blaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 2
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið Patreksfjörður: Fíkniefni á sjómannadag Aðfaranótt sunnudags handtók lögreglan á Patreksfírði mann grunaðan um fíkniefnamisferli. Við leit á honum fundust tíu töflur sem taldar eru MDMA, eða svokallaðar E-töflur. Einnig fundust 6,5 grömm af því sem lögreglan telur vera kókaín og amfetamín. Viðkomandi var handtekinn nálægt félagsheim- ilinu á Patreksfirði þar sem mjög fjölmennur sjómannadags- dansleikur stóð yfir. Að loknum yfirheyrslum var manninum sleppt. Verð í fjölbýli: Alls staðar yfir 20% hækkun Það kemur fram í nýbirtum töl- um Fasteignamats ríkisins að í einungis fjórum af sextán borg- arhlutum höfuðborgarsvæðisins hefur íbúðaverð hækkað minna en 25% fyrstu þrjá mánuði árs- ins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta var í Mosfellsbæ, Garða- bæ, á Seltjamamesi og í Vestur- bæ sunnan Hringbrautar. Kaupmáttarvísitala Eurostat: ísland og Svíþjóð í 10. sæti Lúxemborg trónir á toppi lista Eurostat yfir þau lönd sem höfðu mestankaupmáttárið2004,sam- kvæmt nýjustu tölum Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins. Vísitala Eurostat, sem er miðuð við 100 að jafnaði í ESB-ríkjum, er 223 fyrir Lúxemborg en 116 fyrir ísland og Svíþjóð. Finnland er eina Norðurlandið sem er und- ir íslandi, með 115 stig, en Dan- mörk var með 122 og Noregur 153. Ástæðan fyrir yfirburðum Lúxemborgar er hversu margir vinna í landinu en búa annars staðar. Lestina rekur Tyrkland með kaupmáttarvísitöluna 23. Landlæknir: ítrekar upplýsingar um hermanna- veiki Vegna fréttaflutnings af her- mannaveiki starfsmanns Land- spítala-háskólasjúkrahúss hef- ur Landlæknisembættið ítrekað að um starfsmann á skrifstofu Landspítalans er að ræða. Skrif- stofan er ekki á sjúkrahúsinu sjálfu heldur í húsi við aðra götu og með annað loftræsti- kerfi. Starfsfólk skrifstofunnar á sjaldnast erindi inn á sjálft sjúkrahúsið og því útilokað að viðkomandi hafi smitast gegn- um loftræstikerfi sjúkrahússins. Enn er ítrekað að sjúkdómurinn berst ekki milli manna. Um er að ræða eitt af nokkrum tilvik- um hermannaveiki sem hér greinast árlega og ekkert frá- brugðið öðrum tilvikum. Engin tengsl eru á milli þessara sjúk- dómstilvika. íslendingar: Ferðast meira innanlands Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum á hótelum um 5%, eða um 2.650 í aprfl, miðað við apríl á síðasta ári. Fjölgunin er eingöngu vegna fslendinga því gistitölur útlendinga standa í stað. Á landsvísu fjölgaði gisti- nóttum um 6.170 (9%) og er það einnig vegna íslendinga. í mars fækkaði gistinóttum um 11%. 'nn Hrauni Fyrir 10 -15 ára Heilsdagsnámskeið o Heiðskirt 0 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað * Rigning, lítilsháttar /V/ Rigning ’’ Súld sJc^Snjókoma r~7 1 * \/ Slydda SJJ Snjóél Skúr írar gera tilkall til land grunns utan 200 mílna Samningaviðræður um Hatton-Rockall komnar á rekspöl að nýju Framboð til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í uppnámi Amsterdam 14 Barcelona 24 Berlfn 12 Chicago 21 Frankfurt 14 Hamborg 15 Helsinki 15 Kaupmannahöfn 12 London 16 Madrld 29 Mallorka 27 Montreal 21 New York 20 Orlando 21 Osló 13 Parls 14 Stokkhólmur 12 Þórshöfn 10 Vín 15 Aigarve 27 Dublin 16 Glasgow 16 Ríkisstjórn írlands hefur gert tilkall til 39.000 km2 svæðis á hafsbotni hjá Landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóð- anna (SÞ), en það liggur utan 200 mflna efnahagslögsögu landsins. Um leið var boðað að Irar myndu og gera tilkall til stærri svæða - bæði norðar og sunnar - eftir að botn fæst í deilu þeirra við önnur ríki um skiptingu þeirra, „Þetta er í fullu samræmi við þá af- stöðu íslenskra stjórnvalda að Land- grunnsnefnd SÞ sé ekki til þess bær að fjalla um kröfur einstakra ríkja til