Dagsbrún - 01.09.1989, Síða 31
ORLOFSLAUNAKRAFA
Launþegar sem vinna hjá atvinnurekendum sem eiga í greiðsluerfið-
leikum, geta leitað til félagsmálaráðuneytisins vegna greiðslu á orlofi.
Eyðublað vegna orlofskrafna liggja frammi á skrifstofu Dagsbrúnar og
þar er hægt að fá nánari upplýsingar, en hafa ber í huga að ekki er hægt
að leggja fram orlofslaunakröfu fyrr en Ijóst er að orlofslaun verða ekki
greidd, þ.e. við upphaf orlofs.
LÍFALDUR
Við mat á starfsaldri til launa telst 21 árs aldur jafngilda 1 árs starfi í
starfsgrein, en 24 ára aldur gefur rétt til launa samkvæmt næsta starfs-
aldursþrepi þar fyrir ofan.
VAKTMANNASAMNINGUR
í síðustu kjarasamningum var samkomulag um að gerðir yrðu almennir
samningar fyrir vaktmenn í sumar. Þeir samningar hafa ekki tekist
ennþá, en ef þeir takast á næstunni munu þeir verða birtir í félagsblað-
inu sem kemur út í september.
AÐALFÉLAGI — AUKAFÉLAGI
Enginn er fullgildur félagsmaður nema hann hafi
undirritað inntökubeiðni.
Inntökubeiðnir eru á skrifstofu félagsins, hægt er
að fá þær sendar í pósti, ef óskað er og trúnaðar-
menn á vinnustöðum eiga einnig að hafa þær
handbærar.
Aðeins aðalfélagar hafa atkvæðisrétt í félaginu,
rétt til bóta úr Styrktarsjóði, líftryggingu sem félag-
ið greiðir og fleira.
Allir þeir sem vinna verkamannavinnu á félags-
svæði Dagsbrúnar eiga rétt á að gerast aðalfélagar.
31