Bændablaðið - 01.01.1990, Page 1
UNDANRENNA FLUTT AÐ NORÐAN I FLÓABÚIÐ
Birgðir mjólkurafurða eru nú
óvenjulitlar og mun minni en
æskilegt getur talist. Þetta
vekur talsverða athygli þar sem
að á síðasta verðlagsári voru
greiddar um 160 milljónir í
úttlutningsbætur, að mestu
leyti til að greiða niður
undanrennuost sem
framleiddur var fyrir norðan.
Og enn fellur til undanrenna
fyrir norðan þar sem að þar og
víðast hvar í mjólkurbúum eru
minni möguleikar til að nýta
undanrennuna sem er hinn
fitusnauði hluti
mjólkurframleiðslunnar, nema
með því að framleiða
undanrennuosta. Til þess að
bæta birgðastöðuna og koma í
veg fyrir undanrennuskort á
komandi sumri er reiknað með
að flytja undanrennu að
norðan suður f Flóabúið á
Selfossi sem er eina búið sem
getur nýtt þennan fítusnauða
framleiðsluhluta til framleiðslu
sem selst innanlands.
Þrátt fyrir aö nú sé birgðastaöa
undanrennudufts talin of lág þá er
einkum skortur á fituhlutanum og
þeim framleiösluvörum sem úr
honum koma og því er viö skoðun
þessa máls ljóst aö þaö heföi ekki
bjargaö neinu þó aö undanrennan
sem nýtt var til framleiðslu á 300
tonnum af útflutningsostum f fyrra
heföi veriö flutt suður þá. Aöeins
hluti þeirrar undanrennu heföi
nýtst til innanlandssölu á sföasta og
þessu ári en- megniö geymst f
undanrennudufti á meöan enn
heföi veriö skortur á fituhluta
mjólkurinnar. Niöurstaöan heföi
þá oröiö sú aö menn heföu
ráögert aö framleiða útflutnings-
osta nú á komandi sumri en þess f
staö er nú ráögert og unnið aö þvf
aö ná samkomulagi milli lands-
hluta um viöamikla flutninga á
undanrennu suöur. Ekki er enn
ákveðið hvort aö undanrennan
veröur flutt meö tankbílum eöa þá
sem skyr eöa kvarg. Þetta kom
meðal annars fram f samtali
BÆNDABLAÐSINS við Oskar
Gunnarsson forstjóra Osta og
smjörsölunnar.
Bæöi Óskar og Birgir Guö-
mundsson mjólkurbússtjóri Flóa-
búsins töldu þaö mjög mikilvægt
að samstaða næðist um aö fram-
leiða ekki ost til útflutnings á
komandi sumri, enda gæti þá
komiö til þess aö flytja yröi inn
undanrennuduft vegna matvæla-
iönaöarins f landinu.
A undanförnum árum hefur
gengið stööugt á birgðir mjólkur-
vara og þrátt fyrir aö stjórnvöld
hafi aukið kvóta lítilsháttar þá er
þaö varla nóg enda er aldrei full
nýting á þeim fullvirðisrétti sem
leiföur er og neyslan er vaxandi.
Nú er mjög brýnt aö hvetja
bændur alla til aö nýta aö fullu
sinn fullviröisrétt og verði gott
sumar er líklegt aö með góöu sam-
starfi mjólkurbúa megi koma f veg
fyrir vöntun á vörutegundum. En
ef samstarfið bregst og ef léleg tfö
veröur á sumri komandi þá er á
heimildarmönnum BÆNDA-
BLAÐSINS aö heyra aö komiö
geti til alvarlegur skortur á ein-
stökum vörutegundum mjólkur-
vara. -b.
BÆKDABLADID
BLAÐ UM LANDBÚNAÐAR- OG LANDSBYGGÐAMÁL i.tbl.4.árg.25janúari99o
LOKKAÐIR UT I
ÞETTA..-"
- Sjá viðtal við loðdýrabóndann Jón
Gíslason á Hofi í Vatnsdal í miðopnu
KÆRULEYSISLEGAR
RIÐUVARNIR Á HÉRAÐI!
PATRO BETRI EN SS
- framhald á frétt okkar um Arnfirsku
lömbin sem Sláturfélag Suðurlands
slátraði
MJÓLKURSAMSALAN
MÓTMÆLIR SKRIFUM
BÆNDABLAÐSINS
Jesú Kristi á jólum gaf
Jósep fyrstu bifreiðina.
- Vísnaþáttur var saminn í jólafríinu og
kennir þar margra grasa, meðal annars er
smíðaiðn Jósefs í Nasaret umfjöllunarefni í
einni vísunni.
VERÐA NIÐURGREIÐSLUR GREIDDAR
BEINT TIL BÆNDA?
-Sjá pistil Gunnlaugs Júlíussonar
hagfræðings Stéttarsambands bænda
BÆNDURNIR A
SKÓLABEKK!
Bændur þurfa eins og aörir
atvinnurekendur að setja sig
vel inn í virðisaukaskattinn og
með tilkomu hans eru bændur
allir bókhaldsskyldir.
Forsvarsmenn stéttarinnar hjá
Stéttarsambandi bænda telja
þó að það muni ekki auka
tilkostnaðinn viö búskapinn
heldur þvert á móti koma
fastara og betra skikki á hann
á þeim bæjum þar sem að
bókhaldið hefur verið í molum
og þannig verka til góðs heima
á búunum. En það er Ijóst að
bændur komast ekki lengur hjá
því að hafa pappíra sína alla á
hreinu og dagar rass-
vasabókhalds í landinu eru
taldir.
Þessa mynd tók tíöindamaður
BÆNDABLAÐSINS f Njálsbúö f
Vestur Landeyjum þar sem að
mættir voru fulltrúar 'Búnaöar-
sambands Suöurlands meö
fræöslufyrirlestur um viröis-
aukann.
Kennararnir þarna voru þeir
Þorsteinn Ólafsson forstööumaöur
Kynbótastöövar Suöurlands og
Eiríkur Jónsson búfræöikandídat
og bóndi f Gýgjarhólskoti. í spjalli
viö blaðamenn sögöu þeir aö yfir-
leitt heföi verið vel mætt, álíka
fjöldi á fundunum og fjöldi
bæjanna. Haldinn er fundur f
hverri sveit og svipað mun þetta
vera um allt land aö Búnaöar-
samböndin hafa tekið aö sér
fræösluherferö af þessu tagi.
Af myndinni sjáum viö aö í
lokin þá sýnist okkur aö þaö sé
ágætlega mætt hjá Landeyingum
og á fremsta bekk situr oddviti
sveitarinnar og þingmaöur sýsl-
unnar, Eggert bóndi á Bergþórs-
hvoli, aö fræöast um skatt þann
sem hann setti á sjálfur, - eða
þannig.
-b.
■ DRUSLA DROTTNING
Pétur Bjarnason SB
E (r ÆTLA í
6KEM MTÍFEfrO
F&UlM
MFP?
‘ttFYmvu
i LLA ?
ÁSKRIFTA-
SÍMINNER
98-313 76