blaðið

Ulloq

blaðið - 07.06.2005, Qupperneq 32

blaðið - 07.06.2005, Qupperneq 32
Sigldu frá Camden Town til Notting Hill Á Camden útimarkaðnum er margbrotið úrval af alls kyns fatnaði og varningi. Við bendum fólki sérstaklega á furðulegu pönkaratískubúðina Cyberdog sem er vel þess virði að skoða. Fáir vita að hægt er að sigla frá Camden fyrir lítinn pening alla leið til Notting Hill. Stórskemmtilegur möguleiki fyrir Lundúnafara. FYRIR ÞUSUND ARUM UPPGÖTVUÐU ÍSLENDINGAR AMERIKU .NU ER KOMINN TIMI A EVROPU! KAUPMANNAHÖFN Danmörk Vissir þú... að 20% af rafmagni i Danmörku kemur frá vindmyllum, en það er heimsmet í nýtingu vindorku? * Sannkallaðir djassgeggjarar! Það jafnast ekkert á við djasshátíðina í Kaupmannahöfn sem haldin er í júlí ár hvert og er stærsta uppákoma borgarinnar. Fyrstu 10 dagar mánaðarins eru hreinlega troðfullir af tónum enda yfir 800 tónleikar haldnir í görðum, kaffihúsum, torgum og börum borgarinnar. Flóamarkaðurinn á Frederiksberg Frederiksberg Fleemarket er haldinn alla laugardaga frá kl. 8-14. Þarfást notuðföt, antikmunir, skartgripir og alls kyns annar varningur sem vert er að skoða. Sólarlandið Danmörk Á sumrin verður gjarnan mjög heitt í Kaupmannahöfn og þá er tilvalið að skella sér með lestinni niður á strönd á Amager eða íslandsbryggju og skora á innfædda í strandblak. www.aok.dk »Ef þú vilt forðast það að reita frændur okkar Dani til reiði skaltu hafa eftirfarandi atriði bak við eyrað: »Ekki kvarta yfir óbeinum reykingum »Ekki sleppa því að ná augnsambandi við það fólk sem þú skálar við því ef þú gerir það boðar það 7 ára depurð í kynlífi þínu! »Aldrei fara yfir á rauðu gönguljósi! LONDON Ég kemst í hátíðarskap... City of London Festival er árleg menningarhátíð sem haldin er 27. júní til 13. júlí. Mjög mikið er um að vera á meðan hátíðinni stendur enda nær hún til flestra listageira og höfðar jafnttil ungra sem aldinna. Lestu þértil um hátíðina á www.colf.org. England Vertu bræt og farðu til Brighton! Þegar ríkar poppstjörnur fá nóg af ysnum í London flytja þær til fallega sjávarbæjarins Brighton sem er i um klukkustundar fjarlægð frá höfuðstaðnum. Notaðu tækifærið og heimsæktu þessa háskólaborg sem ertalin sú fjölskrúðugasta í Englandi. Röltu með fjölskyldunni eftir glæsilegri strandlengjunni þar sem þú finnur heilu torfurnar af frábærum veitinga- stöðum. Glæsilegt tívolí er við endann á ströndinni og þar finnst meðal annars karókíbar sem opinn er allan sólarhringinn... er hægt að biðja um meira? www.londontown.com FRANKFURT HAHN Þýskaland Vissir þu... Að næsturlífið er frábært í Frankfurt og gamli miðbærinn heillandi en borgin er þó aðallega þekkt fyrir fjármála- og iðnaðaráherslur (stundum kölluð Bankfurt). Landkönnuðir og lífskúnstnerar klippið hér ð aöra leið með sköttum. Barnaverð m.v. 12 ára og yngri og í fylgd meö fullorönum. Ferðaþjónusta lceland Express, Suðurlandsbraut 24, Slmi 5 500 600 Frankfurtarhljóðið mikla í júlí er haldin stórhátíðin „Sound of Frankfurt" þar sem allar tegundir tónlistar eru heiðraðar með stórkostlegu tónleikahaldi og fjöri. Ferðamöguleikarnir eru ótakmarkaðir Flugvöllurinn Frankfurt Hahn er í miðju Hunsrúck- héraði, sem er eitt fallegasta hérað Þýskalands, milli fljótanna Mósel, Rínar, Nahe og Saar. Á þessu svæði erfjöldi lítilla bæja, gamalla kastala, mylla og rómantískra dala sem tilvaldir eru til göngu- og hjólaferða og siglinga. www.flyhahn.com Búðu þig undir brottför á www.icelandexpress.is Róaðu þig í Köben Á bátaleigunni í Kristjánshöfn er hægt að leigja árabáta og róa um síkin hvort sem þú ert að leita að frábærri fjölskylduskemmtun eða rómantískri turtildúfuferð sem endar á kaffihúsi þar sem skilja má bátinn eftir. Sjávarþorp í seilingarfæri Dragor er lítill og fallegur sjávarbær í strætófæri við Kaupmannahöfn. Þar eru ómótstæðilegir veitingastaðir þar sem fiskurinn er borinn fram beint úr sjónum og hellulögð mjóstrætin skapa ógleymanlega stemningu. HOLLAND /C' J\ BELGfA KÖLN BONN ÞYSKALAND KOBLENZ WIESBADEN KAISERSLAUTERN SAARBRÚCKEN FRAKKLAND STRASBOURG

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.