blaðið - 26.08.2005, Qupperneq 2
2 I IMNLEWDAR FRÉTTIR
FðSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 blaöið
Margar léttar
teiðir til að
eignast nýjan bíl
LÝSING
Óþverraaðferðum beitt við
misneytingu gamals fólks
- segir Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlœknir
Borgarráð Reykjavíkur:
Fallið frá
leikskóla-
hækkun
Borgarráð Reykja-
víkur samþykkti
í gær einróma
tillögu Alfreðs
Þorsteinssonar,
borgarfulltrúa
framsóknar-
manna, um að fallið skyldi
frá fyrirhuguðum hækkun-
um leikskólagjalda hjá þeim
fjölskyldum, þar sem annað
foreldrið er í námi. Fulltrúar
allra flokka í borgarstjórn
fógnuðu samþykktinni.
„Ég er auðvitað mjög ánægð-
ur með að tiUagan skuli hafa
fengist afgreidd með þessum
hætti og ég hygg að stúdentar
séu það líka,“ segir Alfreð
Þorsteinsson. „Ég lít enda svo
á að þarna hafi raunar verið
um leiðréttingu að ræða, því
auðvitað samræmdist það illa
stefnu okkar í R-listanum um
að taka upp gjaldfrjálsa leik-
skóla í áföngum, en hækka svo
gjöld á einum tilteknum hópi.“
Til hafði staðið að breyting-
arnar á gjaldskránni kæmu til
framkvæmda hinn í. september,
en sú hækkun var ráðgerð áður
en R-listinn gaf út yfirlýs-
ingu sína um að leikskólar
skyldu verða gjaldfrjálsir.
„En ég er líka ánægður með
þá samstöðu allra flokka, sem
myndaðist um tillöguna í
borgarráði,“ segir Alfreð.„Þessi
samþykkt er okkur hvatn-
ing um að flýta því að gera
leikskólana gjaldfrjálsa."
Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins minntu hins
vegar á að þeir hefðu lagt
fram tillögu um sama efni
fyrir fjórum mánuðum.
Misnotkun, ofbeldi og ill meðferð
eldri borgara er raunverulegt vanda-
mál hér á landi fullyrðir Ólafur Þór
Gunnarsson, lyf- og öldrunarlæknir
á Landspítala Fossvogi. Hann segir
að allir öldrunarlæknar lendi í þvi
reglulega að koma að málum sem
snerta einhverskonar misnotkun.
„Menn nota sér veikleika þessa
fólks. Stundum er hótað að senda
það á hjúkrunarheimili, stundum er
beitt fagurgala um að það hafi ávinn-
ing á að gefa eftir einhverjar eigur,
og stundum hóta ættingjar að hætta
að sinna þessum einstaklingum.
Það eru notaðar allskonar, það sem
mér liggur við að kalla óþverralegar
aðferðir til að misnota fólk á þennan
hátt. Þetta er eitthvað sem þarf að
taka á “ segir Ólafur Þór ennfremur.
Fá tilfelli samkvæmt
opinberum tölum
Nokkur umræða hefur farið fram
um stöðu gamals fólks hér á landi að
undanförnu, meðal annars í kjölfar
myndar Þorsteins J. Vilhjálmssonar
„Ása amma'. Þar er ónafngreind mið-
aldra kona sökuð af ættingjum um
að hafa „rænt“ móður sinni og stolið
af henni íbúð.
„Því miður er þessi saga um þessa
ólánsömu konu alls ekkert eins-
dæmi. Það eru á hverju ári nokkur
mál fyrir dómsstólum þar sem fjall-
að er um misnýtingu og þó nokkur
mál á ári sem koma upp“ segir Ólaf-
ur Þór.
Ólafur Ólafsson, formaður Lands-
sambands eldri borgara segir að sem
betur fer sé slíkt ekki algengt, en að
það gerist. Hann bendir hinsvegar
á að samkvæmt opinberum tölum
þá er ofbeldi gegn börnum og eldra
fólki hér á landi fátíðara en í löndun-
um í kring um okkur. Hinsvegar sé
eitt tilfelli, einu tilfelli of mikið.
Vilja umboðsmann aldraðra
Ein leið sem Ólafur Þór sér í stöð-
unni er að stofna embætti umboðs-
manns aldraðra, svipað og umboðs-
maður barna og undir þá skoðun
tekur Ólafur Ólafsson, sem þó bend-
ir á að í gegnum Landssamband
eldri borgara geti fólk fengið m.a.
lögfræðiaðstoð, og eftirspurn eftir
slíkri þjónustu hefði aukist. Með
nýju embætti gætu einstaklingar
sem yrðu varir við einhverskonar
misneyting hinsvegar haft samband
þangað og fengið aðstoð. Sú leið hef-
ur verið farin víða erlendis, meðal
annars í Noregi og Bandaríkjunum.
