blaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 21.06.2005, Blaðsíða 4
o vodafoné SMS án inneignar Og Vodafone hefur komið á aukinni þjónustu fyrir Frelsisviðskiptavini sína. Þjónustan gerir þeim viðskipta- vinum, sem klára inneign sína, kleift að hringja eða senda SMS án þess að fylla á inneignina. Sverrir Hreiðars- son, markaðsstjóri hjá Og Vodafone, segir að þetta sé til komið vegna þess að flestir Frelsisnotendur séu ungt fólk með takmörkuð fjárráð. Því séu þeir þarna komnir með ákveðið örygg- istæki þar sem hægt er að halda sam- bandi þegar inneign klárast. Um er að ræða tvo möguleika. Ann- ars vegar getur Frelsisnotandi sent SMS í þjónustunúmer þar sem síma- númer þess sem í þarf að ná er látið fylgja. Skilaboðunum er svo komið til skila til viðkomandi. Hin leiðin er sú að hægt er að sækja um 100 króna lán sem greitt er fyrir næst þegar fyllt er á Frelsið. AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK DEKKJAHÓTEL VIÐ GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI þriðjudagur, 21. júní 2005 I blaðið Geymdi þýfi fyrir bróður sinn Dæmdur í sjö mánaða fangelsi Þrítugur karlmaður var í gær dæmd- ur í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, fyrir að geyma þýfi fyrir bróður sinn. Um var að ræða þijár fartölvur sem bróð- ir mannsins hafði stolið úr verslun- inni Office One. Með vörslunni braut maðurinn skilorð og var það tekið til greina við ákvörðun refsingarinnar. Forsaga málsins er að 9. janúar síð- astliðinn braust bróðir ákærða inn í Office One og stal þremur fartölvum að verðmæti tæplega 700.000 kr. Ákærða var gefið að sök að hafa sam- þykkt að geyma þýfið en bróðir hans staðfesti við skýrslutöku að hafa upp- lýst ákærða um hvernig tölvurnar voru fengnar. Þótti sannað að ákærði hafi gerst sekur um hylmingu og var hann því dæmdur í sjö mánaða fangelsi, auk þess að greiða málsvarnarlaun upp á 75.000 krónur. Sólstöðuganga um Öskjuhlíð í dag verður sumarsólstöðum fagnað með sólstöðugöngu, eins og venjan hefur verið undanfarna tvo áratugi. Áherslur hafa breyst töluvert á þess- um 20 árum en árið 1985 var fyrsta sólstöðugangan farin milli Þingvalla og Reykjavíkur. Að þessu sinni verð- ur látið duga að ganga stóran hring um Öskjuhlíðina en lagt verður af stað frá Baugsteini við norðurhlið Perlunnar klukkan 20 og lýkur göng- unni á sama stað fyrir miðnætti. Gengið verður í rólegheitum undir vígorðunum „meðmælaganga með lífinu og menningunni" og verður úti- verunnar notið hvernig sem viðrar. Á sumarsólstöðum er lengsti dagur ársins og sest sólin ekki á öllu svæð- inu norðan við nyrðri heimskauts- baug. GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF. RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588 WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS 10 BITAR, STÓR FRANSKAR & 2I PEPSI 4 QAA Opiö alla daga frá f\r • !•«/«/«/ kl: 11.00 - 22.00 KFL Fleiri vinna á íslandi Á Austurlandi fjölgaði fólki í starfi mest miðað við allt landið árið 2004, eða um 5,7%. Á landsvísu fiölgaði starfsfólki um tæplega 2.000 manns, eða 1,2%. Þá fjölgaði þeim sem vinna í hvers konar iðngreinum töluvert en færri unnu við frumvinnslugreinar miðað við árið 2003. Landsbyggðin fjarlægist Breytingin á s tarfsfólki í frumvinnslu- greinum sýnir glögglega þann mun sem er að verða á höfuðborgarsvæð- inu og landsbyggðinni. Þeim sem störfuðu við frumvinnslugreinar fækkaði mun meira á höfuðborgar- svæðinu en utan þess, eða um 8,3% á móti 1% utan þess. Að sama skapi fjölgaði þeim sem störfuðu við þjón- ustu um 1% á höfuðborgarsvæðinu en um 0,2% utan þess. Fleiri karlar voru á atvinnumark- aðnum árið 2003 og