Bændablaðið - 01.01.1990, Side 12

Bændablaðið - 01.01.1990, Side 12
Fylgifiskur nýrra laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga kemur oddvitum og öðrum óþægilega á óvart. Reynt að laga, stærstu misfellurnar með skyndifrumvarpi í gegnum Alþingi. I staðin fyrir þreföldum fasteignagjalda sleppa bændur nu með... AÐEINS BARA TVÖFÖLDUN FASTEIGNA- GJALDAí SVEITUNUM Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið þess á leit við félagsmálaráðherra að hann leggi í snarheitum fram breytingu á nýjum lögum um tekjustofna sveitar- félaga þar sem að Qallað er um fasteignagjöld til þess að koma í veg fyrir að skattur þessi á sveitabýli verði alltof hár eða misræmi milli einstakra eigna í sveitum of mikill. Þrátt fyrir þetta má búast við að fasteigna- gjöld í sveitum hækki, rétt eins og annarsstaðar á landsbyggðinni en þá Iíkalega ekki nema 80-100% í stað þess að þrefaldast eins Forsaga þessa er að fast- eignamat eigna er mishátt eftir staðsetningu. Reynt er aö taka tillit til þess að markaðsverö er mishátt meö þvf að margfalda hið eiginlega eignamat meö sérstökum svæða- stuöli sem er talan 1 í Reykjavík en lægri allsstaðar annarsstaöar, allt niður f 0,2 f afskekktustu sveitum, 0,5 - 0,8 er algengt f kaupstöðum. Fasteignagjöld hafa tekið mið af fasteignamatinu eins og þaö er eftir að margfaldaö hefur verið með svæöastuðlinum en f kaup- stöðum er litið svo á aö þessi tekjustofn sé til að standa undir þjónustu viö íbúana. Það er því ljóst að meö þessu viröist svo sem þjónusta í kaupstaö með stuðulinn 0,5 eigi aö kosta helmingi minna en þjónustan sem veitt er f Reykja- vfk, eða þá að vera helmingi minni. Aöeins hafa sveitarstjórnarmenn vegið þetta upp meö þvf að leggja á hærri fasteignaskatt úti á landi heldur en gert er f Reykjavfk. En nú, meö nýju tekjustofnalögunum sem tóku gildi á áramótum, er ákveðið að gjaldstofninn verði matiö áður en svæðastuðullinn kemur til sögunnar. Fasteigna- gjaldsstofn samskonar húsa f Reykjavík og á Raufarhöfn verður þvf sá sami þrátt fyrir að markaös- verö sé misjafnt. Nú má þvf reikna með að fasteignagjaldiö sem % af gjaldstofni verði hæst á höfuð- borgarsvæöinu en lægra úti á landi, þrátt fyrir aö upphæð gjaldanna muni hækka þar. Þessi breyting er mörgum bæjarstjórnar- og horfur voru á. mönnum úti á landi fagnaðarefni þar sem tekjurnar hækka og ekki veröur lengur hægt að núa mönn- um þvf um nasir að vera meiri skattpfningarmenn heldur en Davfö borgarstjóri. Sveitirnar gleymdust Á hinn bóginn virðist svo sem ekki hafi verið horft mikið f þýöingu þessa fyrir sveitirnar. Þar er stuðullinn allsstaðar mun lægri en tfökast f kaupstöðum og mjög vföa á bilinu 0,2-0,5. Byggingar á hverju býli eru mun meiri en tilheyra hverri fjölskyldu í kaupstaö og þvf er algengt aö fasteigna- skattar bænda sem voru á bilinu 20 - 50 þúsund veröi 60 - 150 þúsund. Þessi uppákoma hefur kallað á hörð viöbrögö margra oddvita úti á landi og einn þeirra sagöi f samtali við BÆNDABLAÐIÐ aö með því að leggja á skatt sam- kvæmt mati sem væri langt yfir söluverðmæti væri í reynd um eignaupptöku aö ræöa. Hann kvaðst hafa litiö á fasteignaskattinn sem eignaskatt en ekki þjónustu- gjald enda væri þaö alls ekki raunhæft aö tala um þjónustugjald til sveita, þar sem hrepparnir veita litla þjónustu. Hlunnindaeigendur græða Til þess að sporna við þessu hafa sveitarstjórnarmenn vitanlega þá leiö að lækka fasteignagjaldiö niður en sumsstaðar var það í hæsta þrepi, 0,625%. En jafnvel þó að þaö sé lækkað um helming dugar þaö í fæstum sveitum til að halda skattinum álfka og f fyrra. Og það sem gcrir þessa leiö enn tor- færari er það mikla misræmi sem þá myndast f sveitunum. Enginn svæöastuöull