„Þessi embætti eru gríðarlega mikil-
væg, ekki bara fyrir þann aldraða
heldur líka fyrir ættingja þeirra, að
vita að einhver er að hugsa um rétt-
indi þessa fólks“ segir Ólafur Þór. ■
Síldarvinnslan
mein
hagnaður
Hagnaður Síldarvinnslunnar hf. á
fyrstu sex mánuðum ársins nam ríf-
lega 728 milljónum króna. Þetta er
mun betri afkoma en á sama tíma-
bili í fyrra þegar hagnaðurinn nam
tæpum 302 milljónum króna. Skýr-
ingin á muninum liggur að stórum
hluta í söluhagnaði hlutabréfa sem
skilaði félaginu tæpum 250 milljón-
um, sem og að afskriftir hafa dregist
saman um 187 milljónir.
í tilkynningu frá félaginu til Kaup-
hallar íslands í gær segir að miklar
líkur séu á að áætlanir félagsins
munu ekki ganga eftir á síðari hluta
ársins.
„Fyrst og fremst kemur þar til að
engin loðnuveiði var í sumar og hitt
að kolmunnaveiði hefur verið langt
frá áætlunum í júlí og ágúst... Góð-
ar horfur eru fyrir síldarvertíð á
haustmánuðum og einnig má áætla
að bolfiskveiði og vinnsla gangi sam-
kvæmt áætlunum á haustmánuðum.
Afkoma á síðari hluta ársins er því
mjög óviss en áætlanir gera ráð
fyrir hagnaði" segir ennfremur í til-
kynningunni. ■
Byggja 400 íbúðir í Mosfellsbœ
fyrir tvo milljarða
Fyrstu íbúar gætu
flutt inn árið 2007
Fyrirtækið Leirvogstunga ehf. og
Mosfellsbær undirrituðu í gær vilja-
yfirlýsingu um byggingu 400 nýrra
íbúða í landi Leirvogstungu. Lögð
verður áhersla á að byggja sérbýli
í hinu nýja hverfi, þ.e. einbýlis-,
par- og raðhús. f tilkynningu frá
Mosfellsbæ í gær segir að uppbygg-
ing hverfisins verði sveitarfélaginu
að kostnaðarlausu þar sem fram-
kvæmdaaðili taki að sér lagningu
vega, og brúargerð. Ennfremur
muni Leirvogstunga ehf. fjármagna
byggingu skóla og leikskóla á svæð-
inu.
„Gert er ráð fyrir að áætlana-,
skipulags- og byggingarkostnaður,
ásamt vegagerð og fleira sem tengist
framkvæmdinni, muni nema ríflega
tveimur milljörðum króna. Stefnt er
GLUGGI TIL FRAMTIÐAR
ÞÚ VILT FALLEGA VIÐHALDSFRÍA GLUGGA
að því að framkvæmdir hefjist í vor
og er gert ráð fyrir að uppbyggingin
taki fjögur ár“ segir ennfremur í til-
kynningunni.
Ný hugmyndafræði
Að sögn Haralds Sverrissonar, for-
manns bæjarráðs Mosfellsbæjar
munu 1000 til 1200 manns búa í
hverfinu þegar það verður fullbyggt.
„Það sem er mest aðlaðandi fyrir
bæinn í þessu er hugsunin bak við
uppbyggingu og greiðslu stofnkostn-
aðar. Leirvogstunga ehf. tekur að
sér að leggja stofnbrautir að þessu
hverfi, tilheyrandi brýr og slíkt. Síð-
an tekur það þátt að verulegu leyti
í fjármögnun á leik- og grunnskóla
á staðnum. Þessi framkvæmd hef-
ur lítinn kostnað í för með sér fyrir
bæjarfélagið þannig að þetta er ný
hugmyndafræði í uppbyggingu á
íbúðabyggð í bæjarfélaginu" segir
Haraldur. ■
Svona gæti hið nýja hverfi iitið út
eftir rúm fjögur ár. Skipulagsyfir-
völd eiga hinsvegar eftir að fjalla
umtillöguna
0HelSsklrt (3 Léttskyjað ^ Skýjað Q Alskýlað Rigning, liUlsháHaí ýíí Rignlng 1 9 Súld * ^ Snjókoma O Slydda
Slydda Snjóél
' Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
16
28
18
19
19
16
18
17
17
31
28
16
22
26
16
19
18
9
21
26
15
13
£0
///
%
6°
///
8°
0
10°
9°
%
10° 0
8°
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
10
0
10
0
»morgun
9
6“