Vér mótmælum allir - 01.03.1946, Síða 5

Vér mótmælum allir - 01.03.1946, Síða 5
BARtíl FRIÐRIKSSON, stud. jur. Við viljum ekki erlendan her á íslandi Nokkrir menn lrafa sýnt bæði í ræðu og riti, að þeir vilja, að erlendur her verið hér áfranr landinu til verndar. Þeir álíta, að við geturn ekki staðið einir og óstuddir — getum ekki verið sjálfstæð þjóð — virðist jafnvel þykja sómi fyrir landið dvöl hins erlenda hers. Þessir menn, þessir mömmudreng- ir, vilja endilega eiga einhverja stóra og volduga móður, sem þeir geti „hallað sér að“ eins og þeir kalla það. Þessi móðir er Bandaríki Norð- ur-Ameríku. Það er vissulega ómetanlegt fyrir íslendinga að hafa vináttu jDessarar voldugu og vinveittu lýðræðisjrjóðar. En vináttan má ekki vera of dýru verði keypt. Hún má ekki vera á kostnað frelsis og fullveldis landsins. Þeir amerísku íslendingar, sem vilja áfram- haldandi hervernd Bandaríkjanna, virðast hvorki trúa á ísland, íslendinga, frelsi Jrjóðarinnar eða friðinn í heintinum. Þeir virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því, að ef til styrjaldar kæmi í framtíðinni, myndu herflokkar hér vanmegnug- ir til varnar þeinr voðaöflum eyðileggingarinn- ar, sem hernaðarjrjóðir nútímans hafa yfir að ráða. Aftur myndi her í landinu góð ástæða fyrir árásir á landið. Hlutleysi myndi herjum sterk- ara. Engin hernaðarjrjóð rnyndi varpa atonr- sprengju á ísland til að mvrða hlutlausa íbúa þess. Við höfum heyrt, að samningar standi nú yfir milli stjórnar íslands og Bandaríkjanna. Við vitum ekki, um hvað þeir fjalla. Þjóðin fær ekkert um Jrá að vita. „Það er ekki talið heppilegt“. En íslenzka þjóðin veit, að hún hefir ríkar skyldur við umheiminn, friðinn í heiminum og síðast en ekki sízt land sitt og hið langþráða og dýrkeypta frelsi þess. Það væri og ófagurt til afspurnar fyrir íslendinga, ef þeir veittu einu herveldi ítök og herstöðvar hér. Myndu ekki þær Jrjóðir, sem til sögu og frelsisbaráttu þjóð- arinnar þekkja, fyllast fyrirlitningu á hinum íslenzku verrfeðrungum? Myndum við gefa heppilegt fordæmi með veitingu herstöðva? Myndi Jrað verða gott til samkomulags þjóð- anna; ef við höguðum okkur þannig? Þessum spurningum verður að svara neitandi. Ef verið er að gera einhverja samninga við önnur ríki um kvaðir á landinu eða skerðingu á frelsi þess, þá viti það allir, að því standa gegn þeir menn, sem góðir íslendingar teljast. Sumir Bandaríkjamenn segja, að hér verði að hafa her þrátt fyrir gerða samninga um brott- flutning lians og yfirlýsingar um vernd smá- þjóðanna. Margir eru því Jró andvígir, þar á meðal viðskiptamálaráðherrann. Það ætti að vera mikill siðferðilegur styrkur fyrir Jrá Bandaríkjamenn, sem vilja flytja her- inn brott, að vilji íslendinga sjálfra komi sem bezt í ljós. Hér duga, af hálfu íslendinga, engar vangaveltur, sem rugla menn í því, sem er að gerast. Skýra afstöðu Jrarf að taka gegn ölhi því, er skert getur sjálfstæði landsins. Við stúdentar höfum ráðizt í útgáfu Jressa blaðs, vegna þess að okkur þótti dagblöðin held- ur fáskiptin og tómlát um Jressi efni. En slík mál þarf að ræða á sem ljósastan hátt, svo að liver og einn geti myndað sér skoðanir á þeim, því að þau snerta alla landsmenn. Hér verðuin við íslendingar að standa sam- einaðir, og svo, hyggjum við, að sé nteð fáum en vel kunnum undantekningum. Innan vébanda ríkisins eru því miður andlega spilltir og svefn- höfgir menn, Jrjóðlegir undanvillingar, sem vilja korna landinu undir erlent vald. Varla verður þó sagt, að allir, sem í þessum flokki eru, séu þar beint af illum hug til lands síns, heldur eru þeir svo fjötraðir í fávizkunnar hlekki og gleymskunnar dá, að þeir álíta erlenda VÉR MÓTMÆLUM ALLIR! 5

x

Vér mótmælum allir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vér mótmælum allir
https://timarit.is/publication/937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.