landgrunns á umdeildum svæðum á borð við Hatton-Rockall," segir Tóm- as H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur ut- anríkisráðuneytisins, sem staddur er í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Tómas segir að ekkert annað ríki hafi gert tilkall til svæðisins, sem írar sækist eftir, og það sé ekki ýkja stórt miðað við það sem gerist í landgrunns- málum. Öðru máli gegni um Hatton- Rockall svæðið, sem deila standi um milli íra, Breta, íslendinga og Færey- inga. „Ríkin þurfa fyrst að koma sér saman um innbyrðis skiptingu og þá má leggja það fyrir Landgrunnsnefnd- ina, sem getur lagt blessun sína yfir ytri mörk svæðisins, sumsé mörkin milli landgrunns og hins alþjóðlega hafsbotns, sem er sameiginleg auð- lind alls mannkyns." Nokkuð er um liðið síðan milli- ríkjaviðræður um Hatton-Rockall svæðið hófust, en þær voru stopular og lágu niðri um nokkurt skeið. ís- lendingar höfðu forystu um að málið yrði tekið upp að nýju í fjórþjóðavið- ræðum árið 2000 og hefur fundatíðni samninganefndanna aukist að und- anfórnu. Síðasti fundur var haldinn í Þórshöfn í maí sl. en sá næsti verð- ur haldinn í Reykjavík í ágúst nk. Tómas vildi þó ekkert segja um hvern- ig þeim fram yndi. Áhugi á auðlindum á og undir hafs- botni hefur aukist verulega á síðustu árum eftir því sem tækni til hagnýt- ingar þeirra hefur fleygt fram. Öll umræða um framboð íslands til Ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna hefur verið á einn veg að undanfómu, eða í þá átt að endurskoða þurfi málið. Þetta segir Guðmundur Ámi Stefánsson, þing- maður Samfylkingarinnar, og dregur þá ályktun að meiri líkur séu nú en minni á að ekki verði af framboðinu. „Ég get ekkert fullyrt um þetta því það er að sjálfsögðu rflásstjómarinnar að ákveða þetta. Við í Samfylkingunni sögðum frá upphafi að meta þyrfti þqa þætti - kostnað við framboð, möguleika á að ná kjöri og hvað íslendingar ætluðu að gera í ráðinu, næðu þeir kjöri. Nú er vitað að Tyrkir hafa boðið sig fram, sem lá ekki fyrir þegar íslendingar ákváðu að fara í þennan slag. Það er mat þeirra sem best þekkja til að líkur okkar á að ná kjöri séu hverfandi og því gæti verið best að hætta strax við. Steingrímur J. Sigfusson, formaður VG, tekur í sama streng og merkir dvín- andi áhuga á framboðinu. Hann rekur það meðal annars til húsbóndaskipta í utanrfldsráðuneytinu. Fleira kemur þó til: ,Jíins og umræða í stjómarheimilinu hefur verið síðasta hálfa árið, þegar mað- ur eins og Einar Oddur, varaformaður fj árlaganefndar, ræðir gegn þessu vegna kostnaðar, segir það manni að efasemd- ir hafi verið að aukast." Stefna ríkisstjórnarinnar óbreytt Steingrímur Ólafsson, upplýsinga- fulltrúi forsætisráðuneytisins, sagði í samtali við Blaðið að stefna væri enn- þá tekin á framboð og að það verði gert þar til stjórnvöld taka ákvörðun um annað. „Ég hef ekki heyrt um neina stefnu- breytingu en það er verið að skoða málið. Utanrflrisráðherra lýsti því jdir fyrir nokkrum vikum að menn vildu skoða þetta núna áður en keyrt yrði á þetta á fullu því staðan hefur breyst frá því að ákvörðun var tekin á sínum tíma. Það hefur hins vegar eng- in formleg ákvörðun verið tekin um að hætta við,“ sagði Steingrímur. Formenn og forráðamenn ríkis- stjórnarflokkanna hafa að undan- förnu sagt reglulega að ákvörðun um málið verði tekin á næstu vikum. /'A 1£/// A morgun / // Vf/// Veðurhorfur I dag kl: 12.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands TILB0ÐSDEKK 0TRULEGT VERÐ! AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA I FYRIRRUMI FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK DEKKJAHÓTEL VIÐ GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI GUMMIVINNUSTOFAN EHF. RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588 WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.