blaðið - 07.06.2005, Síða 6
6 innlent
Þingforseti
viðstaddur
aldarafmæli
sambandsslita
Noregs og
Svíþjóðar
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, og eiginkona hans, Kristrún
Eymundsdóttir, verða viðstödd
hátíðahöld í Noregi í dag. Þar er
minnst aldarafmælis sambands-
slita Noregs og Svíþjóðar og end-
urreisnar konungdæmis í Noregi.
Hátíðarsamkoma verður af þessu
tilefni í þinghúsinu í Ósló. Með
þingforseta í fór er Helgi Bemód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis,
og í samtali við Blaðið sagði hann
að einu opinbem gestimir við há-
tíðahöldin væru forsetar allra nor-
rænu þinganna.
„Þess er vænst að konungur
Noregs komi fram opinberlega
í fyrsta sinn síðan hann veiktist
og var skorinn upp fyrir nokkmm
vikum. Þingforsetarnir munu fara
með honum og skoða sögusýningu
sem sett var upp í stórþinginu og
er það hluti af hátíðahöldunum.
Þetta er mikill hátíðisdagur í Nor-
egi og þeir gera heilmikið með
þetta," sagði Helgi.
Viðskipta-
og hagfræðingar:
Heildarlaun
kvenna hækka
meira en karla
Heildarlaun kvenna hækka um
10,8% en karla um 10%, sam-
kvæmt nýrri kjarakönnun sem
Félag viðskipta- og hagfræðinga
lét gera fyrir sig. Þegar ekki er
tekið tiUit til annarra þátta virð-
ist launamunur kynjanna nú ör-
litlu minni en fyrir tveimur ámm.
Þegar launamunurinn hefur verið
Ieiðréttur miðað við fjölda vinnu-
stunda á viku, menntunar, starfs,
atvinnugreinar, aldurs, vinnu-
framlags, mannaforráðs og starfs-
aldurs, kemur í ljós að kynbund-
inn launamunur hjá viðskipta- og
hagfræðingum er nú 7,6% en var
6,8% árið 2003.
loftkœling
Verð frá 49.900 án vsk.
3* ÍS-hÚSÍð 566 6000
Lokað vegna
skorts á læknum og
hjúkrunarfræðingum
Árlega þarf að draga úr starfsemi
sjúkrastofnana hér á landi þar sem
ekki er hægt að fá starfsfólk til að
leysa af vegna sumarfría. Þannig er
erfitt að fá m.a. lækna og hjúkmnar-
fræðinga til að leysa af á stofnunum
hérlendis.
Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
staðfesti þetta í samtali við Blaðið.
„Það er bara þannig að sérmenntað
fólk liggur ekkert á lausu. Það er
reyndar búið að vera betra ástand
hér upp á síðkastið en var fyrir nokkr-
um árum og við höfum t.d. verið með
fullmannað í heilsársstöður. Hins
vegar er erfitt að fá sérmenntað fólk
til að koma í tímabundnar afleysing-
ar, sérstaklega yfir sumartímann,"
segir Magnús.
Á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands segir orðrétt um þessi
mál:
„Eins og undanfarin ár verður að
draga úr starfsemi á sjúkrahúsinu
yfir sumarmánuðina. Er þetta m.a.
gert vegna skorts á hjúkrunarfræð-
ingum til afleysinga. Fjárveitingar
til stofnunarinnar hafa einnig áhrif á
þess ákvörðun". Það lítur því út fyrir
að fleira hafi áhrif á sumarlokanir en
eingöngu skortur á íjármagni. ■
Byggist Island á
bólu í iðrum jarðar?
Bandarískir jarðeðlisfræðingar
hafa fundið ummerki þess í iðrum
jarðar að þar leynist jarðmassa-
bólur sem séu eins konar rætur
möttulstróka þeirra sem tengja
möttul jarðar og yfirborð hennar.
Talið er að möttulstrókar þessir
fóðri eldfjallasvæði á yfirborði
jarðar og kunni að skýra tilurð
eldfjallaeyja, líkt og íslands og
Hawaii.
Frá þessum niðurstöðum er
greint í nýjasta hefti tímaritsins
Nature. Vísindamennimir beittu
jarðskjálftamælum til þess að
kortleggja jörðina að innan og
það kom þeim á óvart að á mörk-
um kjarnans og möttulsins, um
3.000 km fyrir neðan yfirborðið,
skyldu vera bólur af bráðnu en
mjög þéttu efni sem jarðskjálfta-
bylgjur ferðast mjög hægt í gegn-
um. „Við fundum litla jarðmassabólu
neðst í hinum harða möttli, sem í er
hálfbráðið hraun, og við tengjum við
möttulstrókana," segir jarðskjálfta-
fræðingurinn Edward Gamero við
ríkisháskóla Arizona. „Nú höfum við
vísbendingar um það hvaðan efnið í
strókunum kemur."
