blaðið - 07.06.2005, Síða 8

blaðið - 07.06.2005, Síða 8
8 erlent Bretar fresta þjóðaratkvæðagreiðslu Utanríkisráðherra Breta, Jack Straw, tilkynnti breska þinginu í gær að þjóðaratkvæðagreiðslu um stjómarskrá Evrópusambandsins verði frestað. Straw sagði að ríkisstjómin áskyldi sér allan rétt til að setja málið aftur á dagskrá ef aðstæður breyttust. “Það er ekki í höndum Bretlands eins og sér að ákveða framtíð samningsins,” sagði hann. Fyrrum daginnsagðitalsmaður Tony Blair forsætisráðherra að engin skynsemi mælti með því að halda málinu gangandi. Almenningur hafnaði stjómar- skránni í Frakklandi og Hollandi og sérfræðingar halda því fram að það hafi verið dauðadómur yfir samningnum. Á sama tíma berast fréttir um að Pólveijar vilji hraða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjómarskrána. Leiðtogar Evrópusambandsríkja munu hittast á ráðstefnu í næstu viku til að ráða ráðum sínum. ■ Tony Blair. Ríksstjórn Tony Blair hefur ákveðið að fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um stjómarskrá Evrópusambandsins._______________________________________________ París fær fyrstu einkunn Frakkar þykja standa með pálmann í höndunum þegar kemur að Ólympíuleikunum árið 2012. Alþjóða ólympíunefndin sendi í gær frá sér 123 blaðsíðna skýrslu um þær fimm borgir sem sótt hafa um að halda Ólympíuleikana það ár. Borgunum er ekki forgangsraðað en ljóst er að París hefur fengið fyrstu einkunn. í skýrslunni var ekki sagt eitt einasta neikvætt orð um París og mikið lof borið á íþróttaaðstöðu, samgöngur og gistiaðstöðu í borginni. París, London, New York, Madrid og Moskva keppa um að fá að halda leikana. London, Madrid og New York fá jákvæða dóma í skýrslunni en aðstaða í Moskvu er gagnrýnd. 117 meðlimir Alþjóða ólympíunefndarinnar munu greiða atkvæði um borgirnar í leynilegri atkvæðagreiðslu í Singapúr 6. júlí. Maður gengur framhjá bresku auglýsingaskilti um væntanlega Ólympíuleika sem Bretar eru áfjáöir í að halda 2012. CANDIDATE CITY Menntaskólinn í Kópavogi Kynning og aðstoð við rafræna innritun verður í Smáralind 9. og 10. júní Rafræn innritun nýnema í Menntaskólann f Kópavogi hófst 20. maí og stendur til 14. júní. Einnig gefst nemendum og forráömönnum þeirra kostur á að nýta tölvukost skólans og fá leióbeiningu vió innritun f skólanum. Skólameistari þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið Læknir heldur á hinni 13 mánaða gömlu Milagros Cerron á sjúkrahúsi í Lima. Hún er kölluð “litla hafmeyjan” vegna þess að hún fæddist með samvaxna fætur. Fimm dagar eru síðan vel heppnuð aðgerð var gerð á fótum hennar. 38 farast í Nepal Mannfall varð í Suður-Nepal er jarð- sprengja sprakk undir yfirfylltri rútu. 38 létust og 72 særðust í einni af verstu árásum á óbreytta borgara síðan bylting maóista braust út árið 1996. Maóistar, sem hermenn kon- ungs kalla hryðjuverkamenn, hafa ekki verið þekktir fyrir að ráðast á óbreytta borgara en yfirmenn í nep- alska hernum segja hiklaust að árás- in sé runnin undan rifjum maóistana. Yfirmenn hersins segja maóistana hafa sprengt jarðsprengjuna með fjar- stýringu úr 250 metra fjarlægð. Ekki lá fyrir ábyrgðaryfirlýsing frá maóist- unum. Aðkoma að slysstað var skelfileg en sprengingin var svo öflug að djúp- ur gígur myndaðist í veginum. Vitni sögðu að rútan hefði þeyst marga metra í loft upp. 12.000 manns hafa misst lífið í níu ára skærum uppreisnarmanna og konungshersins og hefur það haft djúp og víðtæk áhrif á þjóðlíf í Nep- al, þar sem ferðamannatekjur hafa svo til alveg lagst af og tugþúsundir manna neyðst til að flýja heimili sín. ■ Hörmungar í Nepal. Friðargæsluliðum fjölgað Spánn, Rúmenía og Holland munu líklega fjölga friðargæsluliðum í Afganistan vegna komandi þing- kosninga 18. september. Talið er að löndin muni hvert um sig senda sem samsvarar einni 750 manna herdeild, og munu þær bætast við 8.300 manna herlið NATO í Kabúl og N.- og V.-Afganistan. Varnarmálaráð- herrar NATO funda á fimmtudaginn til að ræða áætlanir til að taka við friðargæslu af Bandaríkjamönnum í Afganistan. Afganskur friðargæsluliði stendur vörð.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.