blaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 14
þriðjudagur, 7. júní 2005 ! blaðið
blaöiðB
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri:
Kari Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar:
Bæjariind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsimi: 510-3700. Simbréf á fréttadeild: 510-
3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is,
auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur.
Kvennahreyfingin og endurskoð-
un stjórnarskrárinnar
Stjómvöld hafa boðað endurskoðun I. og II. kafla stjórnar-
skrárinnar, sem Qalla um skiptingu þjóðfélagslegs valds og
forsetaembættið. Forsætisráðherra hefur þó sagt að í raun sé
endurskoðun allrar stjómarskrárinnar imdir. Megináherslu
eigi hins vegar að leggja á íramangreinda kafla.
Ástæða þess að stjómvöld hafa nú áhuga á þessum tveimur
köflum stjómarskrárinnar er án efa synjun forseta íslands
á að staðfesta svokölluð fjölmiðlalög fyrir ári. Þjóðin fékk þó
ekki að greiða atkvæði um lög þessi í þjóðaratkvæðagreiðslu,
eins og hún á þó skýlausan rétt til samkvæmt 26. gr. stjómar-
skrárinnar. Þann rétt tók ríkisstjómin og meirihluti Alþingis
af henni.
Vonandi leiðir endurskoðun I. og II. kafla til þess að réttur til
þjóðaratkvæðis verði aukinn frá því sem nú er og takmarkist
því ekki við það eitt að forseti íslands hafi synjað lögum um
staðfestingar. Það væri góð breyting á stjómarskránni.
Að öðm leyti verður ekki séð að þörf sé á því að endurskoða
ákvæði I. og II. kafla. Valdmörk forseta íslands annars veg-
ar og framkvæmdavaldshafa hins vegar em ljós og verða ekki
gerð gleggri þótt þau séu endurskoðuð og endurskrifuð, enda
meiri líkur en minni á því að þá verði ákvæðin fyrst óskiljanleg
eða innbyrðis ósamþýðanleg, eins og dæmi frá endurskoðun
stjómarskrárinnar 1995 sanna. Þá var jafnræðisreglan svo-
kölluð tekin upp í VII. kafla stjómarskrárinnar, mannréttinda-
kafla hennar. Þess má geta að dómstólar höfðu áður talið að
slík regla gilti hér á landi. í sinni stystu mynd gæti ákvæðið
hljóðað svo:
Allir skulu jafnir að lögum.
Jafnræðisákvæði stjómarskrárinnar, sem er að finna í 65 gr.
hennar, er hins vegar svohljóðandi:
Allir skulu vera jafnir fyrir lögumog njóta mannréttinda án til-
lits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kyn-
þáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.
Konur og karlar skulu njóta jafnréttis í hvívetna.
Síðasti hluti þessa ákvæðis „Konur og karlar skuli njóta jafn-
réttis" kom inn sem breytingartillaga. Eins og sjá má bætir
þetta ákvæði engu við fyrri hluta 65. gr. stjómarskrárinnar,
sem segir aðeins í of mörgum orðum að allir skuli jafiiir fyr-
ir lögum. Aðeins einn þingmaður, Ólafur heitinn Þórðarson,
Framsóknarflokki, virtist hafa áhyggjur af þessu orðagjálfri í
65. gr. og sagði í þingræðu, er fmmvarp til breytinga á stjóm-
arskránni var til umræðu, í febrúar 1995:
„Svo kemur breytingartillaga og þá er búið að botna textann:
,„Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna". Á þá upp-
runalegi textinn bara við þá sem eru hvorugkyns? Eða hvernig
ber að skilja þetta? Hvernig í dauðanum ber að skilja þetta?
