Bændablaðið - 28.05.2002, Page 18
18
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. maí2002
*
'r
*
íslcnskir kúabændur komast í
alþjóðlega gagnagrunna
Undanfarið hefur verið unnið að
því að að kúabændur landsins
geti nýtt sér erlenda
gagnagrunna í nautgriparækt og
standa vonir til þess að um
mánaðamótin verði gert
samkomulag við LR í
Danmörku (Landbrugets
Rádgivningscenter). Hér er um
að ræða gagnagrunn með
ógrynni af upplýsingum á öllum
sviðum nautgriparæktar, s.s.
kynbætur, fóðrun, heilsufar,
byggingar ofl. Allt aðgengi að
gögnunum verður ókeypis fyrir
íslenska kúabændur, en
kúabændur í Danmörku greiða
sem nemur kr. 5.000,- fyrir
þetta aðgengi. Um tilraun er að
ræða og verður tekin frekari
afstaða til áframhalds næsta
haust. Einnig er unnið að því að
opna gjaldfrjálsar leiðir fyrir
íslenska kúabændur í
gagnagrunna í Bandaríkjunum
og á Nýja-Sjálandi.
LANDSSAMBAND
KÚABÆNDA
Nýtt merki LK
Landssamband kúabænda hefur
fengið nýtt merki (hér að ofan)
og er merkið hannað af Jóhanni
H. Jónssyni, grafískum
hönnuði. Nýja merkið mun
leysa gamla dropann af hólmi
og þessu samhliða mun koma
nýtt útlit á vef LK, sem
verður kynnt á aðalfundi LK í
ágúst.
NMSM heldur ársfund á
Islandi
Dagana 13. - 16. júní nk. verður
haldin ársfundur NMSM á
Hvanneyri, en NMSM
er vinnuhópur í mjólkurgæðum
á vegum samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði á
Norðurlöndunum (Nordiske
Mejeri organitationes
Samarbejdesutvalg for
mjölkekvalitetsarbejd).
Nýtt af nautakjöti
Sala á nautgripakjöti í apríl
gekk vel og nemur nú aukning á
síðustu 12 mánuðum 1,9%.
Gripum til slátrunar er þó ávalt
að fækka, en föllin að þyngjast.
Sérstaka athygli vekur aukning í
slátrun úrvalsgripa, en í apríl
flokkaðist 81 gripur í úrval, en
aðeins 30 í apríl 2001. Þrátt
fyrir fækkun á gripum til
slátrunar sé Iitið til 12 mánaða,
varð slátrun í apríl
sl. mun meiri en í apríl á síðasta
ári, eða 256 gripum fleiri.
Samhliða jókst salan frá sama
tíma einnig úr 265 tonnum í 295
tonn. Allar nánari upplýsingar
um þróun í sölu og framleiðslu
á nautgripakjöti má finna á vef
LK: www.naut.is.
Verð á greiðslumarki
Þrátt fyrir að allar forsendur
bendi til annars, hefur verð á
greiðslumarki ekki lækkað eins
og væntingar stóðu til. Bændur
eru hvattir enn á ný til að fara
vandlega yfir
kostnaðarforsendur og meta
með raunhæfum hætti hvað sé
eðlilegt að greiða fyrir
greiðslumarkið.
Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri LK.
NorOurlandsfenð búfræðikandidatselna
Norðurlandsferð búfræðikandidatsefna 5. - 7. apríl 2002
Hefð er fyrir því á vorönn að nemendur á öðru ári
háskóladeildar fari í ferð norður á land. Tilgangurinn er að kynna
sér búskaparhætti bænda, sem og að kynna okkur sjálf sem
tilvonandi starfsmenn landbúnaðarins. Lagt var af stað frá
Hvanneyri eldsnemma að morgni föstudagsins 5. aprfl, enda langur
dagur framundan.
