blaðið - 07.06.2005, Síða 18
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið
18 neyten
lur JWl
____
I
Viðbótartrygging
- nýjung í neytendaþjónustu
Persónulegar
barnabækur
Nú getur fólk glatt bömin og auðgað
lesáhuga þeirra í leiðinni með því að
gefa þeim persónulegar bamabækur.
Nafn barnsins og vina er sett inn í
söguþráð bókarinnar og verður bam-
ið þannig aðalpersónan í ævintýr-
inu.
Hægt er að fá alls kyns ævintýri,
geim- og risaeðlusögur, afmælis-,
jóla- eða dýrabækur.
Bækumar þarf þó að panta með
ákveðnum fyrirvara en nánari upp-
lýsingar má nálgast á veffanginu
sigranjo@centmm.is. ■
Bensínverð
Raftækjaverslunin Elko býður nú
viðbótartryggingu fyrir heimilistæki
á borð við ísskápa, þvottavélar, elda-
vélar og ýmis raftæki. Um er að ræða
öryggistryggingu sem veitir þriggja,
fjögurra eða fimm ára ábyrgð á heim-
ilistækjum, verði þau fyrir bilunum,
hvers konar óhöppum eða þjófnaði,
að því er fram kemur í uppiýsingum
frá fyrirtækinu.
Ólafur Ingi Ólafsson, yfirmaður
tryggingasviðs Elko, segir sölu trygg-
inganna hafa gengið vonum framar.
„Þetta hefur farið mjög vel af stað hjá
okkur og fólk hefur sýnt þessari nýj-
ung mikinn áhuga,“ segir Ólafur, en
kveðst ekki geta spáð um hvort önn-
ur fyrirtæki taki upp sömu þjónustu.
Hann segir trygginguna vera nýjung
á íslandi þar sem önnur trygginga-
félög tiltaki ávallt lágmarkssjálfs-
ábyrgð, en svo sé ekki í nýju trygging-
unum.
Hvert tæki þarf þó að tryggja fyrir
sig og er verð tryggingar reiknað út
frá áhættustuðli og hlutfalli af vöm-
verði. Þannig kostar t.d. 5.390 kr. að
tryggja eldavél að andvirði 50.000 kr.
til fimm ára og 4.990 kr. til fjögurra
ára. Þá kostar 6.900 að tryggja 28”
sjónvarp að andvirði 50.000 kr. í þijú
ár en 9.990 til fimm ára.
Ekki eru greiddar bætur ef tæki
glatast án þess að um óhapp sé að
ræða, t.d. ef það týnist einfaldlega.
Þá em bætur ekki greiddar ef tæki
hverfur án innbrots - þ.e.a.s. ef ekki
er sannað að um þjófnað sé að ræða.
Ef færanlegt tæki skemmist vegna
þess að það er skilið eftir eftirlits-
laust á almenningssvæði fást heldur
ekki bætur. Fyrir venjulegt viðhald
á borð við skoðun, breytingu og þjón-
ustu eða tjón sem hlýst af við þess
háttar athæfi er tryggingasali ekki
bótaskyldur - átt er við venjubund-
ið viðhald á borð við skiptingu blek-
hylkja í prentumm eða endumýjun á
ljósaperum o.s.fr.v.
Fjölskyldulausn
Þeir sem taka íbúðalán hjá SPRON
með 4,15% vöxtum geta lækkað vaxta-
kostnað sinn enn frekar með því að
skrá sig í fjölskylduþjónustu fyrir-
tækisins því þeir fá endurgreidda
hluta af greiddum vöxtum vegna
íbúðalána. Þetta kom fram í fréttatil-
kynningu sem SPRON sendi frá sér í
gær. Eins og áður hefur komið fram
hafa stjómendur SPRON ákveðið að
afnema skilyrði um önnur bankavið-
skipti á 4,15% íbúðalánum. ■
Græjur sem
Vorum að opna í dag p-,mp my ri(\e nota!
Sími:893-1994
Póstur:Pyle@Pyle.is
í könnun á vegum Blaðsins, sem
fram fór í gær, kom í ljós að verð á 95
oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu var
dýrast á sölustöðvum Essó á Ártúns-
höfða, Shell í Smáranum og á Lauga-
vegi, og hjá Olís í Álfheimum. Það
kostaði nákvæmlega það sama, eða
107,20 kr., á öllum þessum stöðum.
Ódýrast var bensínið á sölustöðmn
Orkunnar í Grafarvogi og Klettagörð-
um. Þar kostaði lítrinn 103,30 kr.
Hverjir eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana bensíni
AO
Sprengisandur
103,67 kr.
Kópavogsbraut
103,67 kr.
Óseyrarbraut
103,67 kr.
eGO
Hæðasmári
105,7 kr.
Ægissíða
106,9 kr.
Vatnagarðar
105,7 kr.
Borgartún
107,2 kr.
Gullinbrú
106,7 kr.
jORKANj
Grafarvogur
103,3 kr.
Klettagarðar
103,3 kr.
Smáralind
105,7 kr.
Ártúnshöfði
107,2 kr.
Álfheimar
107,2 kr.
Skemmuvegur
103,7 kr.
03
Amarsmári
105,7 kr.
Gylfaflöt
106,7 kr.
J
Bæjarlind
105,7 kr.
Smárinn
107,2 kr.
Háaleiti
105,7 kr.
Lauaavegur
107,2 kr.
Audi-bílar ryðga minnst
Ný norræn rannsókn hefur leitt í
ljós að Audi-bílar ryðga minnst allra
bflategunda en Hyundai mest. Þetta
var kynnt á blaðamannafundi Félags
danskra bifreiðaeigenda (FDM) í
Lyngby fyrir skemmstu.
Niðurstöður rannsóknarinnar
benda til þess að miklar ryðskemmd-
ir geti komið fram í nýlegum bflum.
Þær bíltegundir sem era minnst
ryðsæknar eru Audi, Volvo og Saab.
Citroén og Renault standa betur að
vígi en í síðustu rannsókn en bæði
Ford og Mercedes fá slaka einkunn.
Rannsóknin var unnin af ryðvarn-
arráði Svíþjóðar úr gögnum sem safn-
að var um árabil í löndum Skandin-
avíu. Safnað var saman ákveðnum
yfirbyggingarhlutum úr þriggja og
sex ára gömlum bflum og þeir rann-
sakaðir bak og fyrir. Tæknistjóri
FDM, Per Antvortskov, sagði að kost-
ur þessarar rannsóknar væri sá að bfl-
ar hefðu batnað mikið en hann tók þó
fram að enn mætti gera betur. „Það á
ekki síst við um kóresku bílana," tók
hann fram.
Alvarlegar ryðskemmdir hafa kom-
ið fram á nýjum og nýlegum bílum
sem framleiðendur hafa einfaldlega
ekki séð um að ryðveija. Rannsókn-
in sýndi fram á að þeir bflar sem era
verksmiðjuryðvarðir á fullnægjandi
hátt endast mun betur en aðrir og era
að mestu leyti ryðfríir eftir sex ára
akstur á vegum Norðurlandanna.
Rannsóknin náði til 25 bflateg-
unda. Niðurstöðumar era taldar
mjög hagnýtar, bæði fyrir bifreiða-
eigendur og bflaframleiðendur, sem
nýta sér niðurstöðuna í ríkum mæli
til að bæta bfla sína.