blaðið - 07.06.2005, Qupperneq 29
blaðið I þriðjudagur, 7. júní 2005
.wr,--'-
rá 29
Fjölmiðlar
Dapurlegur klukkutími
Á Útvarpi Sögu er morgunþáttur sem
nefnist Bláhornið en þar lætur Gústaf
Níelsson gamminn geisa með aðstoð
hlustenda. Gústafgetur verið skemmti-
legur en það er ákveðinn galli á hans
ráði að hann hefur slæmt ofnæmi fyr-
ir femínistum og umbreytist í verstu
tegund af karlrembu í hvert sinn sem
málstaður þeirra berst í tal. Honum er
heldur ekki vel við samkynhneigt fólk,
sem hann virðist vilja lækna af „vill-
unni“. Nú er komið í ljós að útlending-
ar eru útvarpsmanninum ekki heldur
nægjanlega þóknanlegir.
Gústaf var stórlega misboðið á dög-
unum vegna frétta
um að íslensk stjórn-
völd hefðu ákveðið
að veita konum frá
Kólumbíu hæli hér á
landi. „Allslaust og
ómenntað fólk,“ þrum-
aði hann, og bætti við
að alls kyns vandamál
myndu fylgja í kjölfar þessa „innflutn-
ings“. Helst var á honum að skilja að
kólumbíska mafían myndi fylgja kon-
unum til landsins. Hlustendum gafst
síðan tækifæri á að
hringja inn í þáttinn
og koma með innlegg
í umræðuna. „íslensk
stjómvöld skulda
okkur skýringar,"
brýndi Gústaf fyrir
hlustendum, og svo
sannarlega drógu
hlustendur ekki af sér í fordæmingu
á þessari ákvörðun íslenskra stjórn-
valda. Að minnsta kosti tvisvar var
skorað á Davíð Oddsson að beita sér
í málinu, hann væri stjómmálamaður
sem ætti að hafa dug og djörfung til
þess. Og af því að þetta fólk taldi sig
svo vel upplýst og sanngjarnt bætti
það gjarnan við, eftir að hafa fordæmt
þessa ákvörðun stjórnvalda og hellt úr
skálum reiði sinnar: „Ég hef nú ekkert
á móti þessu fólki.“
Það var satt að segja ótrúlegt að
hlusta á hversu glaðbeitt fólk var og
ákaft í fordómum sínum. „Er ekki
bara hægt að endursenda þessar kon-
ur ef þær eru ljótar,“ sagði einn hlust-
andi og það kumraði í honum vegna
eigin fyndni. Gústaf skellti skuldinni
á femínista, sem hann taldi hafa mis-
notað íslensk stjórnvöld og talaði um
„kerlingagrúppur sem væru að reyna
að bjarga heiminum og flytja inn ein-
stæðar mæður og ekkjur."
Heldur var þetta dapurlegur klukku-
tími á Útvarpi Sögu.
22.00 Tíufréttir
22.20 lllt blóð (4:4)
Breskur spennumyndaflokkur þar sem
sálfræðingurinn dr. Tony Hill reynir
að ráða í persónuleika glæpamanna
og upplýsa dularfull sakamál. Atriði í
þáttunum eru ekki við hæfi bama. Aðal-
hlutverk: Robson Green og Hermione
Norris.
21.15 LasVegas 2 (21:24)
(Hide And Sneak)
22.00 Shield (7:13)
(Sérsveitin 4)The Shield gerist í Los
Angeles og fjallar um sveit lögreglu-
manna sem virðist hafa nokkuð
frjálsar hendur.Stranglega bönnuð
bömum.
22.45 Navy NCIS (12:23)
Bönnuð börnum.
21.15 Brúðkaupsþátturinn Já
- Ný þáttaröð
22.00 CSI: Miami - Ný þáttaröð
22.45 Jay Leno
21.00 Toyota-mótaröðin í golfi 2005
22.00 Olíssport
22.30 David Letterman
Það er bara einn David Letterman.
Góðir gestir koma í heimsókn og
Paul Shaffer er á sínum stað.
22.00 A Beautiful Mind
(Góður hugur)
Aðalhlutverk: Russell Crowe, Ed Har-
ris, Jennifer Connelly, Christopher
Plummer. Leikstjóri er Ron Howard.