Þessar „litlu" bólur eru um 50 km í
þvermál og um átta km djúpar en vís-
indamennimir leiða að því líkum að
slíkar bólur sé að finna á botni allra
möttulstróka en þær færist lítið úr
stað þótt möttullinn sé á hreyfingu.
„Þær kunna að vera eins konar rætur
langlífra möttulstróka og skýra tilurð
og tUvist eldfjallaeyja," segir Sebasti-
an Rost, annar vísindamannanna. ■
Ætla á vetnishjóli umhverfis ísland
Japanskur hópur umhverfisvænna
ævintýramanna ætlar í næstu viku
að hefja ferð umhverfis íslands á far-
artæki sem knúið er efnarafali, líkt
og vetnisvagnamir sem sjá má aka
um götur Reykjavíkur þegar erlenda
gesti ber að garði.
Hópurinn er frá Kawasaki í Jap-
an og nefnir sig Grænorkuævintýrið.
Farartækið er eins konar þríhjól en
er knúið efnarafali þar sem orkan
er beisluð með því láta vetni ganga í
samband við súrefni, en rafallinn læt-
ur engan úrgang frá sér annan
en vatnsgufu. Rafalinn smíðuðu
Japanarnir sjálfir og með ferð-
inni vilja þeir sýna fram á að
efnarafalar geti verið hagkvæm-
ur kostur. „Það eru enn margir
sem draga hagnýtingu efnaraf-
ala í efa,“ segir Kenji Bamba,
einn leiðangursmanna, „en við
viljum sjá hversu langt við koni-
umst.“ Fimm ökumenn munu
skiptast á að aka þríhjólinu, sem að þess sem þeir aka því fylgja þeir fé-
grunni til er þýskrar gerðar, en milli laga sínum eftir á venjulegum bíl.
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið
Nýtt
björgunarskip
afhjúpað
Á laugardaginn afhjúpaði Jökul-
rós Grímsdóttir nýtt björgunar-
skip sem þjóna á Húnaflóasvæð-
inu. í formlegri athöfn, sem var
hluti hátíðarhalda sjómannadags-
ins, var skipinu gefið nafnið Húna-
björg og sóknarpresturinn, séra
Magnús Magnússon, blessaði það
með stuttri athöfn. Sigurgeir Guð-
mundsson,formaðurSlysavarnafé-
lagsins Landsbjargar, flutti ávarp
við tækifærið og rakti hvemig
björgunarbátavæðing landsins
hafi gengið fyrir. Sigurgeir nefndi
hvernig slagorðið „Lokum hringn-
um“ hafi ekki síst átt við um kaup-
in á þessu skipi.
^spron
4,15% íbúða-
lán standa
öllum til boða
SPRON hefur ákveðið að hætta að
gera kröfur til lántakenda um önn-
ur viðskipti við bankann þegar
sótt er um 4,15% íbúðalán. Afnám
skilyrða um önnur viðskipti gild-
ir einnig fyrir þá sem þegar hafa
tekið 4,15% íbúðalán. í tilkynn-
ingu frá SPRON segir að þeir hafi
fundið fyrir mikilli óánægju með-
al almennings með að þurfa að
binda sig í viðskipti til allt að 40
ára til að eiga möguleika á að fá
íbúðalán með 4,15% vöxtum. Með
þessu sé verið að koma til móts
við þetta fólk.
Víkin sjóminjasafnið:
Frábærar
viðtökur á
opnunarhelgi
„Þetta gekk vonum framar og
við erum alveg alsæl eftir helg-
inasagði Sigrún Magnúsdóttir,
forstöðumaður Víkurinnar sjó-
minjasafnsins í Reykjavík, sem
var opnað um helgina í tengslum
við Hátíð hafsins. „Við teljum að
hingað hafi í minnsta lagi komið
um 3.000 manns þessa fyrstu helgi
þá sex tíma sem var opið.“ Safnið
er nú orðið fullgilt safn og verður
opið frá 11-17 alla daga vikunnar
nema mánudaga en þá verður lok-
að. „Ég vil koma þakklæti til allra
þeirra sem lögðu hönd á plóg og
gerðu þetta mögulegt fyrir þetta,“
sagði Sigrún að lokum.