blaðið - 07.06.2005, Síða 30

blaðið - 07.06.2005, Síða 30
þriðjudagur, 7. júní 2005 I blaðið unn/... Spegill, spegill, herm þú mér, hver á landi fegurst er? Hégómleiki, minnimáttar- kennd og öryggisleysi eru helstu forsendur markaðar- ins. Þar leggja menn á ráðin um framtíðina og möguleika á að raka inn peningum, byggja á væntingum til þessara kennda almennings. Auðvit- að er mikilvægt að ýta undir slíkar kenndir þegar búið er að setja stórfé í þessar vænt- ingar. Það þarf að auglýsa, segja fólki hreint út að það líti ekki nógu vel út. Það sé of horað eða of feitt eða lykti ekki nógu vel, hafi of langt nef eða of stutt hár. Að það komist ekki af í nútímasamfélagi án þess að eiga hitt eða þetta og að það þurfi að gæta sín á öllu mögulegu, já, hreinlega á því að lifa. Svo er mikilvægt að finna ný viðmið í þessum efn- um á nokkurra mánaða fresti svo almenningur haldi enda- laust áfram að eltast við hið ómögulega, og eyða meiri pen- ingum í hégóma, minnimáttar- kennd og öryggisleysi. Aukin öryggistilfinning Auðvitað beijast stjómendur fyrirtækja einnig við bijálaða minnimáttarkomplexa og ör- yggisleysi. Þeir þurfa líka að ráðast í enduríj ármagnanir eftir hraðan vöxt, líkt og kon- ur sem hlaupa eftir fyrirmæl- um markaðsspekúlanta um hvað er í tísku og hvað ekki. Nýjustu fregnir af markaði herma að Shoe Studio Group stefni að því að skrá félagið í Kauphöll íslands í kjölfar við- töku íslenska markaðarins á Mosaic Fashions. Forstjóri síð- amefnda fyrirtækisins sagði í fréttum fyrir skömmu að hann stefndi á íslenska mark- aðinn vegna mikillar lántöku fyrirtækisins, þeir yrðu bara að endurfjármagna. Kemur við pyngjuna Þessar mögulegu nýskrán- ingar í Kauphöllina em ein- ungis staðfestingar á þeirri almannavitneskju að konur em þær sem mestu ráða á markaðnum. Auðvitað er það neytendavaldið sem konur fara með en því miður er ekki sömu sögu að segja af hinum enda markaðarins. Þaðan berast endalausar fréttir af fáum konum í stjómum fé- laga, framkvæmdastjóm fyrir- tækja eða bankanna. Þær sem komast yfirhöfuð að virðast svo fá afskaplega takmörkuð laun ef þau em borin saman við karlmenn í sömu stöðum. Kannski konur ættu að beita betur þessu valdi. Bæði fijáls- hyggjumenn og kommúnistar taka undir það sjónarmið að auðveldast sé að stýra fólki í gegnum budduna. Konur allra markaða sameinist! Það á auðvitað eftir að koma í ljós hvemig Mosaic Fashi- ons gengur að fá íslenskan al- menning til liðs við sig við að endurfjármagna fyrirtækið. Það er vafamál hvort íslensk- ar konur, sem nú þegar hafa lagt fyrirtækinu fjárhagsleg- an stuðning með tískufatn- aðarkaupum, hafi nokkum áhuga á að leggja því frekara lið. Það sama má segja um bresku skógrúppuna. Það verð- ur líklega ekki eins auðvelt að sannfæra íslenskar konur um að kaupa hlutabréf í tískufyr- irtækjum eins og að sannfæra þær um að þær líti ekki nógu vel út. Sérstaklega ekki eft- ir að íslenskar konur áttuðu sig á tískugildi þæfðrar ullar og fiskiroðs. Hátt gengi krón- unnar gæti þó fengið þær til að snúa sér að öðm. Neyðin kennir naktri konu að velja pólíester. Heimildarmaður, náinn Ashton Kutc- her og Demi Moore, segir að Ashton sé áfjáður í að kvænast Demi. „En hingað til hefur Demi enda- laust komið með nýj- ar afsakanir." Demi hefur verið þögul um einkalíf sitt und- anfarið. Þau Ashton hafa hvorki tilkynnt opinberlega um trú- lofun sína né óléttu en Demi er komin flóra mánuði á leið. Þótt Demi sveiji að hún sé enn ást- fangin af Ashton er hún ekki viss um að bameignir þýði endilega að þau þurfi að hlaupa upp að altarinu. Par- ið hyggst þó fagna tveggja ára afmæli sínu með ferð til Evrópu. Vinir Demi segjast ekki búast við að hún giftist fyrr en eftir að bamið er fætt. Enn aðrir halda því ffam að óöryggi sé að tmfla Demi. „Það sem hlýtur að vera að tmfla Demi er að ef hún giftist Ashton þá mun spennan í samband- inu minnka. Ashton er einmitt á öðm máli. Hann álítur að það að verða hjón