blaðið - 07.06.2005, Síða 1

blaðið - 07.06.2005, Síða 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616 Hive Þráðlaust internet Lite 4GB niðurhal 8Mb tenging 3.990 Á MÁNUÐI * 'ty-v. 12 mtnafla w mtng. Konur eiga erfiðara Hvar er bensínið með ódýrast? hætta aSMrbýÍya^^^ Q6G0 Grimunnar -bis.25 m -Us.10^^"' Q-ftM H Kadare fékk|3JJ32Hl2Hœ -bls-24 Ritstjórnar- og auglýsingasimi: 510 3700 • bladid@vbl.is 22.TBL. l.ÁRG. ÓKEYPIS Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur Sími 510-3700 bladid@vbl.is ISSN 1670-5947 FRJALST OC OHAÐ ÞRIÐJUDAGUR, 7. JUNI. 2005 ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga blaðið= Allt að verða klárt fyrir tónleika Iron Maiden í kvöld Þorskkvóti verður minnkaður „Rangar áherslur í fiskveiðistjórnun” segir Arthur Bogason Lagt er til að þorskkvótinn verði minnkaður um 7.000 tonn á næsta fiskveiðiári í nýrri skýrslu um nytja- stofna sjávar, sem Hafrannsóknar- stofnun kynnti í gær. Þar er lagt til að aflamark verði sett í 198.000 tonn, miðað við 205.000 tonn á yfirstand- andi veiðiári. í skýrslunni segir að vísbendingar séu um að stofninnn sé hættulega nálægt því að fara undir stofnstærð, sem gæti varanlega skað- að endumýjunargetu stofnsins. í skýrslunni er ennfremur lagt til að ýsukvótinn verði aukinn - fari úr 90.000 tonnum í 105.000 tonn og að ufsakvótinn verði ennfremur auk- inn - fari úr 70.000 tonnum í 80.000 tonn. „í heildina er skýrslan nokkuð góð,“ segirÁrni M. Mathiesen. „Henni svip- ar til skýrslunnar í fyrra nema hvað stofnar ýsu og ufsa eru sterkari. Hvað þorskinn varðar er stofninn á svipuðu róli og undanfarin ár.“ Á að auka veiðar - eða minnka? Greina má blendin viðhorf vegna nið- urstöðu skýrslunnar. Hafrannsókn- arstofnun leggur til að dregið verði úr veiðum á þorski til að reyna að styrkja stofninn og í sama streng tek- ur Ámi M. Matthiesen sjávarútvegs- ráðherra. Það era hins vegar margir sem gagnrýna þetta sjón- armið. „Það er afar furðulegt að við skulum standa frammi fyrir því að þorskurinn hafi ekki nóg að éta,“ seg- ir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, og vitnar þar í skýrsluna um að meðal- þyngd 4-8 ára þorsks hafi lækkað að meðaltali um 13% á undanfórnum óram og um 20% hjá 9-10 ára þorski. „Ég held að það megi alveg auka veiðar. Mitt álit er að ef menn ætla að setja þorskinn á verður hann að hafa eitthvað að éta.“ í sama streng tekur Arthur Boga- son, formaður Landssambands smó- bátaeigenda. „Mér sýnist að þorskstofninn sé jafnstór og hann var órið 1985 þeg- ar kvótakerfið var sett á, með það að markmiði að stýra veiðum og byggja upp fiskstofna. Hins vegar er ýsan í gríðarlegri uppsveiflu þrátt fyrir að umframkeyrsla í veiðum síðustu sex til sjö árin sé mun meiri en í þorsk- inum, og það sama á við um ufsann. Ég lít því þannig á að áherslumar í fiskveiðistjómuninni séu rangar." Starfsmenn Hafró á starfslokasamning Kristinn Pétursson, fram- kvæmdastjóri Gunnólfs ó Bakkafirði, var harðorð- ur þegar Blaðið ræddi við hann í gær. „Mér er stórlega mis- boðið. Það á að gera starfs- lokasamninga við mennina sem hafa klúðrað þessu síðustu 25 ár. Svo skul- um við ræða framhaldið. Það hefur alltaf mistekist að geyma fiskinn í sjónum. Þar er hann annaðhvort ét- inn eða hann drepst. Eina leiðin er að auka veiðar," sagði Kristinn. Sjávarútvegsróðherra er þessu ekki sammála. „Það eru engar töfralausnir í þessu. Við verðum að beita skynseminni og nota þau vísindi sem við höfum á hverjum tíma til viðmiðunar. Það þýð- ir ekki að vera ósammála visindum og heimta bara að veiða meira," sagði Árni M. Mathiesen. ■ 11----- „Þorskur- inn hefur ekki nóg að éta“ Gæslan á Saga-class - bls. 4 tf 4. Apl Lokað vegna skorts á starfsfólki - bls. 6 Framboðtil Öryggis- ráðs SÞ í uppnámi - bls. 2 Á vetnishjóli umhverfis ísland - bls. 6 Hellur steinar STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is ^&Skandia ^ÉPBanken „Erum tæki- færissinnaðir í jákvæðri merkingu“ - segir Hreiðar Már Sig- urðsson hjá KB banka um hugsanleg kaup á SkandiaBanken Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri KB banka, segir fjárfest- ingarstefnu bankans á erlendri grundu ekki hafa breyst þótt hann hafi lýst yfir áhuga sínum á SkandiaBanken í flölmiðlum. Til þessa hefur KB banki að- allega beint sjónum sínum að fyrirtækjabönkum en Skandia- Banken þjónar fyrst og fremst einstaklingum, en eins og Blaðið greindi frá í gær var það haft eftir Hreiðari Mó að peningar yrðu ekki fyrirstaða ef KB banki ásældist SkandiaBanken. „Við höfum ekki horft sérstak- lega til banka á neytendamark- aði ytra - okkar áherslur hafa legið annars staðar - en ef okkur býðst gott tækifæri þó útilokumvið ekkert og ef banki eins og Skand- iaBanken er boðinn til sölu þá myndum við áreiðanlega Hreiðar Már Sig- gaumgæfa urðsson, forstjóri hann vel. Við KB banka. eram alltaf vakandi fyrir góðum kostum og við höfum sagt að við séum tækifærissinnaðir í jákvæðri merkingu þess orðs.“ Aðspurður um hvernig orð- rómur um hugsanleg kaup KB banka á SkandiaBanken hefðu komið til sagði Hreiðar Már að það væri vinsæl íþrótt í sumum kauphöllum að spyrða bank- ann við hvers kyns hræringar á bankamarkaði og í þessu tilviki hefði KB banki nýverið aukið hlut sinn í Skandia. „Við birtumst þarna á hluthafalista Skandia og í kjölfar þess hófust alls kyns vangaveltur um að- komu okkar og annarra raunar líka. Það er ekki ósennilegt að Skandia verði bútað eitthvað í sundur og þá munum við örugg- lega skoða okkur vel um.“ SkandiaBanken hefur um 850.000 viðskiptavini í Svíþjóð, Noregi og Danmörku en talið er að bankinn kosti um 42 milljarða króna.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.