Hvaða kyn eruþað sem menn eru að tala um? Ég átta mig bara
ekki á þessu, ég segi það hreint út. Mér fmnst að það eigi ekki
að ganga þannig frá þessu að Háskóli íslands geti haft það
sem skemmtiefni að lesa upp kaflana og spyrja hvernig þetta sé
hugsað. Annaðhvort erum við að tala um jafnrétti milli kynja
og erum þá með þessi kyn í huga, konur og karla, eða að fyrra
ákvæðið er óskiljanlegt venjulegum mönnum.“
Þetta er rifjað upp hér vegna þess að nú vilja hagsmuna- og
þrýstihópar hvers kyns fá aðild að endurskoðun stjómarskrár-
innar. Þannig vill eitthvert fyrirbrigði, sem kallar sig kvenna-
hreyfinguna, hafa áhrif á endurskoðun stjómarskrárinnar og
setur það á oddinn að tryggð verði jöfh þátttaka kvenna og
karla í stjóm landsins. Kvennahreyfingunni dugir sum sé ekki
áðurgreint jafnréttisákvæði, sem tryggir að allir séu jafnir fyr-
ir lögum og geti því leitað eftir kjöri til hvaða embættis sem
er við stjóm landsins. Kvennahreyfingin virðist þurfa eitthvað
allt annað. Kannski fleiri óskiljanleg ákvæði.
Augíýsingar 510 3744
blaðið-
Ertu ekki óskaplega vinsæl?
Á ferð minni til Serbíu í sl. viku átti
ég tal við formann atvinnuþróunar-
nefndar í Jersey, en hann var sessu-
nautur minn í flugi frá fslandi. Var
formaðurinn hluti af sendinefnd sem
kom til íslands til að kynna sér hvað
við erum að gera á sviði vísinda- og
tæknimála, frumkvöðlastarfs o.fl.
Taldi hann ísland og Jersey eiga
margt sameiginlegt og var augljós-
lega nokkuð hátt stemmdur eftir ís-
landsdvölina og eftir að hafa kynnst
velsældinni sem hér ríkir. Lýsti hann
m.a. yfir sérstakri aðdáun á hinu
lága atvinnuleysi okkar og háum hag-
vexti. Þegar hann hafði komist að því
að viðmælandi hans gegndi embætti
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og
hefði verið í forsvari fyrir uppbygg-
ingu stóriðju og farsællar einkavæð-
ingar, spurði hann einfaldlega hvort
ég væri ekki óskaplega vinsæl á ís-
landi. Varð frekar fátt um svör hjá
mér við þeirri spurningu en í kjölfar-
ið fór ég að velta því fyrir mér hvort
fólk væri almennt meðvitað um allt
það jákvæða sem er að gerast í þjóð-
félaginu. Fréttaflutningur finnst mér
ekki með þeim hætti að hér á landi sé
velgengni mikil heldur er tónninn al-
mennt neikvæður og h'till áhugi á at-
vinnulífinu, a.m.k. í ljósvakamiðlum.
Samanburðarkannanir
Er fólk almennt meðvitað um að ís-
land skorar hátt í nánast öllum sam-
anburðarkönnunum sem birtast?
GEM-frumkvöðlarannsókn Háskól-
ans í Reykjavík og erlends háskóla
sýnir að frumkvöðlastarfsemi á ís-
landi er einhver sú mesta í heimin-
um og sambærileg við það sem best
gerist í Bandaríkjunum og Kanada.
I IMD-könnun viðskiptaháskólans í
Sviss er ísland í 4. sæti á lista yfir
samkeppnishæfustu þjóðir heims í
samanburði 60 landa og í efsta sæti
í Evrópu. World Economic Forum
mælir samkeppnisstöðu 104 landa
fyrir árið 2004. Þar er ísland í 10.
sæti og hefur hækkað um 15 sæti sl.
