blaðið - 26.08.2005, Page 4
Athliða lausn í
bílafjármögnun
LÝSING
Bakkavör
Mesti hagnað-
ur frá upphafi
Hagnaður Bakkavarar var um 1,8
milljarðar íslenskra króna fyrstu
sex mánuði ársins samkvæmt upp-
gjöri sem birt var í gær. I uppgjör-
inu kemur fram að söluhagnaður fé-
lagsins að frádregnum kostnaði hafi
hækkað um 221% milli ára og verið
um 26 milljarðar króna. Hagnaður
fyrir afskriftir (EBITDA) nam 3,6
milljörðum króna sem er aukning
um 163% frá fyrra ári. Þá var gengið
frá kaupum á breska matvælafyrir-
tækinu fyrir 73,3 milljarða króna á
tímabilinu.
1 tilkynningu frá Bakkavör er haft
eftir Lýði Guðmundssyni forstjóra.
,Bakkavör Group skilar góðri af-
komu á tímabilinu og er hagnaður fé-
lagsins sá mesti frá upphafi. Félagið
gekk frá stærstu fyrirtækjakaupum
í sögu þess með kaupunum á Geest
í maí og tekur starfsemi Bakkavör
Group miklum stakkaskiptum með
yfirtökunni." ■
FF græddi
230 milljónir
Hagnaður Frjálsa fjárfestinga-
bankans hf. eftir skatta fyrstu sex
mánuði ársins nam 230 milljónum
króna. Hagnaðurinn nú er nánast
sá sami og í fyrra, þegar hann nam
221 milljón. Félagið skilaði sex mán-
aða uppgjöri til Kauphallar Islands
í gær. Þar kemur í ljós að hreinar
vaxtatekjur bankans voru tæpar 283
milljónir króna sem er rúmlega 30%
minna en á sama tímabili í fyrra.
Hinsvegar vegur gengishagnaður
vegna lánasamninga og arður af
hlutabréfum þetta upp og leiðir til
þess að afkoman er ákaflega svipuð
og fyrir ári. ■
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 blaAÍA
SÁÁ
Vill meiri opinber framlög
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, sjúkrahúsi SÁÁ, er harðorður
í garð stjórnvalda í pistli í nýútkom-
inni ársskýrslu samtaka áhugafólks
um áfengis- og vímuefnavandann.
Þar segir hann að SÁÁ geti gert
miklu betur ef aukinn stuðningur
fengist.
„SÁÁ hefur reynt mikið til þess
undanfarin ár að sýna fjárveitinga-
valdinu og ríkisstjórninni fram á
að ný þekking í vímuefnameðferð
og ný lyf kalli á aukna fjármuni til
meðferðarinnar svo hún standist
gæðakröfur nútímans. Stjórnvöld
hafa verið sein til að hlýða kallinu
og fjármunir hafa ekki fengist til
að nota ný lyf við meðferð morfín
og heróínfíkla “ Hann segir skort á
fjármunum til nauðsynlegra blóð-
rannsókna og „bólusetninga“ meðal
ungra fíkla. Þá segir hann að stjórn-
völd viðurkenni ekki fjárhagsvanda
samtakanna.
Vantar faglega umræðu
„Samþykki fyrir fjárveitingu til eðli-
legrar sálfræði- og geðlæknisþjón-
ustu á Sjúkrahúsinu Vogi fæst ekki.
Með öðrum orðum, væntingarnar
til stjórnvalda eru of miklar og ekki
hefur tekist að vinna því fylgi með-
al ráðamanna að veita bestu áfeng-
is- og vímuefnameðferð sem völ er
á. Þekking og tækifæri til að veita
Launaseðlar:
mun betri þjónustu er til staðar en
fjármunir fást ekki.“ Þórarinn ósk-
ar ennfremur eftir faglegri umræðu
sem taka verði mark á í heilbrigðis-
ráðuneytinu. Á sama hátt verði sveit-
arfélögin að sýna áfengis- og vímu-
efnameðferðinni skilning.
Veikari sjúklingar
Mikið álag hefur verið á sjúkrastofn-
unum SÁA og starfsfólki samtak-
anna undanfarin ár. Vímuefnavand-
inn hefur þyngst verulega á síðustu
átta árum og líkamlegri heilsu fíkl-
anna hefur versnað. „Sjúk-
lingarnir sem
koma [á Vog] eru fleiri og mun veik-
ari en áður var. Vegna nauðsynjar á
bráðaþjónustu var komið á skyndi-
greiningu og bráðamóttöku og hlut-
fall skyndiinnlagna og flýtiinnlagna
jókst með verulegri aukningu vinnu-
álags og tilheyrandi kostnaðarauka.
Skyndiþjónustan og viðhaldsmeð-
ferðin undanfarin 2 ár hefur skapað
vaxandi halla á Vogi sem SÁÁ hefur
ekki lengur efni á að borga. Dregið
verður úr starfseminni á Vogi árið
2005 og bráðaþjónustunni hætt með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum." ■
Misbrestir í
launauppgjöri sumarfólks
Á hverju hausti koma alltaf nokkur
mál til kasta kjarasviðs VR þar sem
vinnuveitendur hafa ekki staðið rétt
að launauppgjöri hjá sumarstarfs-
fólki, í flestum tilfellum skólafólki.
