Foringinn - 01.11.1964, Side 12

Foringinn - 01.11.1964, Side 12
Nú skulum við athuga þetta þrennt betur: Vera fyrirmynd annarra. Með margra ára striti og erfiði hef- ur skátahreyfingin reist sér glæsilegan minnisvarða um allan heim. Þennan minnisvarða hefur hreyfingin reist sér og fengið orð á sig fyrir hversu upp- byggjandi og góð hún er. Við verðum að varast að láta nokkurn skugga falla á þennan minnisvarða eða grafa undan honum hér í bæ. Er ekki takmark okkar að fá fleiri og fleiri í þennan hóp, en — hvað getur fólk haldið um þessa starfsemi ef hún er kynnt á ein- hvem villimennskuhátt eins og svo oft brennur við nú á meðal okkar. Ef við grandskoðum ekki háttalag okkar, hið daglega háttalag, þá er voðinn vís. Við munum aldrei fá unglinga til þess að verða skáta, veru- lega góða skáta, ef við, sem fyrir er- um, högum okkur alveg eins og vit- laus. Skáti á að vera fyrirmynd í öllum háttum, ekki aðeins einum, — heldur öllum. Eigum við að verða til þess að rífa niður minnisvarða skátahreyfing- arinnar, rífa niður verk Baden-Po- wells — eigum við að eyðileggja þetta göfuga félag, sem við erum félagar í? Ég persónulega segi nei, og vona að þið séuð mér sammála, sameinumst öll undir skátaminnisvarðanum, vinn- um öll að stækkun hans og eflingu, — eflum skátastarfsemina hér í bænum og í landinu. Breytum eins og sannir skátar, breytum eins og allir sannir menn ættu að breyta. Að vera sannur skáti er erfitt, en það má takast ef hugur fylgir máli, og við verðum að gera eitthvað stór- kostlegt til þess að sigrast á leti okk- ar og aðgerðaleysi. Gefum engum færi á að segja um okkur og okkar starf- semi: Þetta félag nefnir sig skátafé- lag, en hvað eru þeir? EKKERT. Að- eins unglingar, sem nota þetta göfuga nafn SKÁTI, til þess að láta taka eftir sér, þykjast vera miklir, en þreyta ekki eins og til er ætlast af þeim. Að gera eitt góðverk á dag. Við kunnum öll skátalögin og skáta- heitið. Sjötta grein skátalaganna hljóð- ar þannig: Skáti er þarfur öllum og hjálp- samur. Þetta er eitt höfuðtakmark skáta- hreyfingarinnar, og við sjáum gildi og mikilvægi þessarar greinar á því, að í skátaheitinu stendur: Ég lofa ... að hjálpa öðrum. Því í ósköpunum þurfti að klína þessu í skátaheitið, því rétt á eftir stendur: Ég lofa ... að halda skátalögin. Hvað sýnir þetta okkur? Þetta sýnir einungis það, að Baden- Powell hefur talið þetta vera eitt mesta atriðið í starfseminni. Góður skáti gerir eitt góðverk á dag, og þetta hefur verið brýnt mjög fyrir okkur. Ef vildi svo vel til einn daginn að þú gerðir sjö góðverk, þá hefur þú ekki unnið af þér hina sex dagana, því þú átt að gera eitt góð- verk á dag. Það hefur verið sagt að sá, sem hjálpar þeim, sem hjálparþurfi er, sé vinsæll og eigi marga og góða vini. Við teljum okkur öll vera kristin, er ekki svo? Eitt mikilvægasta atriði kristindóms- ins er að finna í sjöunda kapítula 12 FORINGINN

x

Foringinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.