10 ár. Samkvæmt nýrri skýrslu frá
sömu stofnun erum við íslendingar í
þriðja sæti á eftir Svíþjóð og Noregi
þegar mæld er staða þjóða í jafnrétt-
ismálum. Þegar rannsökuð er færni
þjóða til að nýta sér upplýsingatækni
er ísland í 2. sæti. Nýleg samanburð-
arrannsókn bendir einnig til þess að
stjómarfarslegur stöðugleiki sé hér
sá mesti sem þekkist. í könnun sem
stofnunin Transparency Internation-
al gerði kom í ljós að ísland er ásamt
Danmörku í 3.-4. sæti yfir þau lönd
heimsins þar sem spilling er tahn
minnst. Aðeins Finnland og Nýja-
Sjáland standa okkur framar að því
leyti. Frelsi fjölmiðla er hvað mest á
íslandi, í Danmörku og Svíþjóð sam-
kvæmt mati bresku stofnunarinnar
Freedom House. fsland skorar hátt
þegar metin eru áhugaverð lönd til
kvikmyndatöku. Svona mætti lengi
áfram telja. Ef einhver
heldur að þetta séu ein-
tómar tilviljanir þá er
það mikill misskilningur.
Samkeppnisstaða íslands
byggist til að mynda á
réttum ákvörðunum sem
m.a. hafa verið teknar
af stjómmálamönnum.
Þar sem viðsnúningurinn
verður augljóslega fyrir
10 ámm læt ég mér detta
í hug að það hafi eitthvað
með það að gera að þetta
sama ár komst Framsókn-
arflokkurinn til valda og
„lagðist í bæli“ kratanna,
eins og það var kallað.
Hin nýja vinstri stjórn
Þar sem ég var erlendis í
opinberum erindagjörðum
sl. helgi hef ég ekki fylgst
vel með fréttaflutningi af
fundi Samfylkingarinnar. Mér hafa
hins vegar borist fréttir af því að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir hafi verið
kjörin formaður og Ágúst Ólafur Ág-
ústsson varaformaður. Ég óska þeim
til hamingju með kjörið. Mér hafa
líka borist fréttir af því að talsmanni
Samfylkingarinnar í samkeppnis-
málum, Lúðvík Bergvinssyni, hafi
verið gjörsamlega hafnað í embætti
varaformanns, sem er athyglisvert.
Þá frétti ég að nýr formaður Sam-
fylkingarinnar líti á það sem aðalbar-
áttumál sitt að fella ríkisstjómina og
mynda vinstri stjórn þeirra flokka
sem nú eru í stjómarandstöðu. Það er
að mínu mati mjög mikilvægt að hafa
þetta á hreinu. Við skulum aðeins
fara yfir það hvaða framfarir hefðu
orðið á síðustu árum ef þessir flokk-
ar hefðu farið með stjórn, eða réttara
sagt hvaða framfarir hefðu ekki orð-
ið. Skattar hefðu ekki verið lækkað-
ir, hvorki á fyrirtæki úr 50% í 18% í
tveimur skrefum, né á einstaklinga.
Eignaskattur hefði ekki verið aflagð-
ur. Það hefði ekki verið byggt álver í
Hvalfirði. Það hefði ekki verið byggt
álver í Reyðarfirði. Kárahnjúkavirkj-
un hefði ekki verið byggð. Ríkisbank-
eu-nir hefðu ekki verið einkavæddir,
né heldur Steinullarverksmiðjan, Se-
mentsverksmiðjan eða Áburðarverk-
smiðjan. Við hefðum ekki tekið upp
markaðskerfi á sviði raforkumála,
sem opnar á samkeppni fyrirtækja
og val einstaklinga á raforkusala.
Sjávarútvegsfyrirtæki byggju ekki
við sama rekstraröryggi. Skuldir rík-
isins hefðu ekki lækkað
um helming. Hagvöxtur
hefði ekki aukist um yfir
50% og þjóðarframleiðslan
tæplega vaxið úr 465 millj-
örðum í 970 milljarða. Þá
eru líkur á að atvinnuleysi
hefði ekki verið jafnlítið
og nú er sökum minni hag-
vaxtar.
Það er líka gaman að
velta fyrir sér hvemig
ráðherraskipan gæti orðið
í nýju vinstri stjórninni.
Ingibjörg Sólrún yrði for-
sætisráðherra, þar sem ég
reikna með að Samfylking-
in yrði stærsti flokkurinn.
