blaðið - 07.06.2005, Side 20

blaðið - 07.06.2005, Side 20
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið afslátturaf sumardekkjum afsláttur af low-profile -20% afsláttur af sendibíladekkjum TST Vaxtalausar léttgreiðslur! Smiðjuvegur 34 | Rauð gata www.bilko.is | Sími 557-9110 20 g Stjörnugolf til sty 14. júní verður haldið golfmót á Keilisvöllum til styrktar samtökum MND-sjúk- dómsins. Mót- ið er á vegum Stjömugolfs en þar munu þjóð- þekktir einstakling- ar etja kappi við nokkra af albestu kylfingum lands- ins. Fyrirtækjum og einstak- lingum er einnig boðið Valinn maður á hverjum að senda inn tveggja teig manna lið gegn greiðslu Ræst verður upp úr kl. 12 en Wd sem rennur til styrkt- ar MND-samtökunum. Stjömugolf er nú hald- ið í annað sinn en í fyrra safnaði Stjörnugolf til styrktar Bamaspítala Hringsins. Golfað fyrir gott málefni. sem liður af mótinu verður leik- inn sjóðsleikur, eða skin game. Keppendur þar verða ekki af verri endanum en Björgvin Sigurbergsson og Ragnhildur Sigurðardóttir hafa staðfest þátttöku. Sjónvarpsstöðin Sýn mun gera sérstakan þátt um sjóðsmótið. Keppendalistinn er held- ur ekki af verri endanum en þar má meðal annars nefna Eyjólf Sverrisson knattspymumann, Hermann Gunn- arsson þáttastjómanda, Sigurð Val Sveinsson handboltakempu, Sveppa og Audda úr Strákunum, og þann- ig mætti lengi telja. Mótið er haldið vegna rausnarlegs ff amlags styrktar- aðila en Brimborg, Bónus, Icelandair og KB banki styðja þetta afskaplega góða málefni. Skráning á mótið fer ífam ó stjornugolfavisir.is. ■ „Glíman við sjálfan sig“ Arnar Jónsson er ekki einungis einn af ástsælustu leikurum þjóðarinnar - hann er líka lið- tækur kylfingur. Blaðið hringdi í Arnar og ræddi við hann um listina, lífið og iþróttina sem felst í golfinu. Hversu lengi hefurðu stundað golf, Arnar? Jah - ég fékk sett í fimmtugsafmælisgjöf þannig að það eru um 10 ár síðan maður byrjaði á þessu. Nú hefur maður heyrt að þú sért mikill golffrömuð- ur innan Þjóðleikhússins. Hefurðu verið duglegur að breiða út fagnaðarerindið? Það er nú erfitt að segja... en maður hefur kannski haft hönd í bagga með að kynna þetta aðeins...má þar nefna kannski meðal annars Sigurð Sigurjónsson, Randver, Rúnar Frey og Friðrik... sem maður hefur kannski haft einhver pínulítil áhrif á... Hvað er það svo sem heillar við golfið? Þetta snýst náttúrlega miklu meira um mannsandann en um einhverjar kúlur og prik. Það er yfir þessu ákveðin kyrrð sem maðurinn nær kannski ekki í glaumi hverdagsins... og svo sýnir þetta hvaða mann maður hefur að geyma - ef maður lemur til dæmis í stóru kúluna meira en þá litlu er nokkuð Ijóst hvernig maður tekur á vandamálunum. Það sem heillar er í raun glíman við sjálfan sig. Hversu mikið stundarðu golfið? Ég hef býsna mikið að sýsla við svo sem - en það má sennilega segja að ég stundi það hreinlega eins mikið og ég get. Hvemig er forgjöfin? Nú - ég fór neðst niður í 8,3 fyrir nokkru. Eftir það þurfti ég að fara í nokkrar aðgerðir út af gömlum meiðslum og fór aðeins upp, en ætli ég sé ekki í svona 9,4 núna. Það er magnaður árangur, verður að segjast. Þetta hefur tínst til - komnir einir 20 bikarar í safnið. Það er nóg til af dollum... Hefurðu einhvern tímann fariö í golfferðir? Ég hef nú ekki gert mikið að því - en ég hef þó farið í nokkrar. Til dæmistil Suður-Englands... á Spán... og svo fórum við svona leikaraferð til Irlands. Það var alveg hörkugaman. Við erum rétt að byrja á þessu, drengirnir. Svo bregðum við okkur stundum niður í kjallara í æfingahléum og púttum - það skilar sér alveg. Það er fínt að pútta í kristalssalnum líka... Á blússandi golffylliríi Afrekaskrá Sigurðar Sigurjóns- sonar er með þeim lengstu í islensku skemmtana- og leik- húslífi en hann hefur lagt fyrir sig kvikmynda-, sjónvarps- og sviðsleik, auk leikstjórnar, og skapað nokkra af eftir- minnilegustu grínpersónum seinni tíma. Blaðið ræddi við glaðbeittan Sigurð um golfið. Hversu lengi hefurðu stundað