Þóroddsstaðir í Hrútafirði
Gunnar Þórarinsson búfræðikandidat og kona hans Matthildur
Hjálmarsdóttir tóku á móti okkur og sýndu okkur búið. Gunnar starfaði
sem ráðunautur þar til hann tók við búskap á Þóroddsstöðum af foreldum
sínum. Fjöldi sauðfjár á bænum er 400 en greiðslumark tæplega 300
ærgildi. Einnig eru þau með nokkur hross. Mest er heyjað í vothey í
flatgryfjur og maurasýra notuð sem íblöndunarefni, þ.e. ca 25%, en það
sem ekki kemst í gryfjurnar er rúllað. Gunnari fínnst ekki vera munur á
því að fóðra æmar á votheyi eða rúllum. Hann hefur lagt áherslu á að ná
upp góðri frjósemi í fénu og telur að það borgi sig þó það bitni aðeins á
flokkuninni. Hjónin á Þóroddsstöðum hafa slátrað nokkuð utan venjulegs
sláturtíma og þegar við komum var einmitt nokkur hópur lamba sem beið
slátrunar. Þau höfðu verið ætluð í páskasteikur landsmanna, en vegna
bólusetningar við fjárkláða á Norðurlandi vestra mátti ekki slátra fyrir
páskana. Nokkuð er sætt af ám á hverju ári, en Gunnari finnst að æmar
haldi illa séu þær samstilltar og að það hafi versnað upp á síðkastið.
Víðidalstunga í Húnaþingi vestra, Víðidal_____________________________
Abúendur eru Olafur B. Oskarsson og Brynhildur Gísladóttir sem eru
foreldrar Hallfríðar Ólafsdóttur, eins af ferðalöngunum. Þar var okkur
boðið upp á hádegismat sem fór ákaflega vel í maga. í Víðidalstungu er
stundaður fjárbúskapur og litum við í ljárhúsin á bænum. Féð í
Víðidalstungu er ættað frá Snæfellsnesi og kom þangað 1993 eftir að
skorið hafði verið niður vegna riðu árið 1991.
Jörfi í Húnaþingi vestra, Víðidal__________
Þar búa Ægir Jóhannesson og kona hans Stella Agnarsdóttir Levi
kúabúi með 220 þús. lítra mjólkurkvóta. Nú eru 65 kýr í fjósinu en básar
em 84. Þarna hefur nýlegum fjárhúsum verið breytt í fjós þar sem legu-
básar og geldneytapláss eru í fjárhúsunum en gjafaaðstaða og mjaltabás
er í hlöðu. A Jöifa er sérstakt gjafafyrirkomulag hjá mjólkurkúnum.
Fóðrinu er blandað saman í gróffóðurblöndunarvagni sem dælir því á
færibandafóðurgang og af honum éta kýmar. Blöndunarvagninn saxar
fóðrið ekki sjálfur heldur þarf að saxa það ofan í hann. Eins og er eru
grænfóðurrúllur og heyrúllur settar í hann. Færibandið er sett í gang 4-5
sinnum á dag en í framtíðinni er markmiðið að þetta verði sjálfvirkt ferli.
Loftmænir á fjósinu er opinn og er það eina loftræstingin sem er í húsinu
eins og er. Kjarnfóðurbásar eru 2 og rafmagnskúasmali rekur kýmar í
mjaltabásinn. Mjaltabás er fyrir 10 kýr og eru engin sérhönnuð gólfefni í
básnum heldur aðeins steinsteypa. Þessi kostur var valinn þar sem
bóndanum fannst þau efni sem í boði voru of sleip fyrir kýrnar. Brynn-
ingarkerfið fyrir geldneyti og geldkýr er þannig að niður úr loftinu hanga
slöngur með ventli á endanum, sem kýrnar drekka úr. Fjósið var tekið í
notkun í byrjun nóvember 2001.
Skriðuland í Langadal A-Hún
Þar tóku á móti okkur Bjöm Guðsteinsson og kona hans Una Herdís
Jóhannesdóttir. Á Skriðulandi er svínabú með 100 gyltum. Framleiðsla
hófst 1994 og eru framleidd 70-80 tonn af kjöti á ári. Komrækt er einnig
stunduð og eru um 100 ha undir, bæði í Langadal og Skagafirði. Komið
er allt notað sem fóður í svínin ásamt aðkeyptu fóðri. Telja þau að fóður-
kostnaður sé minni með heimaræktuðu komi en aðkeyptu. Talsverð jarð-
vinnslutæki þarf til kornræktarinnar og sáum við meðal annars 8 skera
vendiplóg sem vakti óskipta athygli nokkurra í hópnum. Þess má geta að
stærsti göltur búsins vegur rúmlega 200 kg.