Þá væri komið að Vinstri
grænum og trúlega myndi
Steingrímur J. hljóta utan-
ríkisráðuneytið. I kjölfarið
myndu íslendingar segja
sig úr Nató og koma hem-
um burt. Frjálslyndi flokk-
urinn fengi fjármálaráðuneytið og
Guðjón Arnar yrði fjármálaráðherra.
Hann sýndi þó litla þekkingu á rík-
isfjármálum fyrir kosningar þegar
hann mætti formanni Framsóknar-
flokksins í sjónvarpssal og vissi ekki
muninn á persónuafslætti og skatt-
leysismörkum. Þá er komið að vara-
formönnum flokkanna og trúlega
yrði Ágúst Ólafur dómsmálaráðherra
og Magnús Þór Hafsteinsson sjáv-
Frétta-
flutningur
finnst mér
ekki með
þeim hætti
að hér á
landisével-
gengnimik-
ii heidur
er tónninn
aimennt
neíkvæður
„Ertu ekki óskaplega vinsæl?“
Þetta er fyrirsögnin á nýlegum
pistli iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Islands, Valgerðar Sverrisdóttur, á
heimasíðu hennar. Hún hafði setið í
flugvél með manni frá skattaparadís-
inni New Jersey á Ermarsundi; hún
á leið til Serbíu - ekki fylgdi sögunni
hverra erinda. Hann hafði verið í
heimsókn á íslandi og hrifist mjög
af einkavæðingu undangenginna
ára og góðvild ríkisstjómarinnar í
garð stórfyrirtækja og efnafólks. Og
hér sat hann við hliðina á sjálfum
ráðherranun sem hafði verið einn
helsti gerandinn í þessu mikla ferli.
Ekki að undra að hinn gestkomandi
maður spyrði þeirrar spurningar
sem brann á vörum - bæði hans og
viðmælandans, ráðherra Valgerðar
Sverrisdóttur: „Ertu ekki óskaplega
vinsæl?"
En viti menn, nú varð ráðherra
orða vant, mér „varð fátt um svör“,
svo vitnað sé í fyrrnefndan pistil
hennar. Valgerður verður nú greini-
lega hugsi og veltir vöngum yfir því
hvers vegna bæði hún og Framsókn-
arflokkurinn skuli ekki vera „óskap-
lega vinsæl“ á íslandi; bæði flokkur-
inn og hún séu búin að vera að gera
alla þessa góðu hluti!
Greinilegt var að fundurinn í flug-
vélinni á leiðinni til Serbíu með New
Jersey manninum hafði haft djúp
áhrif á banka- og iðnaðarráðherra ís-
lands. Og „í kjölfarið," segir Valgerð-
ur ráðherra,„fór ég að velta því fyrir
mér hvort fólk væri almennt meðvit-
að um allt það jákvæða sem er að ger-
ast í þjóðfélaginu." Og nú vísar hún í
alls kyns álitsgjafa. Þeir segi að spill-
ing sé minni á íslandi en víðast hvar
annars staðar. Aðeins Finnland og
Nýja-Sjáland standi okkur framar!
„Svo erum við búin að einkavæða svo
mikið,“ segir
Valgerður,
„Áburðarverk-
s m i ð j u n a ,
Sementsverk-
s m i ð j u n a ,
Steinullar-
verksmiðjuna
og bankana."
Ogsamkvæmt
F r e e d o m
House sé
frelsifjölmiðla
meiraennokk-
ursstaðarann-
ars staðar!
Ef „einhver
heldur að
þetta séu
eintómar til-
viljanir þá
er það mikill
misskilning-
ur.“ Auðvitað
er þetta allt
Framsóknar-
flokknum að
þakka. Þetta
byggist allt
saman á „rétt-
um ákvörðunum". Og áfram heldur
Valgerður Sverrisdóttir ráðherra
að hæla sér og sínum flokki af allri
Valgerður
verður nú
greinilega
hugsi og
veltir vöng-
um yfir
því hvers
vegna bæði
hún og
Framsókn-
arflokkur-
inn skuli
ekki vera
„óskaplega
vinsæl“ á
íslandi;