Bændablaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 7. júní 1995 Bœndablaðið 5 Laniúnaður í Sviðið Hugtakið "græna byltingin" hefur fengið nýja og allt aðra merkingu, hér í Danmörku eins og raunar í fleiri löndum. Umhverfis- og dýra- vemd em lykilhugtök í landbúnað- ammræðunni. Lausagöngufjós, svínarækt utan dyra, "frjálsar hæn- ur", útskolun næringarefna frá ökmm, orkunotkun/orkuræktun og notkun plöntuvamarefna em nokk- ur dæmi um viðfangsefni stórra rannsóknaverkefna sem unnið er að víðs vegar um landið. I seinni pistlum kem ég til með að fjalla nánar um sum þessara efna en hér ætla ég að reyna að varpa daufu ljósi á stöðu mála, benda á mögu- legar ástæður þessarar þróunar, sem sumir þrjóskast við að kalla tískusveiflu. Okologi Orð sem erfitt er að snara. Mér skilst að fyrirbærið kallist "líf- rænt". Getið þið ekki reynt að finna annað orð? Mig hryllir við að koma heim og þurfa að drekka ólífræna mjólk. Ég hef vanið mig á að segja vistbær og ætla ekki að láta af því fyrr en farið verður að snúa upp á hendumar á mér eða neyða mig til að horfa á Hvíta víkinginn - aftur. Það er skortur á vistbæmm vömm í búðum Dana og nefnd á vegum landbúnaðarráðherra hefur nýlega lagt til að vistbær landbúnaður verði skyldufag í öllum bændaskólum, það verði komið á fót sérstakri rannsókna- stöð í vistbærri framleiðslu og allt á að gera til að auðvelda bændum að söðla um. Það em ekki lengur einungis horaðir hippar og vel stæðar, miðaldra húsmæður sem kaupa vistbærar vömr. Þetta er orðið að lífsstíl hjá stómm hópi fólks á öllum aldri. En það er ekki sama hvað hlutimir kosta. (Ef ís- lending vantar peninga, vinnur hann meira, á meðan Dani í sömu stöðu reynir að spara.) Arið 1993 er nefnt "ár 0" innan vistbæra geirans í Danmörku. Það var í 29. viku þess árs að verð á vistbæmm vömm var lækkað verulega í nokkmm stórmörkuðum og sam- hliða vom vömmar markaðssettar á meira áberandi hátt en áður. Síðan hefur, í stuttu máli sagt, verið stöðugur skortur á vistbæmm vömm. Torfi Jóhannesson skrifar frá Danmörku Af og til kemur hugtakið "ljós- grænn landbúnaður" upp á yfir- borðið en bastarðurinn er kveðinn niður jafnharðan. f þessari fram- leiðslu er reynt að minnka notkun eiturefna (sum em bönnuð alveg) og tilbúins áburðar og meira tillit er tekið til velferðar dýra en vant er við hefðbundna framleiðslu. Þeir sem hafa rauða 0ko-stimpiIinn segja reglumar um framleiðsluna allt of sveigjanlegar, þannig að neytendur geti engu treyst og þeir hefðbundnu segja að þeir séu í raun ljósgrænir nú þegar; þessir framleiðsluhættir séu "góðra bænda háttur". Eins og heima em eggja- og kjúklingabændur á allt annarri línu en annað fólk. Það er hægt að kaupa egg merkt: Burhpns, volieréhpns, skrabeæg, fritgáende h0ns og 0kologisk æg. Svipað úr- val er af kjúklingum. I "kastljósi" í síðustu viku var reynt að útskýra muninn á framleiðslukerfunum. Sé einhver í vafa má nálgast lítinn Könnun á hrossahögum Starfsmaður Landgræðslu ríkisins Jóhann Magnússon, í samráði við búnaðarsambönd, Félag hrossabænda, Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök íslands, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og ýmsa aðra aðila, mun á næstu vikum ferðast um landið og kanna ástand hrossahaga í heimalöndum bænda. Markmið verkefnisins er að fá heildaryfirlit um fjölda beitarhólfa þar sem hrossabeit hefur ekki verið í samræmi við landgæði. Ekki verða birt nöfn þeirra jarða þar sem um vandamál er að ræða en hlutaðeigandi aðilar munu í framhaldi af könnuninni heimsækja viðkomandi landeigendur til ráðgjafar um leiðir til að koma í veg fyrir ofnýtingu lands. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Runólfsson í síma 487 5500 Landgræðsla ríkisins Sauðburður ð Suðurlandi gekk vel Sauðburði er nú víðast hvar að verða lokið hjá sauðfjárbændum á Suðurlandi eftir nokkuð gott vor, a.m.k. sé miðað við aðra lands- hluta. Bændumir gátu komið fé sínu jafnóðum út og þurftu því ekki að kvarta undan þrengslum í fjár- húsum sínum eins og starfsbræður þeirra víða um land sem þurftu að láta allt fé sitt bera inni. Að sögn Jóns Vilmundasonar sauðfjár- ræktarráðunauts hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlandi gekk sauðburður á Suðurlandi mjög vel þetta vorið enda tíðin góð og frjósemin err mikil eftir því sem hann komst næst.MHH fjórblöðung sem ber yfirskriftina: Borðaðu kjúkling - með góða sam- visku. A baksíðunni er listi yfir vörumerki sem samviskan