fjölgaði þeim enn í fyrra. Konum fjölgaði líka en ekki jafnmikið. Akstur á óskráö- um og ótryggöum torfæruhjólum vandamál Umferðarráð telur að stórátak þurfi að gera til að koma í veg fyrir ólögleg- an akstur torfærubifhjóla. Þetta kem- ur fram í ályktun sem Umferðarráð gerði á síðasta stjómarfundi sínum. Þar bendir ráðið á að ökumenn tor- færubifhjóla verði að fara að lögum, ekki síður en aðrir ökumenn vélknú- inna ökutækja. Bent er á að akstur slíkra ökutækja, án ökuréttinda, sem og óskráð og ótryggð hjól, sé vanda- mál. Umferðarráð skorar í ályktun sinni á lögregluyfirvöld að framfylgja lögum og reglum um akstur torfæru- bifhjóla. ■ Avion kaupir breska ferðaskrifstofu Hyggst sækja inn á skemmtiferðamarkað og nýta flugvélakost Atlanta betur Avion Group, hin nýja samsteypa Atlanta og Eimskipa, hefur keypt bresku ferðaskrifstof- una The Really Gre- at Holiday Company (RGH). Avion Group vill ekki gefa upp kaup- verðið en íslandsbanki fjármagnaði kaupin að hluta. RGH verður undir- deild skemmtiferða- og leiguflugsdeild Avion, ásamt leiguflugfélag- inu Excel Airways, Boeing 747 breiðþota sem Avion keypti í TravelCity Direct. fyrra. Excel flutti rúm- lega fjórar milljónir farþega árið 2004, en að viðlögðum farþegum RGH verður það átt- unda stærsta flugfélag á Bretlandi. Ráðgert er að Atlanta flytji lungann af farþegum RGH. Sérhæfi sig í flugi til Flórída og Spánarstranda RGH er tíu ára gamalt og innan vébanda þess eru rek- in Travel City Direct, Trans- atlantic Vacations og Cars- hop. Travel City Direct selur ferðir beint til almennings um síma og hefur sérhæft sig í ferð- um til sólarstranda Flórída, Mall- orca og Spánar. Magnús Þorsteinsson, forstjóri Avion Group, kveðst ánægður með kaupin. „Með þessu stækkum við skemmtiferðadeildina og nýtrnn að auki flugvélaflota Atlanta betur.“ Fyrirhugað er að Avion Group fari í almennt hlutafjárútboð í Kauphöll íslands síðar á árinu. 3.200 manns starfa hj á flugdeild félagsins, sem hef- ur 67 flugvéla flota á sínum snærum. í skipadeildinni starfa 1.200 manns og eru 22 skip í flotanum. ■ Andlitslyfting á svæðinu í kringum Hlemm Borgaryfirvöld í Reykja- vík kynntu á fjölmennum fundi í gær tillögur að þétt- ari byggð á stóru svæði í nágrenni við Hlemm. Yfirskrift verkefhisins er „Hlemmur Plús“, en Dag- ur B. Eggertsson, formað- ur Skipulagsráðs, segir að mikil sóknarfæri séu á þessu svæði. Hann bend- ir á að fjölmargt ungt fólk vilji nú búa nálægt miðbænum til að vera nálægt þeirri þjónustu sem miðborgin hafi upp á að bjóða. Ennfremur að hann sjái fyrir sér að nú, þegar nýtt leiðakerfi Strætó, hafi verið kynnt muni sífellt fleiri velja að kaupa ekki bfl en nota það sem spar- ast til að kaupa stærra húsnæói. Það sem kynnt var í gær er ramma- skipulag sem unnið hefur verið í samstarfi við hagsmunaaðila, íbúa- samtök og fleiri, og er hugsað til að hefja umræðu um framtíðarskipulag svæðisins. „Þetta er aðferðafræði sem beitt hefur verið í æ ríkara mæli. Þetta er í raun rammaskipulag sem fer á und- Svona gætu Einholt og Þverholt litið út ef breytingar- tillögur yrðu að veruleika. an hinu hefðbundna skipulagsferli og er hugsað til að hagsmunaaðilar hafi betri aðkomu að málinu," segir Dagur. fverkefninu var horft vítt á svæð- ið í kringum Hlemm, svo sem á íbúðamöguleika, verslun, þjónustu, bflastæði, græn svæði og fleira. Að sögn Dags hafa þeir sem séð hafa til- lögurnar tekið þeim vel. Hins vegar bendir hann á að um þannig svæði sé að ræða að líklegt sé að margir hafi skoðanir á hvernig það eigi að líta út í framtíðinni og hvernig nýta eigi svæðið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.