blaðið - 07.06.2005, Síða 10

blaðið - 07.06.2005, Síða 10
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið 10 fyrir konur Kvennaþing í tilefni af breytingum á stjórnarskrá Konur láta til sín taka við fyrirhugaðar breytingar stjórnarskrárinnar halldora@vbl.is Boðað var til kvennaþings á Hallveig- arstöðum síðastliðna helgi, þar sem konum gafst tækifæri til að ræða um breytingar á stjórnarskrá landsins, en fulltrúi kvennahreyfingarinnar mun taka til máls á ráðstefnu um stjórnarskrána 11. júní næstkom- andi. Nokkur kvennasamtök stóðu að þinginu en þar má einna helst nefna UNIFEM á Islandi, Kvennaathvarfið, Stígamót og Femínistafé- lagið, auk þess sem fleiri félög komu þar að. Þingið var kynnt meðal kvenna- samtaka og var öllum áhugasömum boðin þátt- taka. „Það var eiginlega öllum fijálst að koma, enda viljum við fá opnar umræður frá sem flestum hliðum," segir Bima Þór- arinsdóttir, framkvæmda- stýra UNIFEM á íslandi. „Það var þrennt sem stóð upp úr umræðunum sem við ákváðum að láta full- trúa okkar kynna á ráð- stefhunni. Það er vernd- un kvenna fyrir ofbeldi, jöfn þátttaka kynja í stjómunlandsins ogfrum- kvæðisskylda ríkisins til að tryggja jafnrétti.“ í kjölfar ráðstefnunnar 11. júní verða hugmynd- irnar fullunnar og sendar stjómar- skrámefnd ásamt ítarlegri greinar- gerð. Birna segir að stefnt verði að því að hafa vinnsluferlið eins opið og hægt er. „Við erum bara að opna þessa umræðu, enda kominn tími á það þar sem konur hafa hingað til ekki fengið tækifæri til að hafa bein áhrif á stjómarskrána," segir Bima, en hún segir mikilvægt að konur nýti þetta tækifæri sem þær hafa fengið til breytinga. Konur eiga erfiðara með að hætta að Lió$ar varir i sumar Mattir, Ijósir og daufir litir gera varirnar náttúrulegar Tískufrömuðir heimsins leggja mikið upp úr ljósum og náttúrulegum vör- um þessa dagana en það þykir eðlileg framvinda í kjölfar vetrarins þar sem flestar konur nota fórðunarvörur í meiri mæli. Flest snyrtivörufyrirtæki bjóða upp á margar gerðir af mött- um, ljósum og brúnum varalitum, en einnig eru gloss mjög vinsæl nú sem endranær. Varirnar verða með þessu móti eðlilegri og daufari, en dauf fórð- un og sú sem ekki er áberandi, þykir mjög falleg núna. Hægt er að fá sér liti þó svo að varimar séu náttúrideg- ar - þetta er ekki eingöngu bundið við alveg ljósa tóna. Mikið er til af t.d. fólbleikum (sem er flottur þegar við- komandi er ljós í andliti) eða appels- ínutónum ef andlitið er dökkt. Rannsóknir á reykingarvenjum fólks benda sterklega til þess að konur eigi í meiri erfiðleikum en karlar með að hætta að reykja. Þetta kemur fram í rannsóknum sem heilbrigðisstofnunin við Pittsborgar háskóla framkvæmdi á dögunum. Dr. Perkins, sálfræðingur við stofnunina, segir ástæðurnar margar en þó bendi hins vegar margt til þess að konur séu í minna mæli háðar sjálfu nikótíninu í sígarettunum. Félagslegir þættir spili þar frekar inn í - að konur reyki fremur á t.d. kaffihúsum í samneyti við annað reykingarfólk, auk þess sem lyktin hafi þá meiri áhrif en á karlanna. Finni kona reykingarlykt kveiki það löngun hjá henni frekar en að líkamleg þörf geri vart við sig. „Maður sér karlmenn standa eina fyrir utan byggingar að reykja á meðan konur hópi sig yfirleitt saman við reykingarnar," segir Perkins, og bætir því við að oft sé erfiðasti þátturinn þegar konur hætti að reykja sá að þær njóti sín ekki eins á kaffihúsum eða með vinkonunum. Karlarnir sýni frekari merki þess að um líkamlega þörf sé að ræða þegar þeir hætti. Með því að láta Póstinn sjá um >Á ,v allan pakkann sparar þú rekstp kostnað. Pósturinn kemur á Mf fyrirfram ákveðnum tíma, tejitur allar sendingar og skilar þegn fljótt og örugglega til viðtal4t>da Hafðu samband við sölufuffirúa í síma 580-1090 eða í netfangið sala@postur.is og fáði/nánari upplýsingar. / ’ www.postur.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.