blaðið - 07.06.2005, Side 4
þriðjudagur, 7. júní 2005 i blaðið
SÍF:
Endurfjármögn-
un láns lokift
Heildarlánsfjárhæð SÍF hf. er
262.400.000 evrur eftír endurfjár-
mögnun félagsins, sem er nú form-
lega lokið, en upphafleg lánsgár-
hæð var 290 miUjónir evra. „Við
endurfjármögnuðum félagið í raun
í desember á síðasta ári og því
ferli sem var að ljuka núna, með
því að KB banki og Bank of Scot-
land, sem stóðu upphaflega að fjár-
mögnuninni, voru að selja lánin
niður,“ sagði Kristinn Albertsson,
fjármálastjóri SÍF. Umsjónarbank-
amir tveir hafa selt hluta láns
félagsins til sjö banka og fjögurra
fjárfestingarsjóða. Að sambanka-
láni SÍF hf. standa þvf samtals 13
bankar og fj árfes tingarsj óðir.
Margir vildu lána
„Sala lánsins gekk mjög vel. Það
var mun meiri eftirspum en þörf
var á frá bönkum sem vildu lána fé-
laginu," sagði Kristinn en um 50%
umfram eftírspum var eftir lánum
SÍF meðal þeirra banka sem boðin
var þátttaka í sambankaláninu.
„Við vonumst til þess að þetta sé
til merkis um að bankar hafi trú á
félaginu og stöðu þess og stefnu.“
Aðspurður út í kosti þess að marg-
ir bankar standi að baki láninu
segir Kristinn vera að félagið verði
betur og víðar kynnt en ella. „í
þeirri útrásarstefnu sem við erum
í getur tvímælalaust hjálpað okk-
ur að fá banka með okkur í verk-
efni þegar þeir þekkja félagið fi-á
fyrstu hendi.“
ísafjörður:
Sópað um
miðja nótt
Aðfaranótt laugardags sást gler-
flösku fleygt út úr bíl á ferð um
miðbæ Isafjarðar. Lögreglan
hafói hendur í hári farþega bíls-
ins sem kastaði flöskunni. Var
honum gert að þrífa upp eftir
sig sóðaskapinn með því að sópa
glerbrotin upp. Um ungan mann
var að ræða og standa vonir til
þess að hann láti sér þetta að
kenningu verða.
Landlæknir:
Fleiri kvartanir
og kærur
Alls bárust 244 kvartanir og
kæmr til Landlæknisembættis-
ins árið 2004 en þær voru 220
árið 2003 og 224 árið 2002. Af
þessum 244 kærum voru 113
þeirra vegna ófullnægjandi eða
rangrar greiningar, eftirlits eða
meðferðar, 27 vegna samskipta-
mála og 20 vegna rangra eða vill-
andi vottorða.
Flugmenn gæslunnar á
viðskiptafarrými
Flugmenn Landhelgisgæslunnar
munu framvegis fljúga á viðskiptafar-
rými þegar þeir fljúga á milli landa
en ekki á almennu farrými eins og
þeir hafa gert fram að þessu. Þetta
var niðurstaða Félagsdóms, sem í
gær úrskurðaði í deilumáli milli Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna
(FLA) og gæslunnar.
Að sögn Halldórs Þ. Sigurðsson-
ar, formanns FÍA, hafa flugmenn
gæslunnar ekki verkfallsrétt og því
er vitnað í kjarasamning flugmanna
Icelandair með öll ókvæði, nema sér-
ákvæði umræddra flugmanna. Hins
vegar hafi verið deilt um hvort grein
um ferðamáta flugmanna hafi að-
eins átt við um flugmenn Icelandair
eða hvort flugmenn gæslunnar ættu
einnig að falla undir hana. Ástæðan
fyrir því að umrætt ókvæði væri inni
í kjarasamningi flugmanna væri að
flugmenn ferðuðust mjög mikið og
þyrftu oft að fara að vinna snemma
eftir jafnvel löng flug. Þeir hvíldust
betur á viðskiptafarrými en almennu
farrými og því væri greinin svohljóð-
andi. Aðspurður um hvort eðlilegt
væri að flugmenn gæslunnar, sem
fara frekar sjaldan erlendis á ári,
nytu sömu réttinda, sagði Halldór:
„Þetta var bara spurning um
túlkun á samningnum - það varð
að fá á hreint hvernig beita á þessu
ákvæði." m
Flugmönnum Landhelgisgæslunnar
hefur verið tryggður þægilegri ferðamáti
í utanlandsferðum.
Fjárlög hefta framgang
kjarasamninga
Stjórnendur og forráðamenn ríkis-
stofnana taka oft og tíðum fjárlög
fram yfir lög og kjarasamninga. Þetta
segir Gísli Tryggvason, framkvæmda-
stjóri Bandalags Háskólamanna, og
bendir á að fjárlög séu í raun einung-
is fjárhagsáætlun og því ættu t.d.
kjarasamningar að hafa sterkari rétt-
arstöðu. Fjárlögum sé á köflum beitt
til að hefta framgang kjarasamninga
eða jafnvel takmarka efndir þeirra.
„Það eru dæmi um að kjarasamn-
ingar hafi ekki verið framkvæmdir
eins og við vildum helst, út af naumt
skömmtuðum fjárveitingum til ein-
stakra stofnana. Okkur finnst stund-
um að stjórnendur ríkisstofnana og
stjómvöld snúi veruleikanum við og
telji fjárlög æðri kjarasamningum.
