Bændablaðið - 01.08.1994, Side 7

Bændablaðið - 01.08.1994, Side 7
3. TOLUBLAÐ - SEPTEMBER 1994. Halldór Blöndal í viðtali við Bændablaðið muni fœra neytendum betri daga; innflutningur landbúnaðaraf- urða muni leiða afsér lœgra vöru- verð og samkeppnin ýti við ís- lenskum bændum og vinnslu- aðilum á þann hátt að þeir framleiði betri landbúnaðar- vörur. Er ekki hœtta á að hörð verndarstefna geti skaðað bœnd- ur meira hvað almenningsálit og ímynd varðar og þar með mark- aðsmöguleika þeirra en takmark- aður innflutningur myndi gera. Verður ekki að finna einhvern milliveg í þessum efnum? „Ákveðinn hópur manna og sumir fjölmiðlanna í landinu hafa beinlínis rekið áróður íyrir frjáls- um og hömlulausum innflutningi landbúnaðarafurða og varið fjár- munum til þess að ófrægja bænda- stéttina. Auðvitað hefúr þessi á- róður ákveðin áhrif og hann hefur skapað neikvæð viðhorf gagnvart bændum. í þessu efni er þó eink- um um að ræða spuminguna um hvort leyfa eigi innflutning á hráu kjöti og kjötvörum án tillits til hugsanlegra afleiðinga fyrir bú- pening landsmanna. Við getum ekki horft framhjá því að íslenski bústofninn hefur mikið gildi í sjálfu sér. Ég hef áður komið að gildi hans fyrir framleiðslu á hreinum og náttúrulegum afúrð- um til neyslu hér heima og einnig til hugsanlegs útflutnings. Hann hefur einnig mikið gildi fyrir ferðaþjónustuna sem er ört vax- andi atvinnugrein í landinu. ís- lenski bústofninn er einsktakur. Þetta á við um sauðfjárslofninn, hrossastofninn og nautgripa- stofninn að mestu. Islenskt búsfé hefur nær eingöngu verið kynbætt innanlands. Aðeins í örfáum und- antekningartilvikum hafa kyn- bætur verið sóttar til annarra landa. Því erum við með ákveðin verðmæti í höndunum sem við eigium ekki kost á að endur- heimta ef við fómum þeim á altari innfluttra búljársjúkdóma. “ Framleiðendur verða að STANDA SAMAN Tekjur margra bœnda, einkum sauðfjárbœnda, hafa minnkað verulega. Afurðastöðvarnar eru illa staddar - sumar raunar við gjaldþrot ef ekkert kemur til bjargar. lnnflutningskrafan er við bœjardyrnar og spurning um hvort við getum hallað hurð að stöfiim í því efni. Boðorðið er að mœta harðnandi markaðsað- stæðum með aukinni hagrœð- ingu. En miðað við aðstœður vakna spurningar um hvernig farið verið að í því efni? „Skýrsla Valdimars Einarsson- ar um kjötmarkaðinn segir fleira en að greina frá áhuga Nýsjálend- inga og markaðathugunum þeirra á íslenska kjötmarkaðnum. Þar er einnig fjallað um þeirra eigin kjötmarkað. Þeir hafa sín sölu- samtök þar sem bændur koma sameinaðir fram og standa saman að markaðsstarfi. Þar er að finna skýringuna á góðum árangri þeirra. íslenskir bændur geta ekki mætt þessum aðstæðum sundr- aðir. Að þessu leyti er ég sam- vinnumaður og kaupfélagsmað- ur. Ég tel að framleiðendur land- búnaðarafurða verði að standa sameinaðir í afurðasölumálum. Ég get nefnd Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna sem dæmi um slíka samvinnu. Þar koma framleið- endurnir sameinaðir fram og starfa að markaðsmálum. Slík samvinna þurrkar einnig út þá áhættu sem fylgir viðskiptum við sláturhús sem standa höllum fæti.” VÖRN í GÆÐUM OG MATVENDNI En er hugsanlegt að bœndur eigi sér einhverja vöm í gæðum framleiðslunnar og matvendni landsmanna, sem telja sitt lambakjöt best? „Auðvitað er ákveðin vörn fólgin í þessu. Aðalatriðið er að margir Islendingar kjósa íslenska kjötið fremur en allt annað og eru reiðbúnir að gefa meira fyrir það. Ég segi eins og Ingólfúr á Hellu. að ég hef ekki smakkað neinar erlendar landbúnaðarafúrðir sem líkjast þeim íslensku. En þessi vöm er takmörkuð ef ekki tekst að