktakar-
nir hafa mikla reynslu á þessu sviði.
Tilboð í verkið voru opnuð 22. sept-
ember 1999. Engin kostnaðaráætlun lá
fyrir. Fyrirtækið E. Phil & Son / ístak
bauð lægst eða 678 milljónir króna. Sjá
nánar töflu á bls. 6.
Gert er ráð fyrir að vinna við verkið
hefjist i desember nk. og eigi að ljúka í
desember 2001.
Siglingastofnun og Jarðfræðistofan
Stapi munu aðstoða við eftirlit með
framkvæmdunum með reglulegum
heimsóknum meðan á framkvæmdum
stendur.
Tölvulíkan af fyrirhuguðum brimvarnargarði í Noregi
4