Bændablaðið - 01.01.1990, Qupperneq 7
BÆNDABLAÐIÐ 1 .TBL.4.ÁRG.25 JANÚAR 1990
BÆNDA^mJb
BLAÐIÐ
"MARGIR VORU
LOKKAÐIR ÚT í
ÞETTA..."
- rætt við loðdýrabóndann Jón Gíslason á Hofi í Vatnsdal
"Þeir bændur sem eingöngu verða að treysta á loðdýr
eru afskaplega illa staddir um þessar mundir. Ef verð á
skinnum hækkar ekki fljótlega get ég ekki ímyndað
mér annað en að margir loðdýrabændur verði gjald-
þrota. Þeir bændur sem aftur á móti hafa ioðdýra-
ræktina aðeins sem aukabúgrein standa skár að vígi,"
segir Jón Gíslason, bóndi að Hofi í Vatnsdal, í samtali
við BÆNDABLAÐIÐ.
Allt okkar fé hér á Hofi var
skorið niður vegna riðu fyrir
tveimur árum þannig að við höfum
haft afuröartjónsbæturnar fyrir
það fé. Þetta hefur auövitaö kom-
ið sér afar vel á sama tfma og verð
á loðdýraskinnum hefur verið
svona hörmulega lágt.
Við vorum þeir fyrstu sem
fengum silfurref og hann höfum
við alltaf verið meö, en fyrir
tveimur árum bættum viö viö
okkur mink, en eins og staðan er í
dag þá er ég búinn að farga öllu
nema silfurrefnum, bæði blá-
refnum og minknum. Fyrir þvf eru
margar ástæður. Mér leiddist
minkurinn og ætlunin er aö nota
minkahúsin undir fjölgun á silfur-
refnum, en í dag er ég með 135
silfurrefalæður.
Er ekki varasamt að vera
aðeins með eina tegund dýra með
tilliti til hins ótrygga markaðar?
Jú, ef ég væri eingöngu með
loödýr væri miklu tryggara að vera
meö fleiri en eina tegund vegna
þess aö skinn af einni tegund geta
verið í þokkalegu verði á sama
tfma og skinn af öðrum væru í
algjöru lágmarki. Þannig mætti
jafna út sveiflur aö því marki sem
þaö er á annað borö hægt í þess-
um búskaþ.
En við treystum ekki eingöngu
á loðdýraræktina. í fyrsta lagi þá
ætlum við að taka fé aftur í haust
og f öðru lagi þá erum við með
annan búskap jafnhliða loð-
dýraræktinni. Ég er með dálítið af
hrossum og við temjum sjálf og
seljum, ég og konan mfn og þessar
búgreinar rekast ekki svo mikiö á.
Að vísu koma ákveðnir toppar f
hrossaræktinni en svo er minna
þess á milli og þaö eru ekki sömu
álagstímamir þar og eru f
loðdýraræktinni þannig að þetta
lítur út fyrir að geta fariö nokkuð
vel saman.
Fóðurstyrkurinn
lækkaður
Ilafa stjórnvöld staðið við þau
loforð sem þau gáfu loðdýra-
ræktendum um Iánafyrirgreiðslu
á sínum tíma?
Sennilega eru aðrir hæfari til
að svara þessu en ég, en þaö er
auövitað slæmt aö stjórnvöld skuli
lækka þennan svokallaða fóður-
styrk. í fyrra voru greiddar kr. 5,50,
en f ár er ekki lofað nema 3
krónum og það er auðvitað mjög
slæmt að þessi fóðurstyrkur skuli
vera lækkaður áður en skinna-
veröið hefur hækkaö.
Næg lán en rekstrargrund-
völlur enginn...?
Aö vísu gátu menn fengið lán
til að koma upp þeim húsakosti
sem þarf til loðdýraræktar, en
gallinn er bara sá, eins og allir vita,
að það er svo dýrt aö leigja
peninga að það getur varla nokkur
maður. Mönnum er aö vfsu hjálp-
að til að komast af stað og það oft
mjög myndarlega, meöal annars
var greiddur út jarðarbótastyrkur.
Reyndar voru þessi opinberu lán
lengi að skila sér þannig að menn
þurftu f millitfðinni að taka
skammtfmalán sem eru mjög dýr.
Þar aö auki voru dæmi um að lán
sem lofaö haföi verið komu aldrei.
Þannig lentu margir í vanskitum
áðpr en þeir fengu þau opinberu
lán sem lofað hafði verið. Þetta
setti marga auðvitað í mikinn
vanda. Þegar á allt er litið má þó
segja að lánin hafi verið næg, en
það hefur bara litla þýöingu að
hjálga mönnum af staö ef enginn
grundvöllur er fyrir rekstrinum
upp frá þvf.
Flutningskostnaður
sífellt stærri þáttur
Getur loödýraræktin þá staö-
iö undir sér ef ekki kemur til
önnur búgrein samhliöa?
Silfurrefurinn er skárri að þvf
leyti aö það er engan veginn hægt
að segja að sú búgrein éti sjálfa sig
upp eins og önnur loðdýrarækt
virðist gera. Búskapur með silfur-
ref ætti að geta staöið undir sér.