halda verðlagningu í skefjum. Landbúnaðurinn hefur notið fjarlægðarvemdar en samkeppn- isiðnaðurinn átt undir högg að sækja eftir því sem frjálsræðið hefur aukist.” BæNDUR ÁKVEÐNIR í AÐ BJARGA SÉR Haft hefur verið eftir ferða- þjónustubónda að hann varði ekkert um verð á kjöti. Hann selji sitt kjöt sem máltíðir á diski. Við það vakna spurningar um hvort fleiri sölumöguleikar séu að opn- ast á innanlandsmarkaði en þeir sem til þessa hafi verið nýttir. Einnig vakna spurningar um heimasölu á landbúnaðarafurðum og hvort þœr hugmyndir stangist ekki á við söluaóferóir Nýsjálendinga sem vitnað hefur verið til og nýgeróa samþykkt Stéttarsambands bænda um ein kjötsölusamtök í landinu. „Ég get hiklaust svarað því játandi að ferðaþjónustan er vax- andi atvinnuvegur og hvað bændur varðar þá eru ýmsir möguleikar fyrir hendi - raunar galopnir. Einn þeirra er að nýta ís- lenskar afurðir til að framleiða rétti og bjóða ferðamönnum. Og þar getur fleira komið til en lamba- og nautakjötið. í því efni má einnig nefna íslenskar fisk- eldisafúrðir og sjálft blávatnið. Ég hef áhuga á að bændum verði gert kleift að selja afurðir að vissu marki heima á búum sínum. Með því geta þeir aukið tekjur sínar og þetta hefúr einnig mikið gildi fyrir ferðaþjónustuna. Eflaust myndi sala af þessu tagi einkum verða í höndum þeirra bænda sem stunda ferðaþjónustu en þó er ekkert sem mælir á móti því að aðrir bændur bjóði einnig þessa þjónustu. Með þessu er ég ekki að leggja til að heimaslátrun verði tekin upp heldur að öllum kröfúm um hrein- læti og heilbrigði verði fúllnægt eins og um útflutning væri að ræða. Nei - ég tel ekki að slík sölu- starfsemi stangist á við hug- myndir bændasamtakanna um sameinuð sölusamtök. I þessu sambandi erum við að tala um nýjan markað - markað sem að rnestu hefur verið óunnin til þessa en ef hugmyndir manna og á- ætlanir um aukna ferðaþjónustu standast þá verður þama um vax- andi markað fyrir matvælafram- leiðslu að ræða. Ég tel að bændur séu opnir fyrir þessum mögu- leikum eins og raunar öðru sem getur aukið sölu og neyslu afúrða þeirra því bændur eru ákveðnir í að bjarga sér." Saga til næsta bæjar Heyskurður og heimaslátrun verður leikur einn með Alligator söginni frá Black & Decker. Hún er öflug, fljótvirk og handhæg og vegur bara 4 kg. #BLACK&DECKER —^lliðator Ómissandi gripurá hverju sveitaheimili. Sölustaðir um land allt. SINDRI - sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • 105 REYKJAVIK • 62 72 22 Kartöflubændur ♦ POKAGERÐIN / Baldur sf. % 825 Stokkseyri <1 S: 98-31310 ***..■■••* Margnota stórsekkir á ótrúlegu verði. Taka 500 kg. af kartöflum. Einnig aðrar tegundir poka á mjög góðu verði. B A R U P \j A S T Eigum til á lager og sníðum eftir máli báruplast. Vel gegnsætt. Tilvalið á þök, veggi, skjólveggi, handrið o.m.fl. Einnig: Plötujárn Flatjárn Rúnnjárn Vínkiljárn Öxulstál Efnisrör Rafsuðuvír Rafsuðuþráður J. HINRIKSSON HF. Súðarvogi 4 • Pósthólf 4154 • 124 Reykjavik • Símar: 814677 / 814380 • Fax: 689007 • Telex: 2395 ALLT TIL RAFHITUNAR! | Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. ELFA-VARMEBARONEN Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir Hitatúba / rafketill 12kw, 230v. 30-300 lítra, útvegum aðrar stærðir 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt frá 400-10.000 lítra. að 1200kw. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þrautreyndur við íslenskar aðstæður. HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMALAR. ///■ Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 - S 622901 og 622900

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.