blaðið - 07.06.2005, Síða 22

blaðið - 07.06.2005, Síða 22
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið Real nálgast Gerrard Breska blaðið, The Sunday Mirror, greindi frá því í gær að ágætar líkur væru á því að Steven Gerrard, fyrir- liði Evrópumeistara Liverpool, yrði seldur til spænsku risanna í Real Madrid innan tveggja mánaða. Kaupverðið yrði um sex milljarðar íslenskra króna. Líklegra er talið að Gerrard fari til Real Madrid en Chelsea þar sem Liverpool-menn vilja síður selja sinn aðalmann til liðs innan Eng- lands. Gerrard vill Sjálfur ekki fara frá Liverpool nema að topp- verð fáist fyrir hann þannig að Liverpool beri eitt- hvað úr býtum. Torres til Chelsea? Roman Abramovich, eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, ætlar á allra næstu dögum að reyna að kaupa sóknarmanninn unga, Fern- ando Torres, frá Atletico Madrid. Chelsea bauð 24 milljónir sterlings- punda í strákinn fyrir ári en var hafnað, en nú ætlar Abramovich að bjóða 40 milljónir punda, sem er jafnvirði um 4,8 milljarða íslenskra króna. Torres er með klásúlu í samningí sínum að ef eitthvert lið bjóði 60 milljónir punda í sig megi hann fara frá félaginu. H Tvær breytingar á U-21 hópnum Eyjólfur Sverrisson, þjálfari lands- liðs íslands, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hefur þurft að gera tvær breytingar á landsliðshópi sínum fyrir leikinn gegn Möltu, sem er í kvöld. Tryggvi Sveinn Bjarna- son tekur út leikbann en hann fékk að líta rauða spjaldið á móti Ungverjum á sunnudag og þá er Sigmundur Kristjánsson meiddur. í þeirra stað hefur Eyjólfur valið KR-inginn Sölva Davíðsson og Vals- manninn Garðar Gunnlaugsson. Garðar á nokkra landsleiki að baki með U-17 ára liðinu og U-19. Sölvi hefur leikið með U-19 ára liðinu en hvorugur hefur áður leikið með 21 árs landsliðinu. Leikurinn í kvöld er liður í undankeppni Evrópumótsins og fer fram á KR-vellinum og hefst klukkan 18. Islenskar konur hl Kvennahlaup ÍSÍ fer fram ó yfir 100 stöðum hér á landi og erlend- is næstkomandi laugardag. í ár er þema hlaupsins „Áfram, stelpur!" og er markmiðið að vekja athygli á mikilvægi þess að konur, og þá ekki síst ungar stúlkur, eigi sér heilbrigðar og sterkar fyrirmyndir. í gær, sunnudaginn 5. júní, hlupu sjö íslenskar konur í Addis Ababa, höfuð- borg Eþíópíu, fyrstar Kvennahlaup ÍSÍ á þessu ári. Hlaupið fór fram á risastóru aðaltorgi borgarinnar, Meskel-torgi, sem er í 2.500 metra HH m \ hæð yfir sjávarmáli. Yngsti þátttakandinn var sex ára. Áhorfend- ur voru eiginmenn, bræður og synir hlauparanna, auk nokkurra betlara og götusala. Meðfylgjandi mynd sendi Ragnar lopiu Schram frá Eþíópíu af íslensku kepp- endunum. Maður handtekinn vegna sprengjuhótunar Tottenham kærir Chelsea 41 árs maður, David Mathew-Ant- hony Demeres, var handtekinn á laugardag, skömmu fyrir leik núm- er sex hjá Detroit Pistons og Miami Heat í úrslitum Austurdeildar NBA- körfuboltans. Demeres hafði hringt inn í höllina í Aubum Hills og sagt að ef leikurinn á milli Detroit og Miami yrði settur af stað þá mundi springa sprengja sem hann væri búinn að koma fyrir í höllinni. Þetta gerðist tveimur klukkustundum fyrir leik- inn en engin sprengja fannst og leikurinn gat því hafist