er á jöröum né hlunnindum enda engin rök fyrir slíku. Þvf er þaö aö lækkun fast- eignagjaldsprósentu til að hlífa bændum kemur mjög óréttlátt niður. Laxveiöiár, eyöibýli og hlunnindi ýmis bera þá minni fasteignagjöld en þau gerðu meðan gjöld af öllu öðru hækka. Bent er á aö hlunnindin eru f reynd mun seljanlegri og verðmætari fasteignir heldur en land- búnaðarbyggingar og íbúðarhús til sveita og þvf alfariö óeðlilegt aö lækka skattinn á þeim á meðan hækkuð er skattlagning á öðrum eignum. Tvennskonar fasteignamat Þar viö bætist aö f sumum sveitum eru tveir misháir svæöa- stuðlar og þegar báðir eru teknir f burtu hækka eignir mjög mismikið f verði. Þessi ruglingur helgast af því aö eignir sem metnar voru fyrir 1976 og hafa ekki verið endur- metnar sföan eru með úrelt mat sem ekki hefur hækkaö alveg í takt við verðbólguna. Til þess að vega upp þessi áhrif þá settu menn á annan svæðastuðul fyrir þessar eignir sem er þá mun hærri tala hcldur en hinn eiginlegi markaðs- stuðull viðkomandi sveitar. Ennfremur geta veriö tveir markaösstuölar þar sem að f sveitarfélagi er bæöi þéttbýli og dreifbýli og þá ætfö lægri stuðull í dreifbýlinu þannig aö nú veröur hækkunin meiri þar en hjá kaup- staöarbúanum. Allur þessi ruglandi gerir sveitarstjórnarmönnum næsta erfitt fýrir nú þegar stuölum þessum er kippt í burtu og við blasir aö tveir menn með sams- konar eignir eiga aö borga mjög mishá fasteignagjöld vegna þess aö hjá öörum er búið aö endurmeta en ekki hjá hinum. Vitanlega er það ætlan yfirvalda aö þaö eigi að vera búiö að endurmeta allar eignir f Iandinu, en svo er ekki, sérstaklega ekki til sveita þar sem aö hagsmunir sveitahreppanna f þvf máli eru ekki knýjandi. Þaö er dýrt aö láta meta upp eignir, þar sem þarf t.d. að teikna upp gömul hús ef aö teikningar eru ekki til, o.s.frv. Hjá fasteignamatinu fengust þær upplýsingar að um 19000 hús í landinu eru enn meö gamla mat- inu auk útihúsa og mörg af þessum 19000 húsum eru til sveita. En vafalaust kalla þessi breyting nú á það að fleiri sveitarstjórnir munu óska eftir endurmati eigna, þrátt fyrir kostnaö sem þaö hefur f för með sér. Jöfnunarsjóðsframlag skerðist við lága skatta Enn einn þáttur þessa máls er aö jafnvel þó að hreppsnefndir vilji horfa framhjá þvf misræmi sem skapast gagnvart hlunninda- eigendum og lækka fasteigna- skattinn þannig að heildartekjur veröi þær sömu þá skeröir þaö um leið rétt viðkomandi sveitar til framlags úr jöfnunarsjóði en f fyrra fengu 60 sveitarfélög af alls 213 framlag úr honum. Til þess að fá óskert framlag úr jöfnunarsjóði þarf sveitarfélag að leggja 0,4% á f fasteignagjöld. Sveitarfélag sem annars á rétt á framlagi en leggur ekki á ncma 0,3% fasteignagjöld missir framlag sem nemur tvö- földum þeim muni sem er á tekj- unum af 0,3% og 0,4% gjaldinu. Sveitarfélög sem ekki eru háð Jöfnunarsjóði geta lækkað fast- eignagjöldin að vild en þurfa f staöin aö sjá af eðlilegum tekjum af hlunnindum og landi. Vandinn leystur með bellibrögðum Þaö eru þó ekki öll sund lokuð í þessum efnum og ef til vill er skilvirkasta lausnin á þessum vanda sú sem einn sveitarstjórnar- maður úti á landi nefndi viö blaða- mann,- í gamni fram sett. Um leið og menn greiða sín fasteignagjöld þá greiðir sveitarfélagiö þeim tiltekna upphæö til baka sem þóknun fyrir það að þeir hirða sjálfir sitt eigið rusl. Menn fá svo mismikiö fyrir sorphirðuna, allt eftir þvf hversu mikið skattarnir hafa hækkaö og hlunnindaeigend- ur fyrir sunnan fá ekki neitt! önnur leiö, og ef til vill þóknanlegri yfirvöldum er að sveitarfélög mega lækka eöa fella niður aðstööugjöld sem vfóast eru 1,3% en aðstööugjald er lagt á búrekstur en ekki hiunnindi. Ennfremur má