blaðið - 21.06.2005, Síða 29
Metnaðarleysi 365
andres.magnusson@vbl.is
Fyrir nokkrum árum ákvað Jón
Ásgeir Jóhannesson í Baugi að sér
hugnaðist að gerast íjölmiðlakóngur
og með hinn fjölhæfa ritstjóra, Gunn-
ar Smára Egilsson, sér við hlið gekk
hann í það verk. Leifamar af DV voru
keyptar, dreifingarfyrirtæki, tímarit,
prentsmiðja og Norðurljós, öllu þessu
var safnað undir hatt 365 miðla og
sér víst ekki enn fyrir endann á inn-
kaupunum.
Það verður þó hins vegar að segj-
ast eins og er að við slíka samsteypu
hefði maður vænst mikilla breytinga
á fjölmiðlaflórunni - að þar ætti nú
aldeilis að vera gróðurmold fyrir nýj-
ungar, frumleika og grósku. Það er
því miður öðru nær.
Aðalmarkmið fyrirtækisins virðist
nefnilega vera að kveða samkeppn-
ina í kútinn án þess að hafa neinu
nýju við að bæta. Þannig var X-inu
lokað fyrirvaralaust en vitaskuld
opnað á nýjan leik þegar XFM náði
góðum árangri á svipuðum miðum.
Talstöðinni var hleypt af stokkun-
um, að því er virðist til þess eins að
drepa Útvarp Sögu. Hér og nú er ljós-
lega stefnt gegn Séð og heyrt og síðan
skilst manni að Sirkus sé lítið annað
en þýfi frá Skjá 1 með slettu af Popp-
Tíví. Enginn angi fjölmiðlunar virð-
ist 365 óviðkomandi og gárungarnir
segja að það styttist í að kristilegu
útvarpsstöðvunum verði rutt úr vegi
af nýrri útvarpsstöð 365, sem þá eigi
að heita Geislabaugur FM.
Hver er tilgangurinn með þessu?
Að viðskiptavinurinn fái það sem
hann vill? Að græða pening fyrir hlut-
hafana? Kannski, en mér finnst þetta
nú frekar bera vitni um að það eigi að
skáka öllum öðrum af markaði, sama
hvað það kostar.
En þetta kostar samt. Manni skilst
á innanbúðarmönnum í 365 að DV
sé rekið með bullandi tapi, Talstöðin
sömuleiðis, Stöð 2 hafi hangið rétt-
um megin (aðallega vegna lágs geng-
is dollarans), en að aukin innlend
dagskrárgerð og Sirkusstöðin muni
drekkja sjónvarpsrekstrinum í rauðu
bókhaldsbleki. Þá verður maður að
lýsa efasemdum um þá hugmynd að
unnt sé að selja unglingum Sirkus-
tímaritið í einhveijum mæli. Frétta-
blaðið er eini miðillinn í safhinu
sem virðist ganga virkilega vel, en
meira að segja Gunnar Smári, fram-
kvæmdastjóri 365, hefur efasemdir
um hversu vel landsmenn kunna við
hann og lýsti því í fréttaviðtali á dög-
unum að fólk væri orðið þreytt á að
klofa yfir ósköpin við útidyrnar.
Nú er hvíslað um það í viðskiptalíf-
inu að Gunnari Smára hafi verið sett
tímamörk til þess að koma skikki á
reksturinn, ella verði annar fenginn
til þess. Ætli leiðin til þess felist ekki
í metnaði og frumleika á markaði
fremur en bjóða eftirlíkingar á af-
slætti?
tveimur börnum sínum í smábænum
Everwood í Colorado. Aðalhlutverk
leika Treat Williams, Gregory Smith,
Emily Van Camp, Debra Mooney, John
Beasley og Vivien Cardone.
20.55 Baráttan um Kristjaníu
(Kampen om staden)
Dönsk heimildarmynd um átökin um
fríríkið Kristjaníu. Um hálfs árs skeið
var fylgst með einum íbúanna, baráttu-
manni fyrir réttindum Kristjaníubúa, og
lögreglunni sem bjó sig undir aðgerð-
ir til að stöðva hasssölu í Kristjaniu.
22.00 Tíufréttir
22.20 Rannsókn málsins V (4:4)
(Trial And Retribution, Ser. 5)
Bresk sakamálamynd frá 2002 þar
sem lögreglan fær til rannsóknar
sérlega snúið sakamál. Leikstjóri er
Ferdinand Fairfax og meðal leikenda
eru Kate Buffery, David Hayman,
Jacqueline Tong og Tim Mclnnerny. At-
riði í myndinni eru ekki við hæfi barna.
Seinni hluti.
00.00 Kastljósið
Endursýndur þáttur frá því fyrr um
kvðldið.