Hestamiðstöð íslands - Svaðastaðahöllin Sauðárkróki__________________
Höllin er 80 m löng og 30 m breið. Hún er mikið notuð, en ekki
eingöngu til hestaíþrótta heldur er einnig spilaður fótbolti og golf þar og
æfðar frjálsar íþróttir. Hægt er að kaupa staka tíma eða kort með mis-
munandi tímafjöida. 500 áhorfendur komast í sæti og aðstaða fyrir
fatlaða er mjög góð. Áætlað er að byggja 70 stía hesthús sunnan við
höllina til hagræðis fyrir þá sem komnir eru lengra að með hesta sína.
Keldudalur í Hegranesi
Abúendur þar eru Þórarinn Leifsson og Guðrún Lárusdóttir sem bæði
eru búfræðikandídatar. Þarna var stofnað einkahlutafélag árið 1996, sem
er með þeim fyrstu í landbúnaði. Em þau hjón og foreldrar Þórarins
saman um félagið. Nefndi Þórarinn að þetta væri kjörin leið fyrir fólk
sem vildi draga sig smám saman út úr búskap. í Keldudal er blandaður
búskapur með 188 þúsund lítra mjólkurkvóta, nautakjötsframleiðslu, 170
kindur og nokkur hross. Hefðbundnu básaíjósi var breytt í lausa-
göngufjós með legubásum og mjaltabás. Hlaðan hefur verið tekin undir
gjafapláss. Þar er bæði hefðbundinn kjamfóðurbás þar sem kúnum er
skammtað í kílóum auk þess sem gefið er heimaræktað bygg og er þá
kúnum skammtaður tími til áts. Beiðslisgreinir er í ijósinu og kálfafóstra
og líkar kálfunum mjög vel við hana. Heyskapur er allur í rúllur. Gefið er
tvisvar í viku, 7-8 átta rúllur í einu yfir veturinn. Þegar hlýnar í veðri er
gefið fyrir 3 daga í einu. Einnig skoðuðum við fjárhúsin og leist mönnum
vel á féð, enda hefur Keldudalsbúið verið með fremstu búum hvað
flokkun varðar á síðustu árum.
Hólar i Hjaltadal__________________________________
Eftir góðan nætursvefn á Hólum í Hjaltadal byrjuðum við daginn á
skoðunarferð um staðinn og var það Valgeir Bjamason yfirkennari sem
lóðsaði okkur um. Skoðuðum við meðal annars nýtt hesthús og vom
menn hrifnir af aðstöðunni þar.
Bakki í Öxnadal________________________
Þar búa félagskúabúi mæðginin Helgi Þór Helgason og Olöf
Þórsdóttir. Búið er 400 þús. lítrar að stærð og em mjólkurkýrnar um 80,
en heildarfjöldi gripa er um 150. Nýlega er búið að taka fjósið í gegn og
breyta því í lausagönguljós með legubásum og mjaltaróbót sem gengur
undir nafninu Robbi. Að sögn bóndans gekk vel að venja kýmar á að
ganga í Robba. Þegar okkur bar að garði var liðinn mánuður frá því að
fjósið var tekið í notkun eftir endurbætur. Höfðu kýmar því verið meira
og minna úti fyrripart vetrar og vom Helgi og Ólöf einstaklega heppin
með veður. Annar fóðurgangurinn í íjósinu var látinn halda sér og
notaður til gjafa og er gefið þriðja hvem dag, um 17 stórbaggar í senn.
Um helmingur kúnna, 40, kemst að átplássi í einu. Helgi heyjar af 220
hektömm lands vítt og breitt um héraðið. Hann er með stórbaggaútgerð
og bindur fyrir bændur í héraðinu gegn greiðslu. Telur Helgi að
æskilegra sé að samvinna sé meiri meðal bænda um heyskapartækin en
það getur dregið úr vélakostnaði.