2001. Bönnuð börnum.
21.00 Real World: San Diego
21.45 Kenny vs. Spenny
22.10 Meiri músík
23.45 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldiö. 1 00.05 Dagskrárlok
23.30 Twenty Four 4 (20:24) (24) Margverðlaunuð þáttaröð sem hefur hvarvetna slegið í gegn. Stranglega bönnuð bömum. 00.15 The Wash (Bílaþvottastöðin) Aðalhlutverk: Anthony Albano, Dr. Dre, Tic, Snoop Dogg. Leikstjóri er D.J. Pooh. 2001. Stranglega bönnuð börn- um. 01.50 Fréttir og íslanú f dag Fréttir og ísland í dag - endursýnt frá því fyrr í kvöld. 03.10 ísland í bítið 05.10 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíVÍ
23.30 The Contender - NÝTT! (e) Leitin að næstu hnefaleikaleikastjörnu er hafin! Sextán hnefaleikakappar hafa verið valdir til að taka þátt í sam- keppni um hver er efnilegastur. í hverj- um þætti munu tveir þeirra berjast og sá sem tapar verður sendur heim. Sá sem stendur einn uppi í lokin verður milljón dölum ríkari. 00.15 Cheers - 3. þáttaröð (e) 00.40 Boston Public 01.20 John Doe 01.35 Óstöðvandi tónlist
23.20 Maradona Hann er elskaður frá Buenos Aires til Napólí. Diego Armando Maradona var besti knattspyrnumaður heims. Hann leiddi Argentínumenn til sigurs á HM í Mexíkó 1986 en átta árum síðar var hann rekinn frá HM í Bandaríkjunum vegna ólöglegrar lyflanotkunar. Hér er fjallað um leið hans á toppinn og líka hraða niðurleið hans á botninn. Mar- adona er enn í fréttunum en baráttu hans við eiturlyfjafíknina ætlar aldrei að Ijúka.
1 <*'WI ! 00.15 40 Days and 40 Nights (Fjörutíu dagar og nætur) Bönnuð börnum. 02.00 Phantom of the Opera (Óperudraugurinn) 04.00 A Beautiful Mind (Góður hugur) Bönnuð bömum.
Naples: Shinka, pfippenone. Bveppir.
sv. 6Hfur, hvtttautair, qrœnn pipar, parme&an
Toscana: Pcppcrono, jalaponos. rjómaoctur,
an*na«, sv. óllfur, hvíUaukur, sveppir, krydd
Komdu og taktu meö,
boröaðu á staönum
eöa fáöu sent heim
5111000
Molar
Horfirðu minna á sjónvarp á sumrin?
Victoria Beckham
með áhyggjur
af útlitinu
Victoria Beckham segist
vera með miklu meiri
áhyggjur af útliti sínu
en nokkrum kjaftasög-
um um framhjáhald
eiginmanns síns. „Ég
hef svo siginn maga. Ég
hef nákvæmlega engan
rass. Fólk segir að galla-
buxurnar mínar séu eins
og undrabijóstahaldari
fyrir þeirra rass. Ég verð
bara að trúa þeim því ég
hef ekkert á afturendanum. Ég verð
að stinga honum út og þykjast. Trú-
ið mér, ég lít hræðilega út nakin."
Þegar Victoria er spurð um nýjustu
myndirnar af David Beckham að
kyssa aðra konu segir hún að það sé
bara hluti af starfi
hans. „Þetta er öm-
urlegt grín. Aðdá-
endur nálgast hann
alltaf. Þetta er bara
hluti af hans starfi."
Victoria segir að
þetta hafi ekki verið
auðvelt en hún vilji
enga samúð. „Ég
veit að sumir vilja
ekki trúa því en við
erum raunverulega
hamingjusöm. Allt
í lífi mínu er gott.“
David Beckham og
Victoria hafa loksins fundið heimili í
Madríd, eftir mikla leit, og munu þau
flytja þangað ásamt börnunum í júlí.
Ragnar Kaspersson Júlíanna Frlðjónsdóttir Ester Rós Gústavsdóttir Einar Guðmundsson ásamt Sigurður Sivertsen
Stellu Björk
„Ég horfi yfirleitt ekki mikið
á sjónvarp en horfi þó
minna á sumrin. Ég hef
bara meira aö gera og er
„Já, það er svo gott veður
og bjart."
„Já, ég er minna heima við
á sumrin."
„Já, ég er meira úti við.u
„Já, því á sumrin vil ég
vera úti.“
meira úti.“