geri sambandið sterkara." Lisa Kudrow ,s , , i sjonvarpið a ny Lisa Kudrow leikur fertuga stjömu sem vill komast aftur í sviðsljósið í nýrri þáttaröð sem ber heitið The Comeback. Aðalsöguhetjan í þáttun- um, Valerie Cherish. vill endurlífga feril sinn í sjónvarpi þar sem hún lék í vinsælum þáttum fimmtán árum áður, en margir álita hana búna að vera. Valerie er heltekin af ferli sín- um, auk þess að vera sérstaklega upp- tekin af sjálffi sér. „Það er ekkert af hennar lífi sem líkist mínu,“ segir Ku- drow brosandi. „Ég hef ekki áhyggjur af þeim hlutum sem hún hefur áhyggj- ur af. Skýringuna má finna með því að fylgjast með sjálfhverfu, þurfandi fólki, ekki bara leikumm. Fólki sem á allt - ffábæran maka, yndisleg böm, engar fjárhagslegar þarfir, en finnst það ekki vera lifandi nema að hafa drama og spennu í lífi sínu.“ Þætt- imir um Valerie Cherish urðu til eftir hádegismat við Micheal Patrick King, höfund hinna vinsælu Sex and the City. „Hvoragt okkar var spennt fyrir því að vinna í seríu aftur,“ seg- ir Kudrow. „Við sögðum bæði að við myndum taka okkur pásu og gera þetta aftur þegar rétti tíminn væri kominn. Þegar það gerist þá veit ég það og ég vissi það í þessum hádegis- verði." Micheal King sagði að Kudrow hefði komið með hugmynd að þessari persónu sem hún vildi endilega leika, persónu sem heldur að hún sé hæfileika- ríkari ogviðkunn- anlegri en hún er. „Síðan byij- aði hún að leika þessa persónu og ég skellihló. Við hugsuðum hvem- ig væri að setja þessa persónu í heim sjónvarps- ins þar sem við þekkjum bæði þann heim.“ Þessi nýi þáttur mun gefaKudrowtæki- færi til að skrifa sjálf eitthvað af þáttunum, tæki- færi sem hún fékk aldrei þegar hún lék í Friends. Fyrrum vinnufé- lagi Kudrow úr Friends, Matt Le- Blanc, segist ekki hissa á að hún sé að skrifa. „Hún hefur ffábært vinnu- að fyrsta árið er erfitt. Ekki bera það viðhorf. Eina ráð mitt til hennar er saman við síðasta árið af Friends." ■ Kelly Osbourne aftur í meðferð Kelly Osbourne er aftur komin í með- ferð en innan við ár er liðið síðan síðustu meðferð hennar lauk. Þessi tvítuga söngkona, dóttir hins þekkta Ozzys Osboume, skráði sig sjálf í meðferð eftir nokkrar erfiðar vikur. Vinir hennar styðja hana til fulln- ustu og einn þeirra lét hafa eftir sér að: „Kelly verður í meðferð í nokkrar vikur. Gömul vandamál tóku sig upp og henni h'ður ekki alltof vel. Vinir hennar era áhyggjufullir en vita að hún er sterk. Hún hefur komist í gegnum þetta áður og mun gera það aftur.“ Blaðafulltrúi söngkonunnar sagði í yfirlýsingu að Kelly væri á stofnun að leysa úr nokkrum per- sónulegum vandamálum og kæmi aftur eftir nokkrar vikur. Osboume- fjölskyldan hefur mætt og tekist á við ýmislegt undanfarið en bæði Ozzy og Jack sonur hans hafa barist við vímuefnavanda, auk þess sem veikindi hafa hijáð fjölskylduna. ia 'T Hvað segir um framtíðina? Ellý S PAMAÐUR. IS Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.) ©Tvíburarnir (21. maf-21. júnQ Vogin (23. sept.-23. okt.) $ Vestfjaröarkjálkinn segir til um styrk þinn þegar kemur að þér að takast á við verkefni eða átak einhvers konar. V Samhliða Vestfjarðarmyndlíkingunni ert þú minntur á að þú ert ekki fær um að öðlast ham- ingju í sambandi fyrr en þú ert fær um að horfast í augu við ótta þinn gagnvart framtíðinniog jafn- vel skuldbindingu. OFiskarnir (19. febr.-20. mars) $ Inn af Húnaflóa ganga firðirnir Húnafjörður, Hrútafjörður og Miðfjörður. Þegar firðir birtast samhliða stjörnu þinni er það abending um að þú leitir fleiri leiða. V Firðirnir þrír benda á þristinn hjá stjörnu fiska sem segir til um félagsmótun og lífsnautnir þínar.Stundum hættir þér hins vegar til að ýkja. ©Hrúturinn (21. mars-19. aprfl) S Þegar starf þitt er annars vepar er auðvelt að móta þig og það gæti komið ser vel fyrir þig þegar líða tekur á júnímánuð. V Þverhníþt sjávarbjörg lýsa þér hérna og segja að innsti kjarni þinn þráir að opna sig gagnvart þeim sem skipta þig