golf? Þetta er svolítið snúin spurning. Eg fékk sett í fertug- safmælisgjöf en það má sennilega segja að ég hafi stundað golfið í svona sex ár. Eða sjö. Jú - segjum sex. Hvernig kom það til að þú byrjaðir? Jah - það er nú saga að segja frá því. Ég snerti kylfu svolítið sem stráklingur en þá laumaðist ég að nætur- lagi á Keilisvöllinn sem þá var. Svo var dágóð pása í þessu hjá mér þar til ég vann með Arnari Jónssyni að myndinni Karlakórinn Hekla, en þá duttum við Arnar báðir í heljarinnar golffyllirí og ekki alls kostar Ijóst hve- nær eða yfirleitt hvort verður stigið upp úr því. Hversu mikið stundarðu golfið? Ég stunda golf helst einu sinni í viku - er með fastan tíma með þremur félögum mínum - en svo helst svona 5-6 sinnum þar fyrir utan. í viku? Já - eða svona eins og vinna og fjölskylda leyfir. En a.m.k. einu sinni í viku fast. Ég er mjög hrifinn af golf- iþróttinni því hún er allra meina bót fyrir fólk af öllum stærðum, gerðum og stéttum. Ég fæ mína hreyfingu úr golfinu og andans upplyftingu - í golfinu þarf mað- ur svo lítið að tala, maður þarf bara að vera - og það er svo gott. Hefurðu einhvern tímann farið í golf-ferðir? Ég hef nú ekki farið mikið svo sem - en ég hef farið tvisvar til frlands og svo einu sinni á Stanstead að spila golf þar um kring... en mig langar ósköp að fara í svona alvöru ferðir - til Bandaríkjanna og svo til Tæ- lands, en þar segja kunnugir að séu fegurstu golfvellir í heimi. Svo að sjálfsögðu I pílagrímsferð til St. Andrews...? Að sjálfsögðu. Hvað ertu svo með í forgjöf? Iss - ég get ekkert í golfi - það er það fallegasta við það allt saman - en ég er með svona 20.21 á góðum degi kannski. „Forgjöfin er ríkisleyndarmál“ Randver Þorláksson þarf vart að kynna en hann hefur kitlað hláturtaugar landans með Spaugstofunni og leikið óteljandi hlutverk á leiksviðum landsins. Blaðið tók Randver tali og ræddi við hann um golfið. Hversu lengi hefurðu stundað golf, Randver? Ætli það séu ekki svona 5-6 ár. Hvernig kom það til að þú byrjaðir? Ja... ætli það hafi ekki verið Arnar Jónsson sem dró mig út í þetta. Er svoiítið af leikurum í golfinu? Já - þeim fer fjölgandi. Siggi Sigurjóns er liðtækur og Örn Arna hefur verið að spila svolítið líka. Hversu mikið stundarðu golfið? Það er ósköp misjafnt - ekki nógu mikið. Hefurðu einhvern tímann farið í golfferðir? Já - við höfum farið tvisvar. Skruppum til írlands einu sinni og brugðum okkur svo til Þýskalands til hans Arnars Más. Hvað ertu svo með í forgjöf? Það er ríkisleyndarmál - en ég stefni ótrauður á lækkun. Amar, Sigurður og Randver eru meðal þátttakenda í Stjömugolfi eoos Glæsilegt kvennamót - seldist upp á þremur tímum Golfverslunin Nevada Bob stendur fyrir Opna Nancy Lopez mótinu 12. júní, en mótið er eingöngu fyrir kon- ur. Greinilegt er að þetta mót þykir eftirsóknarvert því öll 124 sætin seld- ust upp á eingöngu þremur tímum eftir að opnað var fyrir skráningu. Dagskráin er glæsileg en tekið er á móti keppendum í morgunkaffi kl. 8 um morguninn. Síðan býður GR kepp- endum í Bása í upphitun, og kl. 9.30 er ræst út á öllum teigum samtímis. Verðlaunin eru ekki af verri endan- um, en í fyrstu verðlaun er heilt sett af Nancy Lopez golfvörum. Tekið verður á móti keppendum með léttum veitingum þegar þær koma inn af teig- unum aftur, og síðan verður sest að snæðingi í golfskálanum í lok móts. Fulltrúar Nancy Lopez gáttaðir Velgengni Nevada Bob og Opna N ancy Lopez mótsins hefur vakið tölu- verða athygli ytra og fulltrúar Nancy Lopez eru að vinna að fféttum um málið. Aðspurður segir Hans Hentt- inen framkvæmdastjóri að stefnt sé að ffamhaldi - 29. september fari 50 konur út á glæsilegt Nancy Lopez mót í Hanbury Manor, þar sem full- trúar ffá Nancy Lopez munu mæta og fá tækifæri til að dást að íslensk- um golfkonum. „Það er ljóst að við höf- um bara hitt á framboð sem virkar.“ Ekkert lát virðist vera á vinsældum golfíþróttarinnar, svo mikið er víst.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.