Foringinn - 01.12.1972, Side 10
Eins og undanfarin ár hefur Bandalaginu verið boöiö aö senda
þátttakendur á mörg mót og námskeiö erlendis sumariö 1973.
Hefur stjórn B.X.S. ákveðié aö standa fyrir ferð á eftir-
talin mót, ef næg þátttaka fæst:
1. U.S.A. - ALASKA - STÚLKUR.
Eins og undanfarin ár hefur tveimur st'úikum verié boöiö
aö taka þatt í kynnisferð um Bandaríkin í júní og júlímánuöi
og dvelja á heimilum skáta.
Munu stúlkurnar m.a. fara til Alaska og feröast þar um og
koma viö í Ankorage, Toikeetna, Mt.Mc.Kinley, National Park,
Hope og Eklutna.
Stúlkurnar þurfa aö vera 15-18 ára, geta talað ensku og
hafa góöa reynslu í útilegustörfum.
Öll fargjöld og uppihald innan U.S.A. og fargjaldiö frá
U.S.A. til lslands er greitt af amerísku kvenskltunum. Far-
gjaldið ísland - U.S.A. kostar ca.ísl.kr.15.000.oo.
Umsóknir veröa aé hafa borizt skrifstofu B.X.S. fyrir
10.febrúar.
2. HOLLAND - SJÓSKATAMÖT FYRIR DRENGI OG STÚLKUR.
Boéiö er til alþjóðlegs sjóskátamóts, sem haldið verður
dagana 22.júlí til 27.júlí í Monnekendam í Hollandi. Þátt-
takendur eiga aö vera á aldrinum 16 til 22 ára. Meðal dag-
skrárliða veröa siglingar, skoðunarferðir o.fl.
Mótsgjald er ca. ísl.kr. 2000.oo. Fargjald frá Islandi
til Amsterdam og heim aftur kostar ca. ísl.kr. 20.000.oo.
Umsóknir veröa að hafa borizt skrifstofu B.I.S. fyrir
15.apríl.
3. ENGLAND - WALES - DRENGIR - STÚLKUR■
íslenzkum skátum er boöiö aö sækja mót í Wales í Englandi
dagana 31.júlí til ll.ágúst. Mótiö veröur haldié í nágrenni
Penrhyn kastala, nálægt Bangor í Caernarvonshire. Á þessum
staö er góö aðstaöa til margs konar útileikja og má þar
nefna siglingar og bátsferöir ( mótssvæöiö er nllægt sjó) og
fjallgöngur.
Þátttakendur eiga aö vera á aldrinum 14 - 22 ára. Sár-
stakar búöir og dagskrá veröa fyrir eldri skáta.
Fargjaldið frá Reykjavík og á mótsstað og til baka er.
ca. ísl.kr.15.000.oo.
Umsóknir veröa aé hafa borizt skrifstofu B.Í.S. fyrir
15.april.
4. U.S.A. - DREN6IR.
Drengjaskátum á aldrinum 21 til 35 ára er boöið aö taka
þátt í alþjóðlegri sumarbúöadagskrá, sem amerískir skátar
bjóöa til. Er skátunum boðið aö vinna I sumarbúéum í U.S.A.
í 6-8 vikur, en fyrir það fá þeir laun. Þá er skátunum einnig
gefinn kostur á aö feröast um hluta Bandaríkjanna og er- sú
ferð í tengslum viö sumarbúðadagskrána. Skátarnir veréa aö
geta talað og skiliö ensku.
Þátttakendur veröa að greiöa fargjaldiö Reykjavík - New-
York - Reykjavík, en það kostar ca.ísl.kr.30.000.oo.
Umsóknarfrestur er til l.marz.