20.20 Dagskrárlok
21.30 Shield (9:13) (Sérsveitin 4)
Stranglega bönnuð börnum.
22.15 Navy NCIS (14:23)
(Glæpadeild sjóhersins)
Sjóhernum er svo annt um orðspor
sitt að starfandi er sérstök sveit sem
rannsakar öll vafasöm mál sem tengj-
ast stofnuninni. Aðalhlutverkið leikur
Mark Harmon. Bönnuð börnum.
21.00 Brúðkaupsþátturinn Já
Ella sér sem fyrr um að rómantíkin fái
að njóta sín og að þessu sinni verður
bryddað upp á þeirri nýbreytni að
fengnir verða sérfróðir aðilar til að
upplýsa áhorfendur og brúðhjón um
praktísku atriðin varðandi hjónaband-
ið. 22.00 CSI: Miami
22.45 Jay Leno
21.00 Aflraunir Arnolds
(Arnold Schwarzenegger mótið 2005)
Þetta er sannkölluð íþróttaveisla sem
óhætt er að mæla með.
21.30 Stjörnugolf 2005
22.00 Olíssport
22.30 David Letterman
22.00 Sleeping Dictionary (Elsku
Selima) Dramatísk kvikmynd þar sem
rómantíkin er ekki langt undan. A fyrri
hluta 20. aldar var heimsvaldastefnu
Breta haldið til streitu. Ungur Englend-
ingur er sendur til starfa á fjarlægum
slóðum í Asíu og þar kynnist hann
nýni veröld. Einni heimasætunni er
falið að kenna honum mál innfæddra
og með þeim takast náin kynni.
Bönnuð bömum.
21.00 Real World: San Diego
- langlífasti þáttur MTV frá upphafi.
21.45 Kenny vs. Spenny
22.10 Meiri músík
23.00 Twenty Four 4 (22:24) (24)
Jack Bauer fær kaldar kveðjur þegar
nýr yfinnaður er ráðinn til CTU. Bauer
er látinn fjúka en fer til starfa hjá Vam-
armálaráðuneytinu. Leyniþjónustan
getur samt ekki verið án hans lengi og
kallar strax á kappann þegar hætta
steðjar að. Bauer svarar kallinu, enda
er hann tilbúinn að fóma lífi sínu í
þágu almannahagsmuna. Stranglega
bönnuð bömum. 23.45 Cold Case 2
(21:23) (Óupplýst mál)
23.30 The Contender (e)
Raunveruleikaþættir úr smiðju Mark
Burnett (Survivor). The Contender er
ekki einungis um blóð og brotin bein,
undirtónninn er dýpri þvt i bakgrunni
eru sögur um vonir og þrár og löng-
unina til að láta drauma sína rætast,
óttann við ósigur og lífsfyllinguna sem
stórir sem smáir sigrar veita þeim
sem þorir að taka slaginn.
23.15 Álfukeppnin
(Argentína-Þýskaland)
Leikur Argentínu og Þýskalands í
Nuremberg sem fór fram fyrr í dag.
Þjóðirnar leika í A-riðli ásamt Ástralíu
og Túnis.
00.30 The Last Castle
(Síðasta virkið)
Stranglega bönnuð börnum.
02.35 Fréttir og ísland í dag
03.55 ísland í bítið
Fjölbreyttur f réttatengdur dægurmála-
þáttur þar sem fjallað er um það sem
er efst á baugi i landinu hverju sinni.
05.55 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíví
00.15 Cheers (e)
00.40 Boston Public
01.20 John Doe
John fær martraðir út af dauða Kar-
enar er hann er að hjálpa lögreglunni
að rannsaka morð á nokkrum stúlk-
um.
01.35 Óstöðvandi tónlist
00.55 NBA
(Úrslita-
keppni)
00.00 Wakin' Up in Reno (Helgarferð
til Reno) Rómantísk gamanmynd.
Aðalhlutverk: Billy Bob Thornton,
Charlize Theron, Patrick Swayze, Nat-
asha Richardson. Leikstjóri er Jordan
Brady. 2002. Bönnuð börnum.
02.00 Cheats(Svindlarar)
Bönnuð börnum.04.00 Sleeping
Dictionary (Elsku Selima)
Bönnuð börnum.
RiZZO: Pcppcronc, laukur, *veppir.
Naples: Skinka, pepporono, avoppir.
sv. óttfur, hvitlaukur, prconn ptpar, parmcsan
Toscana: Pcppcronc, jalapcnos, rjómaostur,
ananas, sv. ólifur, hvitiaukur, sveppir, krydd
Komdu og taktu meö,
boröaöu á staönum
eöa fáöu sent heim
Viö sendum heim:
109,110,111,112,113
5117000