Hitt er annað mál að tekjurnar eru
nánast engar við núverandi að-
stæður. Þannig standa þeir auð-
vitað betur að vfgi sem hafa eitt-
hvaö annaö uppá aö hlaupa.
Svo er eitt enn sem taka
veröur tillit til, en það er að
bændum hefúr fækkaö mikið f
loðdýraræktinni og eins hafa þeir
sem eftir eru minnkaö viö sig og
fækkað dýrum, þannig að flutn-
ingskostnaðurinn er alltaf að verða
stærri póstur f þessu, en f raun er
flutningskostnaður hreinlega hluti
af fóðurverðinu. Hitt er svo auð-
vitað alveg rétt að það er mikið
happdrætti aö þurfa aö eiga allt
sitt undir einhverjum tískuduttl-
ungum. Þannig að það liggur ljóst
fyrir að þetta er áhættubúskapur.
Verðhrun á mörkuðum
Mér er það mjög minnistætt
að fyrsta árið sem dýrin voru hérna
þá lógaði ég ekki nema örfáum
dýrum og að auki fáir hvolpar sem
fæddust og allt sett á sem eölilegt
er svona fyrst f staö. Þá vorum viö
að fá 2.000 danskar krónur fyrir
besta skinnið, sem væri í dag f
kringum 19.000 íslenskar krónur
og það hafa komiö þau ár þegar
meöalverð á skinnum af silfúrref
hefur fariö yfir 2.000 krónur
danskar. Meöalverö f fyrra var hins
vegar 460 til 480 krónur eða að
minnsta kosti helmingi lægra
heldur en meðalverö undanfarinna
tfu ára.
Áhugi fólks á að ganga f flíkum
úr Ioöskinni virðist alls ekki vera úr
sögunni f heiminum, en auövitað
hefur áróður t.d. Grænfriðunga
haft sitt að segja. Hversu mikil þau
hins vegar eru til lengdar veit
maður ekki.
Nokkur atriöi eru það líka til
viöbótar sem hafa verið okkur
óhagstæð. Dollarinn hefur staðið
illa þannig að Bandarfkjamenn
hafa átt f erfiðleikum með að
kaupa inn skinn á mörkuðunum
og unnar flíkur frá Austurlöndum
fjær. Þetta er ein ástæðan fyrir þvf
hvað verðiö hefur veriö lágt á
okkar mörkuöum. Önnur ástæða
er sú að það eru búnir aö vera
tiltölulega hlýir vetur f Evrópu
undanfarin tvö ár og þá kaupa
menn síður flíkur úr skinni. Þriðja
ástæðan er svo sú að þaö var víðar
en á íslandi sem kreppa var f hefð-
bundnum landbúnaði þannig að
bændur í miklu fleiri löndum fóru
út f loödýraræktina. Þannig óx
framboð á refaskinnum mjög á
árunum 1984 til 1987. Nú er fram-
boðið hins vegar að minnka aftur
verulega þannig aö ef til vill er
betri tfö framundan. Við skulum
að minnsta kosti vona það.
Fóðurstöðin illa stödd
Þó er einn vandi enn sem ekki
er hægt annaö en að nefna og það
er fóðurstööin á Sauöárkróki sem
stendur mjög illa. Þannig er að á
sínum tfma var ákveðiö aö byggja
hér á svæðinu eina stóra fóður-
stöð, en þá var gert ráö fyrir
aukningu f loðdýrarækt hér á
þessu svæði, en svo kemur þessi
mikli afturkippur f búgreinina og
þá lendir fóöurstööin að sjálfsögðu
f vandræðum. Þessi stöö var byggö
fyrir fé úr opinberum sjóðum.
VIÐTAL: ÖRN BJARNASON
Þannig eru þessi mál öll mjög
flókin og miklu víðtækari en svo aö
nóg sé að bjarga bara bændunum.
Með ráðstöfunum sem rætt
var um seinast á síðasta ári var
verið að tala um endanlega
lausn...
Jú, en engar af þeim
ráðstöfunum sem þá var rætt um
eru þó komnar nógu mikiö á
hreint ennþá til þess aö hægt sé að
tala út um þær. En vonandi verða
þær þó sem flestum til bjargar.
Hvernig geta stjórnvöld
komið best til aðstoðar eins og
málin standa f dag. Er eitthvað
sem þarf að gera strax?
Stjórnvöld verða að gera þaö
upp við sig hvort þau ætla að
bjarga búgreininni eða láta þetta
allt saman fara á hausinn. Það er
auövitaö mál sem þolir ekki frekari
bið. Þær aðgerðir sem gripiö hefur
veriö til til þessa hafa veriö mjög á
þann veg að vera sffellt að lengja f
snörunni. Vandanum hefur veriö
velt á undan sér. Það vita allir sem
vilja vita að loðdýrabændur þola
aðgerðarleysi ekki mikið lengur.