Það er vaxandi áhersla á stjómendur
að vera innan þess ramma sem settur
er í fjárlögum og inn leið eru stífari
úrræði gagnvart stjómendum sem
fara fram úr. Það gefur auga leið að
þegar launaliður er gjarnan um 70%
af rekstrarkostnaði stofnana að það
hallar á köflum á launafólk," segir
Gísli.
Hann bendir ennfremur á að fjár-
lög séu oft og tíðum ekki sniðin að
lagalegum skyldum einstakra stofn-
ana. Þannig er ekki skoðað hvers um-
hverfið krefst og niðurstaða fjárlaga
sé því oft ekki í takt við raunveruleik-
ann.
■
F-listinn telur tillögur um
eyjabyggð óraunhæfar
- sjálfstæðismenn segja ávinning meiri en kostnað
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi F-listans, telur að hugmyndir
sjálfstæðismanna um byggð úti í
eyjum Kollafjarðar séu óraunhæf-
ar þótt þær virðist spennandi við
fyrstu sýn. Sjálfstæðismenn svara
því á hinn bóginn þannig að tillögur
þeirra séu umræðugrundvöllur og
því engan veginn fullmótaðar, hvað
' þó að unnt sé að slá kostnaði á fast.
Að mati Ólafs F. Magnússonar
myndu landfyllingar í tengslum
við skipulagshugmyndir sjálfstæð-
ismanna kosta um 20 milljarða
króna, eða milljón krónur á hvern
íbúa hinnar nýju byggðar. Flókin
og kostnaðarsöm umferðarmann-
virki myndu svo hækka kostnaðinn
enn frekar. Hringbraut þoli litla
viðbótarumferð og ýmsar takmark-
anir séu á umferð um Mýrargötu og
Geirsgötu.
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, telur of
snemmt að leggjast yfir kostnaðar-
tölur. „Þessar hugmyndir eru fyrst
og fremst ætlaðar sem leiðsögn um
framtíðarsýn en eru ekki fullmótað-
ar af okkar hálfu. Við ætlum að ná
niðurstöðu um þær í samstarfi við
borgarbúa og einmitt í því skyni
höldum við íbúaþing í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum nú á fimmtudag.
í framhaldinu verða svo haldnir
fundir úti í hverfunum og við höfum
opnað hugmyndabanka á vefnum,"
segir Kjartan.
Kjartan segist út af fyrir sig ekki
draga kostnaðartölur Ólafs í efa,
ljóst sé að hér yrði um dýra fram-
kvæmd að ræða ef af yrði. „Það má
þó ekki gleyma hinu heldur að þess-
ar lóðir gætu orðið mjög eftirsótt-
ar og miðað við það uppsprengda
verð, sem R-listinn setur á lóðir í
borginni, væri um reyfarakaup að
ræða ef þær yrðu seldar á kostnað-
arverði.“
Kjartan bætir við að það liggi auð-
vitað fyrir að ný íbúðabyggð vestast
í borginni myndu kalla ó ný umferð-
armannvirki og þau kosti vissulega
sitt. Honum finnst það þó léttvæg
rök gegn hugmyndum um eyja-
byggð. „Skipulag og umferðarmann-
virki eiga að helgast af þörfum borg-
aranna en ekki öfugt.“
Seyðisfjörður:
Tíu manns
sóttu um
Tíu karlmenn sóttu mn stöðu
yfirlögregluþjóns við embætti
sýslumannsins á Seyðisfirði
en umsóknarfrestur rann út á
fimmtudaginn. Það vekur at-
hygli að engin kona sótti um
starfið.
Loftmyndir
af Reykjavík
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar hefur endur-
hannað frá grunni svokallaða
skipulagssjá á netinu. Nú eru
þar upplýsingar um deiliskipu-
lag borgarinnar, auk þess sem
hægt er að skoða nýjustu loft-
myndir borgarinnar. í skipu-
lagssjánni er að finna tæmandi
upplýsingar um það deiliskipu-
lag sem er í kynningu á hverjum
tíma.
Ný brú var sett á Ægi síðastliðinn
föstudag.
Endurbætur
á áætlun
Endurbætur og breytingar á
varðskipinu Ægi ganga vel og
er gert ráð fyrir að skipið verði
tilbúið fyrri part ágústmánaðar.
Ný brú var sett á skipið sl. fóstu-
dag í skipasmíðastöð í Póllandi.
Að sögn Dagmarar Sigurðardótt-
ur, upplýsingafulltrúa Landhelg-
isgæslunnar, er verkið á áætlun
en verið er að taka brúna í gegn,
ásamt því að íbúðir áhafnarmeð-
lima verða endurnýjaðar.
„Vinnuaðstaða skipstjórnar-
manna, sem og vistarverur allr-
ar áhafnar, verða teknar í gegn.
Ægir var smíðaður órið 1968 og
því löngu tímabært að gera þess-
ar breytingar," segir Dagmar.
Gert er ráð fyrir að varðskipið
Týr fari til Póllands til svipaðra
breytinga á næsta ári.
Opið virka daga: 10-18 & laug: 11-15
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954
Þl(S °® GEB0U GÓÐ KAUP PVÍ HÚ ER T®*’
Frábær sumartilboð á: Rúmum, springdýnum, latexdýnum, svampdýnum,
yfirdýnum, eggjabakkadýnum, koddum og sérsniðnum svampi.