sannarlega máli. Hér er minnst á að viðbrögð þín eru óaðfinnan- lega rétt varðandi tilfinningamál. Nautið (20. apríl-20. maij $ Vogskornar strendur birtast hér sem mynd- líking samhliða stjörnu nautsins. Miðað við lýs- inpu þessa mættir þú hlusta betur á fólkið sem þu starfar með því hér birtist jafnvel hópur fólks sem tengist þér faglega á einhvern hátt. V Þegar svokallaðir Vestfirsku Alpamir birt- ast (toppótt fjöll) ertu minntur á að gera þér ekki of miklar vonir og minnka væntingar þínar. Hægar en góðar framfarir eiga vel við ef þú ert í ástarsambandi. $ Átta sjómílur suður af Reykjanesi er El- dey (lítii móbergseyja) og þar er reyndar þriðja mesta súlubyggð í heiminum en hun sýnir fólk fætt undir stjörnu tvíbura, sér í lagi viðkvæmt en hugmyndaríkt þó. V Eldey segir einnig til um ferðalag eða flutn- ingar (breytingar og nýtt ókannað umhverfi) þeg- ar kemur að aðstæðum þínum. ©Krabbinn (22. júní-22. júlQ $ Fossinn Dynjandi í Arnarfirði segir til um kraft og mikið orkuflæði innra með þér. Hraði á vel við þig hérna. V Hjartastöðvar þínar eru oþnar fyrir mann- lega þættinum (mannlegum samskiþtum). Persónulegar aðstæður þínar fara batnandi því þú ert einstaklega rólegur í fasi og umburðar- lyndur. ©Ljónið (23. júli- 22. ágúst) $ Trölladyngja kemur hér fram sem segir þig reiðubúinn að takast á við breytingar. Nýr kafli hefst hjá þér og þú heldur áfram för þinni með opinn huga. V Jarðhiti er mikill á svæðinu, sem minnst er á hér að ofan, og það sýnir að þú ert lelddur áfram en þó án þess að þú gerir þér jafnvei fulla grein fyrir því. €!^ Meyjan |f (23. ágúst-22. sept.) $ Þyrill í Hvalfirði á vel við metnað þinn og það er eins og það ólgi innra með þér þessa dagana óbilandi þrá til að ná árangri. Þessi ólgusjór er jákvæður en þú mátt ekki gleyma að hvíla þig. V Einnig er komið inn á að þegar þú kynnist betur hinu sanna eðli þínu muntu verða fær um að hlúa mun betur að fjölskyldu þinni og þeim sem þér er annt um. $ Hornstrandir (fjölskrúðugt friðland) eiga vel við hér þegar stjarna vogar er könnuð. Samhliða Hornströndum er næsta víst að tær vitund þin er þinn andlegi grundvöllur og góður tími er fram undan. ♦ Sælureitur líkt og Hornstrandir segir til um að það er upphaf á einhverju stórkostlegu hérna sem þú leggur metnað þinn í og sköpunarkraft sem fyllir þig lífi og vilja. ©Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.) $ Dalirnir eru aðalsögusvið Laxdælu en þar koma landafundir og Eirikur rauði við sögu og ekki má gleyma Leifi syni hans og uppbyggingu á Eiríksstóðum í Haukadal. Hér ert þú t hlutverki byggingameistara sem býr yfir miklum styrk sem flýtur þig í hæstu hæðir ef því er að skiþta. V Uppbyggingin (myndræn líking) segir að nýverið virðist þu hafa verið með hugann við (astar)sambönd fortíðar. Með því að líta um öxl og sjá hvað vel fór og ekki síður hvað betur mátti fara. Bogmaður (22. nóv.-21. des.) S Eyrbyggja er sú saga Islendingasagna sem einkum tengist Snæfellsnesi. Þessar sögur greina m.a. frá Þorólfi Mostrarskeggi, landnáms- manni sem hafði svo mikinn átrúnað á fjalli nokkru að hann kallaði það Helgafell en sam- hliða þvi ertu minntur á að besta hugsun fortíðar er að fylgja framtíðinni með réttu hugarfari. V Helgafellið í myndrænu llkingunni hér að ofan segir þér einfaldlega að þú ræður við hvað sem verður á vegi þínum ef þú aðeins eflir innra jafnvægi þitt betur og trúir að draumar þínir verði ao veruleika._________________ ___ ©Steingeit (22. des.-19. jan.) $ Vatnsfall birtist hjá stjörnu steingeitar hérna. Virkni þín er áberandi mikil um þessar mundir.Hér ertu virkur i ákvarðanatökum þegar starfið er tekið fyrir. V Þegar miklar ár falla og öflug vatnsföil birt- ast er tilfinningaflæði bitt an efa óstöðugt. Þú getur þó komið í veg ryrir eigið ójafnvægi með því að láta ekkert og engan koma þér úr jafn- vægi og hvíla þig þegar þú finnur fyrir álagi og þreytu.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.