Bændablaðið - 01.01.1993, Qupperneq 20

Bændablaðið - 01.01.1993, Qupperneq 20
Ólafur á Þorvaldseyri og Akrafóður í Landeyjum: FLYTJA SAÐKORN INN FRÁ NOREGI þær komið úr Eyjafirði, austan af héraði og úr Kjós. "Það er hugur í kornbændum," sagði Ólafur. "Við erum þarna að flytja inn sáðkorn sem er ódýrara en tíðkast hefur til þessa. Áburðarverð er heldur að lækka á sama tíma og verð á er- lendu fóðri hefur farið heldur hækkandi. Hér undir Eyjafjöllum er enginn klaki í jörð og það gerir "Viðbrögð við þessu hafa verið mjög góð og það hafa borist pant- anir á 40-50 tonnum víða að af landinu, þó aðallega héðan af Suðurlandi." Þetta sagði Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Austur-Eyjaqöllum, í sam- tali við BÆNDABLAÐIÐ, en hann ásamt fyrirtækinu Akra- fóðri í Austur-Landeyjum ætla nú í vor að flytja inn, mill'liðalaust, sáðkorn frá Noregi. Af þessum pöntunum er ljóst að kornrækt er f stórkostlegri upp- sveiflu og kornbændur, sem hafa til skamms tíma talið fáeina tugi, eru nú nær hundraðinu og mun vafalftið fjölga mikið á þessu ári. Hafa pantanir borist frá nærri 60 aðilum og f sfðari hluta febrúar voru þær enn að berast. Bændurnir ætla í ár að flytja inn fjórar tegundir af korni. Það eru í fyrsta lagi tvær af tveggja raða byggi, þ.e. Lilly og Gunilla og svo Basme sem er sex raða bygg sem einnig má nota sem grænfóð- ur, og loks Pol hafra og þá má einnig nota f sama tilgangi. Sfðast- nefndu tegundina segir Ólafur Eggertsson að megi ennfremur nota sem grænfóður. Marí-korn, sem mikið hefur verið notað af bændum, verður hins vegar ein- vörðungu flutt inn af Glóbus í ár. Ólafur Eggertsson segir að þessi beini innflutningur þýöi allt aö 30% lægra verð en gerst hefur til þessa. Hafi pantanir á korni, eftir þessum nýju leiðum, borist mest af Suðurlandi en einnig hafi Kornbændur hafa til þessa notað mest af korninu til naut- gripaeldis en þessa mynd tók blaðamaður BÆNDABLAÐSINS af Sævari Eiríkssyni í Norðurgaröi á Skeiðum en hann notar kornið til að fóðra á því svín. Sævar er byrjandi í kornræktinni, ræktaði korn á 2Vá hektara í fyrra og missti hluta af upp- skerunni þá undir snjó. Það sem náðist setti hann í súr og hefur það reynst gott svínafóður. Hann ætlar að bæta við í sumar og setja korn í að minnsta kosti 5 hektara en í Norður- garði er vaxandi svínabú með um 20 gyltur og verða 30 til 35 þegar svínahúsiö er fullbúiö. Þetta hús var áður fjárhús, byggt seint á sjöunda áratugnum, en hefur nú verið stækkað og endurbyggt mikið til að þjóna nýrri búgrein. okkur auöveldara fyrir og reikna má með að við förum að sá korni um mánaðamótin aprfl-maí, eða þar um bil," sagði Ólafur. Fyrr f vetur héldu kornbændur og ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands meö sér fundi um kornrækt og þar skýrðu þeir sfðar- nefndu frá niöurstöðum úr til- raunaræktun á sfðasta ári. Þar kom fram að þrátt fyrir slæmt kornsumar í fyrra sé reynslan ekki svo slæm og f reynd megi rækta korn f flestum árum. -sbs. Sannkallaður tölvubóndi í blaðinu Borgfirðingi birtist nýlega frétt af bóndanum Sverri Guðmundssyni í Ilvammi f Norðurárdal sem hefur tekið upp þá nýstárlegu aukabúgrein að selja tölvur. í Hvammi eru 300 kindur á fóðrum, bóndinn kennir við Tónlistarskóla Borgarfjarðar, selur tölvur og vinnur við forritun uppi í kvistherbergi í Hvammi. Segja má að þarna hafi fjarvinnslu- draumurinn orðið að veruleika... Gærur og innmatur duga fyrir sláturkostnaöi í haust cr leið fóru 15 íslenskir framámenn í landbúnaði í kynnisferð til Bretlands til þess að afla upplýsinga um breska sauðfjárrækt, en Bretar eru stærstu kindakjötsframleiðendur Evrópubandalagsins. í skýrslu frá heimsókninni er meðal annars sagt frá heimsókn f sláturhús í Birmingham. Hús þetta er mjög tæknivætt og afkastamikið, þar er slátrað allt upp í 20 þúsund fjár á viku og er sláturkostnaöur á kind 3,5 - 5,0 pund. (330 - 475 ísl.kr.) Gærur og innmatur standa undir þessum kostnaði en til samanburðar þá er sambærilegur kostnaður hér á landi 1500 til 3000 kr. eftir því hvernig reiknað er... RÉTTUR BÍLL FYRIR VITLAUST VEÐUR! MITSUBISHI L 200 Vandaður fimm manna fjölnota bíll fyrir alla sem vilja ekki láta veður og ófærð hindra sig í starfi eða leik. * •- “ ~ • • E1 HEKLA Laugavegi 170 -J74 • Sími 69 55 00 Aukabúnaður á mynd, t.d. grind, álfelgur og aukaljós, er ekki innifalinn í verði. MITSUBISHI L 200 er sannur þjarkur til vinnu og fjallaferða. Verð kr. 1.593.000. Þér eru allir vegir færir í MITSUBISHI L 200. MITSUBISHI Fremstur meðal jafningja

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.