Möðruvellir í Hörgárdal_________ _
A Möðruvöllum tóku á móti okkur Þóroddur Sveinsson tilraunastjóri,
Bjami Guðleifsson, Brynjar Finnsson bústjóri og Guðmundur
Steindórsson ráðunautur hjá BSE. Fóm þeir með okkur um staðinn og
kynntu fyrir okkur búskapinn og þá starfsemi sem fer þar fram. Þar á
meðal eru jarðræktartilraunir og rannsóknir í nautgriparækt. Að lokum
bauð Búnaðarsamband Eyjafjarðar upp á glæsilegar veitingar og fóm
allir saddir og sælir frá Möðruvöllum.
Frá Möðruvöllum lá leið okkar í Sól Víking þar sem við fengum góða
fræðslu um framleiðsluna þar.
Klauf í Eyjafjarðarsveit ________
Abúendur eru Leifur Guðmundsson og Þórdís Karlsdóttir. Tóku þau
vel á móti okkur og sýndu okkur fjós og gamla komhlöðu sem nú er nýtt
sem kartöflugeymsla, en þau eru ein af fjórum stofnræktendum á landinu
og rækta gullauga og premiere. í Klauf hefur gömlu hefðbundnu
básafjósi verið breytt í lausagöngufjós með mjaltabás fyrir átta kýr.
Legubásar em fyrir 41 kú og framleiðslurétturinn er 160 þús. lítrar.
Burðarstía er í fjósinu þar sem hægt er að fylgjast með kúnum með hjálp
myndavélar. Stían er einnig notuð fyrir kýr sem eru yxna. Heyjað er í
laust þurrt hey og líka rúllur. Gömlu fjósi var hér breytt á frekar
hagkvæman hátt í þægilega aðstöðu bæði fyrir gripi og menn.
Heimsóknina enduðum við í eldhúsinu í Klauf þar sem boðið var upp á
kræsingar og fóm menn saddir á næsta stoppistað.
Svertingsstaðir í Eyjafjarðarsveit
Abúendur eru Sólveig Haraldsdóttir og Hörður Guðmundsson sem
eru foreldrar Gunnfríðar sem var með í för. Bauð húsmóðirin okkur í
hádegismat sem var bæði góður og seðjandi. Á Svertingsstöðum er
blandað bú með ær og kýr.
Torfalækur íTorfalækjarhreppi
Þar tók á móti okkur bóndinn á bænum, Jóhannes Torfason. Hann
sýndi okkur íjósið sem er lausagöngufjós með mjaltabás fyrir sex kýr.
Fjósið var byggt árið 1969 og er með allra elstu lausagöngufjósum á
landinu. Allar innréttingar em úr tré og jarðvegur í básunum. Fyrir ekki
ýkja löngu síðan var settur upp kjamfóðurbás. Bústærðin er 146 þús.
lítrar og kýrnar 32. Eftir skoðunarferðina var okkur boðið heim í bæ þar
sem Elín S. Sigurðardóttir tók á móti okkur með góðgerðum. Þar var rætt
um heima og geima í landbúnaðarmálum og dvöldum við þar góða stund.
Að lokum viljum við þakka öllum þeim fyrirtækjum og
einstaklingum sem styrktu okkur til þessarar ferðar en án þeirra hefði hún
sennilega ekki orðið að vemleika. Guðmundur Hallgrímsson bústjóri á
Hvanneyri, Sverrir Heiðar Júlíusson kennari á Hvanneyri, Sölufélag
Austur-Húnvetninga, Ullarselið Hvanneyri, Kaupfélag Borgfirðinga,
Skinnaiðnaður rekstrarfélag hf., Framköllunarþjónustan Borgamesi,
Kaupfélag Skagfirðinga, Búnaðarbankinn Borgamesi, Kertaljósið
Hvanneyri, Hólaskóli Hólum í Hjaltadal, Landsamband sauðíjárbænda,
Globus vélaver, Bændasamtök Islands, Norðlenska matborðið,
Fjallalamb hf.
Fyrir hönd Háskóladeildar II Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og Þórey Bjarnadóttir.
Hópurinn á Bakka í Öxnadal. Taliö frá vinstri. Efri röð: Sverrir Heiðar, Hallfríður, Óðinn, Elisabeth,
Guðmundur, Heiðdís, Karin og Gunnfríöur. Neðri röð: Þórey, Gústav, Sigríður, Cathrine og
Guðný.