Bændablaðið - 01.01.1993, Síða 6

Bændablaðið - 01.01.1993, Síða 6
ISLENSKA MJOLKIN ER BETRI EN ANNARSSTAÐAR - laus við flest aðskotaefni 1.TBL. 7. ARG. JAN. - FEB. 1993 Eigum við Islendingar hreinustu mjólk í heimi? Lengi höfum við viljað láta sem svo sé. Ekkert höfum við þó haft fyrir okkur í þessum efnum annað en þá tilfinningu að afurðir okkar séu hreinni af aðskota- efnum en gerist og gengur með Iandbúnaðarafurðir annarra þjóða. Ekki fyrr en nú við niðurstöður úr könnun, sem gerð var að frumkvæði Osta- og smjörsölunnar og Landssambands kúabænda. Loðskinnasýning á Suðurlandi: VIÐ TREYSTUM Á CLINTON Könnun þcssi fór fram mcð þeim hætti að sýni af gerilsneyddri nýmjólk voru tekin f öðrum hverj- um mánuði í mjólkurbúunum á Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og í Borgarnesi á tímabilinu frá maí 1991 þar til í maí 1992. Markmiðið með sýnatökunni var að leggja mat á meðaltalssamsetningu mjólkur á tilteknum samlagssvæðum. Með því koma samanlögð mengunar- áhrif framleiðslu og vinnslu fram og sýnin eru mælikvarði á þá afurð sem neytandinn kaupir. Sýnin voru rannsökuð hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Rannsóknarstofn- un í lyfjafræði og Geislavörnum ríkisins. Leifar þvottaefna: Bragð en ekki heilsuspillandi Leifar þvottaefna eru meðal þeirra aðskotaefna sem fundist geta í mjólk ef notkun þeirra fer fram úr þvi magni sem leiðbein- ingar segja til um og/eða nægileg skolun fer ekki fram að lokinni notkun þvottaefnis í mjaltakerfi. Samkvæmt erlendum rannsóknum gefa leifar þvottaefna, sem fundist hafa í mjólk, ekki tilefni til að óttast þurfi um áhrif þeirra á heilsu en þau geta auðveldlega haft óæskileg áhrif á bragðgæði og spillt fyrir framleiðslu á ostum og öðrum sýrðum mjólkurafurðum. Aðeins nítrat var mælanlegt Af þeim efnum sem notuð eru til hreinsunar mjaltatækja og búnaðar kom f ljós að nítrat var eina efnið sem finnanlegt var. Nítr- at getur borist f mjólk sem leifar af saltpéturssýru sem mikið er notuð til sótthreinsunar mjaltabúnaðar. í könnun Osta- og smjörsölunnar og Landssambands kúabænda kom fram að nftrat mældist f mörgum tilfellum 1 mg á kíló mjólkur, sem er svipað magn og mælst hefur er- lendis. Sum sýni er tekin voru í könnuninni leiddu mun minna nítratinnihald í Ijós eða aðeins um 0,3 mg nítrat á kíló mjólkur, sem sýnir að í mörgum tilfellum er mögulegt að draga úr nítratinni- haldi mjólkurinnar. Þótt nokkurt nftratinnihald hafi fundist í ís- Ienskri mjólk er það lítið magn boriö saman við það nftratmagn sem mælist í blaðgrænmeti og í unnum kjötvörum. Þá voru leifar lyfja í mjólk athugaðar og í Ijós kom að engar leifar þeirra lytja sem notuð eru fyrir mjólkurkýr, fundust í þeim sýnum sem tekin voru. Sömu sögu er að segja hvað þungmálma varðar. Engin áhrif þeirra fundust í íslensku mjólkursýnunum en lítil! hluti þungmálma í fóðri skiíst út í mjólkina eða aðeins einn á móti þúsund. Sveppaeitur fannst heldur ekki í mjólkursýnunum og er mat rannsóknaraðila að ekki þurfi að óttast aflatoxín, sem myndast getur í myglusvcppum, í íslenskum mjólkurafurðum. Geislavirkra efna og klórefnissambanda gætti cinnig mjög lftið í mjólkursýnunum. Styrkir stöðu afurðanna Aðstandendur rannsóknar- innar telja að niðurstöður hennar komi ekki á óvart. Mengun vegna aöskotaefna í fóöri sé ekki mælanleg og leifar þvottaefna finnist heidur ekki. Þessi úttekt ætti því að styrkja stööu fslenskra mjólkurvara á hinum innlenda markaði og auka tiltrú neytenda í framtíðinni. Slfk meðmæli geta einnig aukiö lfkur á sölu fslenskra mjólkurafurða á erlendum mörk- uðum í framtfðinni. ^ Byggt á erindi Ólafs Reykdals og Guðjóns