Ein hugmyndin sem heyrst
hefur er sú aö fella eigi niður 40%
af búralánunum. Þetta er gott og
blessaö, en þeir sem á sfnum tfma
voru að bjástra við aö kaupa sfn
búr án þess að taka þessi svoköll-
uðu búralán en ljármögnuðu
kaupin með venjulegum skamm-
tfmalánum t.d., þeir fá þarna fyrir
bragðið ekki þessa niðurfellingu og
sitja áfram f súpunni. Og þetta er
auðvitað hrópleg vitleysa aö hegna
þannig mönnum sem voru að
reyna að bjarga sér án þess að taka
þessi opinberu búralán.
Staöa sumra
loðdýrabænda
vonlaus.
Þvf miður er staöreyndin sú aö
þeir loðdýrabændur eru til sem
eru það illa staddir aö þaö er oröið
of seint að koma þeim til aðstoðar,
staöa þeirra er einfaldlega oröin
vonlaus. Og það hlýtur að vera
miklu betra fyrir þessa menn að
þeim sé sagt það strax hvernig
komiö er, heldur en aö halda þeim
alltaf f fölskum vonum þvf staða
þeirra verður sffellt verri. Því þegar
upp er staðið standa þeir ekki að-
eins eignalausir, heldur eru vinir og
ættingja oft búnir að skrifa uppá
lánspappíra fyrir þá þannig aö slíkt
getur orðið mikill harmleikur, þvf
miöur.
Við verðum að muna að
margir voru á sfnum tfma lokkaðir
út í þetta. Af þeim var keyptur
allur fullviröisréttur og annað þess
háttar. Stjórnvöld geta því ekki
látiö sem þeim komi þetta ekkkert
við. Þau beinlínis veröa að bjóða
upp á eitthvað sem hægt er aö
byggja á í framtíðinni.
Fiskeldið ekki
gjaldþrota...!?
Gjaldþrot fiskeldisfyrirtækja hafa
vakið athygli að undanförnu og
margir orðið til að afskrifa
greinina. Það er þó ef til vill
fullsnemmt. Friörik Sigurðsson
ritstjóri Eldisfrétta segir um þetta
mál f leiðara nýveriö:
"Því má hinsvegar ekki gleyma að
fyrirtcekin em œði misjafnlega
sknldsetin. Þannigskultla 6-7
fyrirtœki um hebning skulda
greinarinnar eða um 3 miljaröa.
Hina 3 miUjarðana skulda 60 - 70
fyrirUeki. Framtíð
fiskeldisfyrirtœkjanna erþvi œði
misjöfn. Mörgfyrirtœki liafa sýnt að
þau eru úrræðagóö þótt á móti
blásL Sum þessara fyrirtœkja hafa
breytt úr laxi í aðrar tegundir, svo
sem regnbogasilung og bleikju eða
hafið aðra framleiðslu tír Iwá, svo
sem smálaxaframleiðshL
Þessvegna er það fásinna að
fuUyrða að öUfiskeldisfyrirUeki
stefni í gjaldþrot þó tvö stór fyrirtœki
hafi orðið gjaldþrota síðustu
vikumar."
559 ærgildi
tapast
f nýlegu tölublaði Austra á
Egilsstöðum segir f stuttri ffétt af
slæmri útreiö bænda í Geitavík í
Borgariírði eystri út úr
kvótamálum. Þar voru árið 1974
um 600 fjár á fjórum búum. Sfðan
herjaði riðuveiki á stofninn á
næstu árum þannig að þaö
fækkaöi mjög og hefúr væntanlega
veriö fátt viðmiðunarárin. Ekkert
tillit var tekiö til þessa og nú er
fullvirðisréttur jaröarinnar 41
ærgildi sem skiptist á þrjá aöila...
Fjárlög og
loforð
Illa horfir nú með loforð það sem
bændur fengu þegar þeir féllust á
að falla frá hækkun launaliðar á
síðasta ári. Þá lofaöi
forsætisráðherra aö f staðin myndi
ríkisstjórnin tryggja aö birgðastaða
kindakjöts lækkaði á
verðlagsárinu sem næmi þeim
samdrætti sem orðiö hefði f
fullviröisrétti. Birgðirnar sfðasta
haust voru 2040 tonn en eiga aö
verða 1430 tonn næsta haust,
samkvæmt þessu. Fróöir menn
telja að til þessa sé aðeins sú leið til
að flytja meira út þvf
kindakjötsneyslan var alls ekki
léleg á síðasta verðlagsári miðað
viö það sem gerist á þessum
síðustu og verstu tfmum, um 35
kg. á hvert mannsbarn. Til þess aö
þetta megi verða þyrfti annaðhvort
að auka innanlandssöluna um
10%, sem ekki er talið raunhæft
eða auka útflutninginn. En á
fjárlögum er ekki gert ráö fyrir
neinni aukningu á fé til
útflutningsbóta. Þessa dagana
standa því yfir fundahöld um það
hvernig megi leysa málið og
tryggja að loforöið verði efnt,-
einn kosturinn er að bæta við
útflutningsbótafé sem þá yrði
aukafjárveiting en menn hefðu þá
betur sett þessi útgjöld, sem
sannanlega voru fyrirséð, á
fjárlög...