nefna aö hér skiptir miklu máli hversu rétt hlunnindamat er f viökomandi sveit. Á undanförnum árum hefur veriö unniö að endurmati hlunn- inda og vföa hefur mat þeirra hækkað verulega. Nú verður enn brýnna að endurmat veröi gert allsstaðar þar sem mat er gamalt og úrelt. Óvænt uppákoma En vissi þetta enginn fyrir? Flestir þeir sem BÆNDA- BLAÐIÐ ræddi viö voru sammála um aö menn hefðu ekki gert sér grein fyrir misræminu sem myndi skapast f sveitunum en hækkun gjaldanna vissu forsvarsmenn Samband fslenskra Sveitarfélaga fyrir. Á hinn bóginn hefur sú þekking ekki komist til nærri allra oddvita sveitahreppanna og einn þeirra gaf þá skýringu á því að hann væri bóndi og oddvitastarfiö aukastarf hjá sér! Enn ein skýring á þvf hversu hljótt þetta hefur farið er að þessi breyting var hluti af miklu stærri pakka þar sem gerðar voru rót- tækar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þegar loks náðist samsstaða um alla anga þess máls var þaö svo viðkvæmt að menn voguöu sér ekki aö fara aö velta upp hugsanlegum göllum á einstökum þáttum af ótta viö að þá eyöilegöist allt málið. Misræmið tekst ekki að leiðrétta Þaö er ljóst að sú lausn sem Samband sveitarfélaga leggur fram í bréfi sfnu til félagsmálaráðherra og sagt er frá hér til hliöar leysir ekki allan vandann sem skapast af þessari breytingu. í samtali BÆNDABLAÐSINS viö Magnús E. Guðjónsson kom fram að ætla mætti aö vföa tvöfaldaöist nú fasteignaskatturinn f stað þess að þrefaldast. En misræmi þaö sem skýrt er hér að ofan stendur eftir sem áöur. Aðspurður kvaðst Magnús ekki vilja útiloka aö Samband sveitarfélaga beitti sér fyrir frekari breytingum í þessu máli, svo sem að lækka viðmiðanir Jöfnunarsjóðs, en benti á þá ágalla sem eru á því að lækka fasteigna- gjöldin, vegna hlunnindanna og jafnframt að sveitarstjórnir gætu átt fleiri leiðir til með samspili hinna ýmsu álagningarpósta þann- ig að greiðslubyröi hvers einstaklings yröi óbreytt. Þaö fylgir þessari flækju allri mikill vandi fyrir sveitarstjórnirnar þar sem um margar leiðir er að velja f hækkun og lækkun ein- stakra gjaldpósta og f hrepps- nefndum vfða um land sitja menn sveittir við og reikna fram og aftur, hvort borgi sig nú betur að lækka aðstöðugjaldiö eða fasteigna- skattinn, tapa hluta af jöfnunar- sjóösframlaginu eða halda því öllu og skattpfna sveitina. í öltum þess- um frumskógi hljóta menn enn aö velta þvf fyrir sér hvort stækka þurfi einingarnar, sameins smærri hreppa. Þaö er Ijóst að með sf- aukinni skriffmnsku, viðvarandi umbyltingum í skattamálum og vaxandi valmöguleikum á því sviði er verið að þrengja að hinum smærri einingum samfélagsins og á þaö væntanlega jafnt viö um fyrir- tæki sem sveitarfélög. Jafnframt er öll pappírsvinna aukin til muna. í þessu máli hlýtur launakostnaður vegna útreikninga, vegna endur- mats fasteigna og vegna fundar- halda að hlaupa á tugmilljónum og þeir sem ekki eru möppudýr hljóta að velta þvf fyrir sér hvort ekki megi hafa samfélagiö einfaldara, breytingarnar fátfóari, pappírana færri, skriffinnskuna minni og skattana að sama skapi lægri. EFTIR BJARNA HARÐARSON Tillaga Sambands Tslenskra sveitarfélaga Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum á föstudag (19/1) að fara þess á leit vif félagsmálaráöherra að hann legði í snarheitum fram breytingartillögu við lög um tekjustofna sveitarfélaga þannig að nýlegt ákvæði um að markaðsstuðull Reykjavíkur skuli gilda fyrir allt landið við álagningu fasteignagjalda NÁI EKKI TIL ÚTIIIUSA SVEITUM. Breyting þessi nái aftur ti sföustu áramóta þannig að þa sem búið er að leggja á eftii hinum nýju reglum, þar verð það leiðrétt.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.