Þorkelssonar, Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins, á ráðunautafundi 1993. ræklin sem vér þurfum að leggja sem mcsta stund á. Hún þarf að breytast smátt og smátt þannig, að búfénaðurinn sé fóðraður á rækt- uðu grasi, ekki á útheyjum nema þar, sem flæöiengjahey er, sem oft er jafngildi bestu töðu...." Að rétta við landbúnaðinn III - Ríkisvaldið tt Mikill misskilningur cr það, sem ýmsir halda fram, að löggjafarvald- ið geti ekki lagt tiltölulega mestan skerf til viðreisnar landbúnaðarins. Það gerir þaö auðvitað mest ó- beinlínis með hagfelldum lögum fyrir landsmenn og fjárveitingu til ýmsra landbúnaðarframfara. Hverjum öðrun en löggjafanum má þakka lffiö f búnaöarskólunum, sem óbeinlínis leiða landbúnaðinn áfram, hvað sem ósanngjarnir menn um búnaðarskólana segja. Að rétta við landbúnaðinn IV - Markaðsmálin I! Ég játa það, að aðalstoð landbún- aðarins eru bændurnir sjálfir. En meginþorri bænda, stendur nú ráðlaus, vita ekki hvað þeir eiga að gera til þess aö tekjur búsins svari gjöldum þess, og það er mjög náttúriegt. Nú er orðin svo mikil breyting hér á landi frá þvf sem var fyrir fimm til tfu árum að sama "Af þessari sýningu að dæma eru skinnin á uppleiö, bæði gæði þeirra sjálfra og eins verk- unaraðferðirnar. I>á er skinna- verð almennt á uppleið, þó það sé langt því frá að vera viðunandi. Tilgangurinn með þessari sýningu er að fá umræðuna um þessa bú- grein upp á hærra plan og skapa um hana jákvæðari umræðu en verið hefur" Þetta sögðu þau Sigurður Jónsson í Ásgerði í Hrunamanna- hreppi og Hugrún Valdimarsdóttir á Kvíarhóli í Ölfusi í samtali við blaðamann BÆNDABLAÐSINS, en um síðustu helgi var haldin í félagsheimilinu Þingborg í Hraun- gerðishreppi sýning, sem Loðdýra- ræktarfélag Suðurlands stóð að. Þar voru sýnd loðskinn frá 22 loð- dýrabúum í landinu. Sýningin var fjölsótt, en auk þess að þar væru loðskinn, bæði af ref og mink, sýndu sunnlenskar blómarósir loðskinnapelsa frá Eggert feld- skera. Að sögn þeirra Sigurðar og Hugrúnar eru enn starfandi f landinu 80 loðdýrabú. Skinnin á sýningunni komu frá 14 búum á búskaparlagið dugar nu ekki og menn hafa hér vanist. Fólkshaldið afardýrt, álögur á búskapnum miklu meiri, og það í pcningum. Eyðslan stórum meiri í öllu, en á hinn bóginn erfiðara að koma bús- afurðum í nokkurt verö, síst pen- inga. Eru það nú ekki ósanngjarn- ar kröfur til bænda, að þeir lagi þetta, án hjálpar löggjafarvaldsins. Eru nokkrar líkur til þess, að bændur sjáifir geti útvegað sér markað fyrir búsafurðir án hjálpar, eða gjört fólkshaldið ódýrara? Ég segi nei...." Notinvirkni og reglusemi við skepnuhirðingu Gleymið því ekki, að notinvirkni og reglusemi við skeþnuhiröingu, eru bestu kostir hvers-fjármanns. Þaö sparar fóður, að hafa hlýtt í húsunum, að hafa engan umgang í þeim milli mála, aö gefa skepnun- um ávallt í sama mund, og sjá um að allar fái þær jafnt fóður sitt, sem eru í sama húsi, scm má með því, að strá í flýti ofurlillu heyi allstaðar á jötuna, svo skepnurnar veröi rólegar á meðan aðalfóðrið er látið snyrtilega f jötuna, annars ryðst féö á jötuna sér til óhægöar. II Húsmenn og tað í íyrirspurnardálki Plógs leit- uðu menn svara við hinum ýmsum vandamálum er upp komu f sveit- um - þar á meöal þessu: Suðurlandi, fjórum úr Borgarfirði, þremur úr Vopnafirði og einu af Jökuldal. Veitt voru sérstök verðlaun á sýningunni fyrir bestu skinnin. Eyþór Arnórsson á Fer- stiklu á 1 Ivalfjarðarströnd fékk verðlaun fyrir bestu refaskinnin og Búi Vífilsson á sama stað fyrir minkaskinnin. Þrír dómarar dæmdu skinnin og tóku þeir tillit til ýmissa atriða svo sem þels þeirra, litar, verkunar, hreinleika, stærðar og fleiri atriða. Eins og áður segir er loð- skinnaverð í heiminum almennt á uppleið um þessar mundir og skemmst er að minnast frétta af góðu verði sem fékkst á uppboöi í Kaupmannahöfn, ekki alls fyrir löngu. Siguröur Jónsson segir veröið þó langt því frá að vera eins og vera þyrfti. Verðið þyrfti aö hækka aö minnsta kosti f þrígang svo bændur færu að verða sáttir viö sinn hlut. "Sfðan er skinnaverðið f Arner- íku á uppleið - á sama tfma og verið er að endurreisa efnahags- Iffið þar. Þvf leggjum við traust okkar á Clinton," sagði Sigurður Jónsson. -sbs. II Er húsmönnum ckki heimilt, cf þeir hafa heimaskipti, að flytja með sér tað undan fénaði sínum, er þeir kaupa fóður fyrir?" Svar: "Hvorki má flytja hey eða áburð af jörðum, ncma svo sé umsamið. Þó hefur ábúandinn naumast tilkall til þess áburðar, sern ekki er safnað f hans cigin húsum cða jarðarinnar. Stendur það alveg á sama hvort heyið er keypt af jörðinni, eða af öðrum jörðum; taðið á að falla til jarðarinnar, þar scm þvf cr eytt cigi að sfður." Um hægindahús - hagnaður og þrifnaður Þrifnaöur á sveitabæjum var til umræðu urn aldamótin ekki síður en nú þótt vandamálin væru önn- ur. II Hægindahús hafa þýðingu að fleiru leyti, en er til áburðarins tekur. Hvað þrifnað snertir, þá eru þau öldungis ómissandi. Það sæm- ir sér afar illa að sjá allt útatað í mannasaur, undir görðum og veggjum bæjarhúsanna. Ber það vott um laklcgan þrifnað, og eykur ódaun og óhollustu. En hvar á fólkið að hægja sér, þegar ekkert hægindahús er á bænum? Skortur á hægindahúsi er því tilfinnanlegri, sem heimilið er stærra og gest- kvæmara. Þó eigi væri annars en en þrifnaðarins vegna, þá ættu menn ekki að horfa í það, að setja upp hægindahús; þau geta heldur aldrei kostaö mikið. I»I LANDBÚNAÐURINN ER KOMINN Á FALLANDI FÓT - Aldamótahugleiðingar Sigurðar Þórólfssonar ritstjóra Kétt fyrir sföustu aldamót, árið 1899, hóf nýtt landbúnaðarblaö gungu sína hér á landi. Hét það Plógur og var gefið út í Reykjavík. Ritstjóri þess og ábyrgðarmaður var Sigurður Þórólfsson. í ritinu er að finna greinar um ýmis fagleg efni er lutu að land- búnaöi þeirra tíma en einnig er fjallað um almenna stöðu land- búnaðarins í þjóðfélaginu og land- búnaðarpólitík eins og hún var á þeim tíma. Bændablaðið grfpur hér lítillega niður í landbúnaöar- umræðuna um sfðustu aldamót og lætur lesendum sínum eftir að dæma um hvort þar svipi einhverju til þeirra umræðna sem fram fara í dag. Að rétta við landbúnaðinn I - Ameríkuferðir & óáran n Landbúnaðurinn er kominn á fall- andi fót, segja menn. Því miður er það satt. Hann er að því leyti á valtari fæti nú, en oft áður hefir verið, að þarfirnar eru orðnar svo ærið margar og kostnaður við bú- skapinn miklu meiri, bæði hjúa- hald og ýmis opinber gjöld, sem alltaf aukast...." tl Af þessu leiðir, að margir búa með hangandi hendi, viljalausir og von- lausir, og þá er ekki von á, aö vel fari. Ég hef nýlega fcngið bréf frá Ameríku, þar sem bréfritarinn seg- ir meðal annars: Hvað hugsa bændur heima, aö vilja rífa sig frá búum sfnum og fiytja hingað vcstur. Hér er fólk hópum saman atvinnulaust. Bændur verða að vinna baki brotnu til þess aö geta lifað nokkurn veginn þvf lífi, sem hér tíðkast...." Að rétta við landbúnaðinn II - Grasræktin ti Á því er enginn efi, aö grasræktin er sú ábatasamasta atvinna á landi voru; það sýnir best afkoma fjölda einyrkja bænda, sem hafa mikla ómegð en sáralítinn bústofn. Og þó segja megi að líf margra þessart bænda sé oft lítilfjörlegt, þá vita það þó allir, aö til þess að fram- færa mörgum börnum til fæðis og klæðis þótt fátæklegt sé þarf ekki neitt smáræði. Það er þvf gras-

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.