Sigurður Bessason, formaður stéttar-
félagsins Eflingar, samsinnir þessu
og segir að svona mál komi alltaf
upp öðru hvoru. Yfirleitt líði ekki
langur tími þar til launþegar taka
eftir því að eitthvað vanti uppá. „Oft
er það nú þannig að svona gerist fyr-
ir slysni en svo eru önnur tilvik þar
sem þetta hefur verið gert af ásettu
ráði. Það má segja að á hvorn kant-
inn sem það er getur atvinnurek-
andinn ekki vikist undan skyldum
sínum. Það eru ákveðnar leikreglur
í gangi og menn fara ekki framhjá
þeim.“ Sigurður segir þó að oftast
séu mistök sem þessi leiðrétt í beinu
framhaldi af aðfinnslum launþega.
Loksins
alvöru vasaorðabók
BOK
isi.ENSK
2. sæti
Allarbarkur
Ný og sérlega vönduð vasaorða-
bók sem stenst allar þær kröfur
sem gera má til góðra orðabóka.
Allar nauðsynlegar málfræði-
upplýsingar eins og orðflokkur
og beyging danðskra orðað góðar
merkingarskýringar og notkunar-
dæmi. Framsetning bókarinnar
er skýr og aðgengileg.
3.990 lcr.
Orlofi þarf að skila
Því er brýnt að fólk fari vel yfir launa-
seðla sumarsins til að tryggja að allt
skili sér, sérstaklega að áunnið orlof
sé gert rétt upp. Orlof er ýmist greitt
inn á sérstakan orlofsreikning eða
það er greitt út við starfslok og ætti
þá að koma fram á síðasta launa-
seðli sumarsins. „Séu menn óklárir
á því hvernig eigi að lesa út úr launa-
seðlum þá eiga menn að vera ófeimn-
ir með það að hringja eða koma og
fá leiðbeiningar um það hvernig
eigi að lesa úr þeim“, segir Sigurð-
ur. „Alla jafna eru atvinnurekendur
að reka sín fyrirtæki og vilja gera
það með sóma en auðvitað eru til
skúrkar inn á milli og það er gjarn-
an þannig að sömu mennirnir koma
aftur og aftur.“ Hann bendir fólki á
að hafa skynsamlega aðgát í þessum
málum sem og öllum öðrum. „Aðal-
atriðið er að bregðast nógu fljótt við
og ef menn eru óklárir á einhverju
er bara að spyrjast fyrir.“ ■
Lengri opnun-
artími fækkar
afbrotum
Lengri opnunartími skemmti-
stáða í miðbæ Reykjavíkur
er ein aðalástæða þess að
afbrotum á svæðinu fækkaði
um 40% á fjórum árum, frá ár-
inu 2000 til 2004. Þetta er það
sem kemur fram í skýrslu Boga
Ragnarssonar, mastersnema í fé-
lagsfræði. Skýrsluna vann hann
íýrir Lögregluna í Reykjavík.
Samkvæmt skýrslunni voru 463
ofbeldisbrot skráð i miðbæn-
um árið 2000 en 282 árið 2004.
Bogi nefnir aðallega þrjár
aðstæður fyrir þessari miklu
fækkun brota í 101 Reykjavík.
Strætó og eftirlitsmyndavélar
Fyrst telur hann að breytingar
á opnunartíma skemmtistaða
haustið 2001. Þá gátu skemmti-
staðir haft opið lengur en til
klukkan 3 á nóttunni um helgar
og í kjölfarið hafi minnkað
vandamálið sem ætíð varð
þegar gestir staðanna söfnuð-
ust saman á Lækjartorgi. Eftir
lengingu opnunartímans heyri
þessi hópamyndun sögunni til.
Þá er afnám næturferða stræt-
isvagna önnur ástæðan sem
Bogi nefnir en það telur hann
orsakast af því að unglingum
hafi fækkað í næturlífi miðborg-
arinnar. Að lokum segir Bogi að
eftirlitsmyndavélar Lögreglunn-
ar hafi sérstakt forvarnargildi.
Hrókurinn í
Pennanum
f dag hefst þriggja skáka
einvígi milli Otto Nakapunda
frá Namibíu og Hróksliðanum
efnilega Ingvari Ásbjörnssyni.
Einvígið fer fram í Penn-
anum Hallarmúla og er það
háð í tilefni af komu Ottos til
íslands, en hann vann í vor
skákmót Hróksins og Þróunar-
samvinnustofnunar Islands.
Dómari einvígisins verð-
ur enginn annar en Einar S.
Einarsson, sem getið hefur
sér gott orð sem alþjóðlegur
dómari og hefur meðal annars
dæmt fjölmörg skákmót fyrir
Hrókinn. Þar mættust einmitt
Otto og Ingvar, en í þeirri
viðureign fór Ingvar með sigur
afhólmi. Fyrsta skákin hefst
kl. 14:30 í dag, önnur skákin á
laugardag kl. 11.00 og úrslita-
skákin á sunnudagi kl. 13.00.
Haustið er góður tími
til útDlöntunar
tösakvistur 399 kr.
)vergkvistur 399 kr.
Biáereni 490 kr.
Lerkí 490 kr. Runnamura 399 kr
Myrtuvíðir 490 kr. Sitkagreni 750 kr.
limreymr 950 kr Sunnukvistur 550 kr
Mðl og mennlng
edda.is
20-60% afsláttur af trjdm og runnum!
Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga