Bændablaðið - 14.01.2003, Page 20

Bændablaðið - 14.01.2003, Page 20
20 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 14. janúar 2003 Jarðræktar- forritið NPK - námskeið fyrir bændur Sl. haust var farið af stað með námskeið fyrir bændur varðandi notkun á jarðræktarforritinu NPK. Námskeið þessi voru m.a. kynnt í Bændablaðinu 10 desember sl. og víðar. Nú er Ijóst að stefnt verður að námskeiðahaldi á eftirtöldum svæðum á næstunni: Húnavatnssýslum, A - Skaftafellssýslu, Suðurlandi og Austurlandi. Fleiri staðir kunnna að bætast við síðar. Um er að ræða 2ja daga námskeið þar sem farið er yfir áburðarfræði fyrri daginn ásamt kynningu á NPK forritinu. Seinni daginn gera bændur áburöaráætiun út frá sínum eigin gögnum og hafa leiðbeinendur sér til halds og trausts. Að námskeiöi loknu eiga bændur að geta gert vandaða áburðaráætlun og áburðarpöntun með aðstoð NPK forritsins. Leiðbeinendur verða Árni Snæbjörnsson landsráðunautur BÍ, Jón Baldur Lorange forstöðumaður tölvudeildar BÍ og héraðsráðunautur frá viðkomandi búnaðarsambandi. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Víðihliö 23.-24. janúar nk. og í vikunni þar á eftir á Austurlandi. Búnaðarsamböndin sjá um að skipuleggja og auglýsa námskeiðin, hver á sínu svæði, og taka á móti óskum um þátttöku. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst. Bændasamtök íslands LífskjarakOnnun eftir landshlutum Þuríður Backman er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um að láta gera ítarlega könnun á lífskjörum landsmanna, sundurliðaða eftir helstu þáttum og flokkaða eftir landshlutum, þannig að marktækur samanburður fáist. Kannaðir verði allir sömu þættir og skoðaðir hafa verið í neyslukönnunum Hagstofu Islands svo að nota megi hana til að meta framfærslukostnað fjölskyldna. Auk þess verði metnir allir helstu þættir sem áhrif hafa á almenn lífskjör, svo sem Iaun, verðlag, kostnaður við skólagöngu barna og ungmenna, kostnaður við heilbrigðisþjónustu og samgöngur, húshitunarkostnaður og aðgangur að almennri þjónustu. í greinargerð með tillögunni segir m.a. I janúarmánuði 2002 kynnti Hagfræðistofnun Háskóla Islands skýrslu um tekjuskiptingu á íslandi þar sem fram kemur að misskipting hefur aukist á síðustu árum þrátt fyrir að heldur vel hafi árað í efnahagslífinu. Skýrslan sýnir að meðallaun hafa hækkað mun hraðar á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni frá miðjum tíunda áratugnum og jafnframt hefur misskipting aukist á höfuðborg- arsvæðinu en minnkað á landsbyggðinni. í skýrslu sem Stefán Ólafsson vann íyrir Byggðastofnun um orsakir búferlaflutninga á Islandi og gefin var út í nóvember 1997 kemur fram að einn helsti orsakavaldur byggðaröskunarinnar er mismunur á launakjörum og vöruverði milli landshluta. Vilja miðstöð atferlis- og eldisrannsókna á þorski á Vestfjörðum: Þorskeldi alvinnugrein fyrir landsbyggðina Einar K. Guðfinnsson er fyrsti flutningsmaður þingsályktunar- tillögu um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að koma upp mið- stöð atferlis- og eldisrannsókna á þorski á Vestljörðum er hafi það hlutverk að standa fyrir og efla rannsóknir á þessu sviði í samvinnu við háskóla- og rann- sóknastofnanir. Mikil rannsóknarvinna „Ég tel að þorskeldi geti í framtíðinni orðið umtalsverð at- vinnugrein fyrir landsbyggðina. Þorskeldi er hins vegar ekki neinn gullgröftur heldur þarf mikil rann- sóknarvinna að fara fram og mikið fjármagn þarf að koma til. For- senda þess að þetta muni ganga er sú að menn vandi undirbúninginn sérlega vel og þess vegna leggjum við flutningsmenn tillögunnar áherslu á að það verði staðið vel að rannsóknunum. Við teljum eðlilegt að nýta þá miklu þekkingu sem þegar er búið að afla varðandi þorskeldi. Við bendum á að Vest- firðir hafa á undanfornum árum verið í forystu á þessu sviði. Þar hafa menn verið lengst að varðandi þorskeldi og eru því búnir að afla sér mestrar reynslu,“ sagði Einar K. Guðfmnsson í samtali við Bbl. Góðar náttúrulegar aðstœður Hann bendir á að á Vestfjörðum séu náttúrulegar aðstæður til þorskeldis mjög góðar og þess vegna sé eðlilegt að at- ferlis- og eldisrannsóknamiðstöð verði staðsett þar. Til þessa hafa menn fyrst og fremst tekið smáþorsk til áffarn- eldis. Einar Kristinn telur að í framtíðinni muni menn þróa þorskeldi alveg frá byrjun og til þess að það megi heppnast verði rannsóknastarf að fara fram. Þessi þingsályktunartillaga var lögð fram á 127. löggjafarþinginu en var ekki útrædd og er því endurflutt nú. Bænda- blaðs JlT/L- ^ í W' FLAKK / 7 AKAFI'V 3'i LAH 16 'AFöKM ÉS? * Asy/AJA m 3 jlN Oí FUGL <ÆpU '<on\Rií ' : — •lýi'iiviviv ;v —> j STW: —> ||!!! mopi MSM FÆfil rötik STR PE&N- V RLENO-J S msi- w VEIKI Att L DFTöP SUNÚ- -ÆRÍ F ENG- UR MANUfr uA i LAfi- fiN 5 : 8 5ÆTI wrm (o m 1 JVEIFLA -U6L HALDlf: 11 van- . L'i-OAN ALfiA LAM6 KAT ÖTULLI i tpóll 5 áA (*hl UTAN 1 öffli SYÆJA Y£/Kl w LE6UT HA F §H :::-: :• : SY/KUL GRJÓT BAlÍD Wl DRAUT KAK- HÆp I | lb 5Kj'ALF| 1 \ 'ATT PLAhlTA H SLLfTR- hFJiri AKVEfi- IN PEiei- HLlofi r? Mttmt ELSKA 1 LA 66- Afil V'/SK FKim FÖ7T7 TÉtíuf? SLjlúF- HRÓSA fllíAFI 9imm Nl-6 5ESS LÆKK- ufiu H D/fFlFA PLlKI 'Ofitlfi MRÍ& pVAFN m mm íllll®:? 1- LAllPuR /3 Y/5T- IR KlND STÓNG GiAQliS- LAuSlP T' TAPlR ANfil t "2= LL! HAMS- LAUS FjauX SKAKfi m H SEF1 (SYLTA FITH w ö 5TAMÉ wr BilSLA LOK SPILItí ,ui?- KÆTTI Þfcui AA II!!! 11111 III!!! I SbL Ko heit b-e hrelli \ L/ESlHó ElRA GERfi isr i FoNCi NÆRRl VJ5SIR NÆfil krafsa 3 m Qí EHDueu L'IK /i GKAS- 1-6 GRElH' AK MIL LT LMd /?ÆMA HROSSA H'oPufi - H£Y- DREIf AR RYMJI Sendu lausn til Bændablaðsins fyrir 23. janúar. Við veitum ein vegleg bókaverðlaun! Það var hún Hafdís Gunnarsdóttir, Þvottá, 765 Djúpavogi, sem vann til verðlauna síðast. Lausnin var: Litbrigði jarðarinnar. Hafdís fékk bókina íslenski hesturinn, litir og erfðir eftir Stefán Aðalsteinsson.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.