sættir sig við. Valið er erfitt því að góð samviska kostar peninga. En... hver sagði að lífið ætti að vera létt? Etik f dönsk-íslensku orðabókinni minni er etik nefnt siðfræði en orðið etik hentar betur í þeirri umræðu sem hér fylgir. Etik snýst um viðhorf og er því illmælanh g, enda eru viðhorf fólks misjöfn og breytast oft eftir því sem tíminn líður. Sem dæmi um spumingar sem fjalla um etik má nefna það, hvort við eigum að taka tillit til þarfa búfjár ef uppfylling þarfanna er ekki hagkvæm. Ef við teljum svo vera, eigum við þá að taka tillit til dýranna, vegna þess að okkur líður betur við að vita af því að dýrunum líður betur, eða vegna þess að við teljum að dýrin eigi "rétt" á að hafa það gott. Flestir geta, með smá yfirlegu, fundið svör við þessum spumingum meðan þær snúast um kýr og kjúklinga en málið vandast ef við byrjum að tala um meindýr (rottur, sjúkdómsvaldandi bakteríur) eða illa skilgreind náttúrufyrirbrigði (ár, vötn, beitilönd). Bændur og þeirra þjónustulið (ráðunautar og rannsóknamenn) hafa misst fótfestuna. Hámarks- hagkvæmni er ekki lengur eina markmiðið og krónur em ekki eina mælistærðin. Nú þarf að taka tillit til gilda sem em ill- eða óskil- greinanleg (etik, fjölbreytileiki lífríkis, velferð komandi kynslóða o.fl.) og að sama skapi ill- eða ómælanleg. Flestir eiga ennþá erfitt með að fóta sig í þessu nýja umhverfi en danskir bændur em vanir að standa í fararbroddi og prófa nýja hluti þannig að þeir koma til með að bjarga sér. Hins vegar verður erfiðara fyrir aðrar þjóðir að feta í sömu spor, ef nauðsynlegan bakgmnn vantar. Meira um þetta síðar. Af hverju? Þetta gerist ekki af sjálfu sér. í mínum huga leikur enginn vafi á að að landbúnaðurinn hér (eins og víðar í Evrópu og USA) hefur lent inni í blindgötu. Rótin liggur í lélegu upplýsingaflæði milli fram- leiðenda og neytenda. Einu sam- skiptin hafa verið í gegn um verð varanna og nokkra einfalda gæða- staðla. Einu boðin sem neytendur hafa getað sent bændum em: Lægra verð, þokkaleg vömgæði. Bændur (þjónustaðir af öflugum rannsóknageira) hafa gert sitt til að uppfylla þessar óskir en upp- lýsingar um framleiðsluaðferðimar hafa ekki fylgt. Löng keðja milli- liða hjálpar ekki upp á sakimar. Smátt og smátt vakna neytendur upp við vondan draum. Hundmðir þúsunda í Danmörku neyta drykkjarvatns sem inniheldur meira en fimm tegundir af skor- dýra- eða illgresiseitri. Sömu sögu er að segja um nítratinnihald í drykkjarvatni. (Reyndar er rætt um það nú í sölunum í Bmssel að hækka lágmarksgildin fyrir eitur- efni og m'trat, því það gengur svo illa að halda mörkin í landbúnaðar- héraðum Evrópu). Þömngagróður í ám og vötnum veldur útrýmingu fiska og annarra æðri lífvera. Milli 30% og 50% spendýra, fugla og skordýra landsins em talinn í út- rýmingarhættu. Fólk veikist af salmonellubakteríum sem em ónæmar fyrir flest öllum lyfjum, vegna þess að svín og kjúklingar em "fóðmð" á lyfjum. I nýlegri rannsókn, á vegum ES, kom fram að Danmörk var eina landið innan sambandsins þar sem ekki fundust óleyfilegir hormónar í kjötsýnum. I Belgíu og Italíu var staða mála einna lökust 20-30% sýna inni- héldu hormóna. Listinn gæti verið lengri en ég læt staðar numið hér. Það ætti öllum að vera ljóst að það er því ekkert skrítið að neytendur reyni að spyma við fótum og setji spumingarmerki við núverandi framleiðsluhætti. Nákvæmlega það sama hefur gerst heima á Fróni í kring um gróðureyðingarvanda á sumum beitilöndum. Það eina sem landbúnaðurinn getur gert er að virða óskir neytenda (sam- félagsins) ásamt því að miðla stöðugt upplýsingum um þá fram- leiðsluferla sem liggja að baki þeirra vara sem í boði era. Þannig má komast hjá því að þróunin í framtíðinni lendi á skjön við hug- myndir neytenda um... eigum við eldd að kalla það: Gæði. STURTUVA6NAR Eigum nú fyrirliggjandi finnsku sturtuvagnana á sama verði og í fyrra. Vagnarnir eru með tvískiptum skjólborðum og fást í 6 gerðum, með burðargetu frá 5 til 14 tonnum. tuhtMI aa ■rUHTl r ‘\í t 11'1 6óðfúsle?a leitið nánari upplýsin?a Dæmi um verð = (gengi 28.03.1995) M6 6 tonn. Stærð palls: 379 x 236 cm á einni hásingu. Verð kr. 360.000,-m/vsk. M85 8,5 tonn. Stærð palls: 412 x 236 cm á tveimur hásingum. Verð kr. 485.000, -mA/sk. M110 11 tonn. Stærð palls: 460 x 236 cm á tveimur hásingum. Verð kr. 616.000,-m/vsk. H. HAUKSSON HF. SUÐURLANDSBRAUT 48 - SÍMI 588 1130 - FAX 588 1131

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.