á réttum tíma. Lögreglan hafði uppi á Demeres og var hann hand- tekinn á sunnudag. Eftir yfirheyrsl- ur var honum síðan sleppt gegn um það bil 975 þúsund íslenskra króna í tryggingu. Fyrr í vetur varð sprengju- hótun fyrir leik Indiana og Detroit ó heimavelli Indiana Pacers. Sá leikur tafðist um 90 mínútur. ■ Enn og aftur eru forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea komnir í vandræði. Eftir að hafa verið sektaðir um háar fjárhæðir vegna ólöglegrar nálgunar við Ashley Cole, leikmann Arsenal, er annað Lundúnarlið, Tottenham, að íhuga alvarlega að kæra Chelsea. Tottenham telur að Chelsea hafi á ólögmætan hátt haft samband við yfirmann íþróttamála hjá Tottenham, Frank Arnesen. Vitað er að Chelsea sendi Tottenham bréf þar sem þeir óskuðu eftir því að fá að ræða við Frank Arnesen en forráðamenn Tottenham telja að viðræður á milli Arne- sen og Chelsea hafi þegar átt sér stað. Tottenham hefur þegar vikið Frank Arne- sen úr starfi og það þykir nokkuð víst að hann fari til Chelsea. Mörgum finnst að Daninn Frank Arnesen, sem kom frá PSV Eindhoven til Tottenham á síðasta ári, hafi verið tvöfaldur í roðinu í þessu máli og David Pleat, fyrrum yfirmaðurfótbolta- mála hjá Tottenham, vandar honum ekki kveðjuna I breskum fjölmiðlum. Pleat var einn aðalmaðurinn í að fá Arnesen til Tottenham en hann var þá að missa starfið hjá PSV. „Það er vond lykt af þessu máli,“ sagði David Pleat og einnig að málið liti ekki vel hvað varðar þátttöku Franks Arnesen í því. ■ HÁDEGlSVERÐARHMÐeOfíÐ frá kl: 11.30 - 13.30 mánudaga til PIZZA SÚPA OG BRAUÐ KR: 800, Players alqjör truflun PLAYERS föstudaga y 4 L ^Port Ca^ j Bæjarlind 4 S: 544 5514 Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigur- vinsson og Logi Ólafsson hafa neyðst til að gera margar breytingar á lands- liðshópnum frá því hann var valinn fyrst fyrir leikina gegn Ungveijum og Möltu. Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópnum gegn Ungveijum vegna leikbanns en hann verður löglegur á morgun. Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson og Indriði Sigurðsson, verða í leikbanni á morgun og Pétur Hafliði Marteinsson er fótbrotinn eftir leikinn ó laugardag. Hjálmar Jónsson er einnig meiddur. Auk Heiðars eru nýir inni í hópnum frá leiknum við Ungverja - Helgi Valur Daníelsson frá Fylki, Auðun Helgason úr FH og Bjarni Ólafur Eiríksson úr Val. Helgi Valur á einn A-lands- leik, Bjarni Ólafur er leikjalaus en Auð- un á 29 A-landsleiki fyrir ísland. Landsliðshópur fslands gegn Möltu: Nafn L M Fyrirliöi Félag Árni Gautur Arason 45 4 Válerenga IF Kristján Finnbogason 19 1 KR Brynjar Björn Gunnarsson 49 3 Watford FC Arnar Þór Viðarsson 37 Lokeren Eiður Smári Quöjohnsen 35 14 13 Chelsea FC Heiöar Helguson 34 5 Watford FC Tryggvi Guðmundsson 34 9 2 FH Auðun Helgason 29 1 FH Gylfi Einarsson 19 1 Leeds. United Veigar Páll Gunnarsson 9 Stabæk IF Stefán Glslason 5 SFK Lyn Grétar Rafn Steinsson 4 1 Young Boys Gunnar Heiðar Þorvaldsson 2 Halmstad BK Kári Árnason 2 Djurgárdens IF Helgi Valur Danlelsson 1 Fylkir Haraldur Freyr Guðmundsson 1 Aalesunds FK Jóhannes Þór Harðarson 0 IK Start Bjarni Ólafur Eiríksson 0 Valur

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.