blaðið - 26.08.2005, Síða 8
'ÚmsninBMSIB
hot boSShbít”TNING
PBO SSSS-sjí5s»
lUlllbLUI (UdllUblU
Nethyl'2,
sími 5870600,
www.tornstuodahíisidjis
Mikilvæg skilaboð til kvenna - www.nicorette.is
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 blaöiö
Átök á Gaza
Mikill fjöldi manna var viðstaddur
útför hins 18 ára gamla Anthony
Walkers sem gerð var frá kirkju í
heimaborg hans, Liverpool í gær.
Walker var myrtur á hrottalegan
hátt með exi í garði í Hyoton i síð-
asta mánuði. Lögregla segir að morð-
ið hafi á sér blæ kynþáttahaturs og
hafa tveir menn, Michael Barton 17
ára og Paul Taylor 20 ára frá Liverpo-
ol, verið ákærðir fyrir verknaðinn.
Ættingjar Walkers höfðu beðið söfn-
uðinn um að klæðast treyjum knatt-
spyrnuliða Arsenal, Everton, enska
landsliðsins og þess brasilíska við
útförina, til að minnast á táknræn-
an hátt áhuga hans á íþróttinni.
Talsmaður fjölskyldunnar sagði að
athöfnin hefði ekki verið á sorgleg-
um nótum, heldur hefðu menn frek-
ar verið að minnast þess góða sem
fylgdi Walker. Málið hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi, enda um
óvenju kaldrifjað morð að ræða. ■
Varð undir
skólabíl
Átta ára stúlka í Culpeper í Virg-
iniu lét lífið eftir að hún datt undir
skólabíl sem hún var að reyna að
ná. Lögregla segir að Emily Nicole
Woodward hafi hrasað og orðið und-
ir vagninum, sem var nýfarinn af
stað eftir að hafa tekið nokkra nem-
endur upp í. Átta nemendur voru í
vagninum þegar slysið varð, auk bíl-
stjóra sem var fiuttur á sjúkrahús í
losti eftir atvikið. Að sögn lögreglu
hafa engar kærur verið lagðar fram
í málinu. ■
Fjöldi látinna í
flóðum í Evrópu
hækkar
Fjöldi þeirra sem hafa látist í flóðun-
um í Evrópu er kominn í 42. Margra
er saknað auk þess sem óttast er að
vatnshæðin eigi enn eftir að hækka
í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og
Rúmeníu. Þetta gerist á sama tíma
og Portúgalar kvarta undan vatns-
skorti í baráttunni við skógarelda
í landinu. Þar hafa 15 manns látið
lífið í eldunum og mikið land hefur
orðið honum að bráð.
íbúar nokkurra bæja í Austurríki
hafa hins vegar snúið aftuwr til
heimila sinni þar sem mikið starf
bíður þeirra við að moka út aurleðju
og öðrum jarðvegi sem hefur borist
inn í flóðunum. Þá eru gífurlegar
skemmdir á innanstokksmunum af
völdum vatns.
í Rúmeníu er ástandið ennþá
slæmt og þar segja yfirvöld að sjö
hafi drukknað í fyrrinótt þegar vatn
flæddi inn á heimili þeirra. Flest
fórnarlömb flóðanna eru einmitt í
Rúmeníu, en þar hafa 25 verið skráð-
ir látnir af völdum þeirra. ■
Fimm Palestínumenn voru skotnir
til bana af ísraelskum hermönnum
á vesturbakkanum í fyrrakvöld. Á
sama tíma voru tveir ísraelskir náms-
menn stungnir í gamla hluta Jerúsal-
em. Annar þeirra lést af stungusár-
um en hinn var fluttur á sjúkrahús.
Ahmed Qureia forsætisráðherra Pal-
estínu fordæmdi árásina á Palestínu-
mennina fimm og sagði
þetta væru ekkert annað en kald-
rifjuð morð. fsraelsmenn segja hins
vegar að mennirnir hafi tilheyrt her-
deildum Palestínumanna á meðan
vitni segja að um hafi verið að ræða
óharðnaða unglinga sem hefðu ekki
borið nein vopn. Herskáir Palestínu-
menn í Hamas og A1 Aqsa hópunum
segjast munu hefna morðanna. ■
Enn deilt um
stjómarskrá
Svo virðist sem írakska þingið muni
ekki ná að greiða atkvæði um nýja
stjórnarskrá áður en frestur rennur
út. Bishro Ibrahim íjölmiðlafulltrúi
þingsins sagði í gær að nýr fundur
hefði ekki verið ákveðinn til að
greiða atkvæði, en Hajim al-Hassani
þingforseti frestaði atkvæðagreiðslu
á mánudag og sagði að reynt yrði til
þrautar næstu þrjá daga að ná þver-
pólitísku samkomulagi um stjórnar-
skrárdrögin. Það hefur greinilega
ekki tekist. Leiðtogar hinna ýmsu
hópa í frak hafa hist á hinu svokall-
aða græna svæði til að ræða ýmis
deilumál, svo sem valdaskiptingu.
Jalal Talabani forseti íraks segir að
samkomulag sé í sjónmáli, en aðr-
ir eru ósammála. Þannig hafa leið-
togar Sunni múslima sagt að tillög-
urnar muni kljúfa landið í tvennt.
Þá segja þeir að það sé engin ástæða
fyrir þingið að greiða atkvæði, þar
sem stjórnarskrárdrögin verði lögð
í dóm kjósenda í október. ■
Rússneskir sprengjusérfræðingar rannsaka bíl Ibrahim Malsagovs, forsætisráðherra
Ingusethiu eftir sprengjutilræði í bænum Nazran sem kostaði einn mann lífið, auk þess
sem þrír særðust, þar á meðal Malsagovc sjálfur. Ingusethia er nágrannarfki Tjetjeníu,
en eftir viku er ár sfðan tjetjenskir uppreisnarmenn tóku nokkur hundruð börn í gísl-
íngu f Beslan með hörmulegum afleiðingum.
Margir minnast
Walkers
Frá útför Walkers
Margar léttar
leiðir til að
eignast nýjan bíl
LÝSING
AEG
Handverkfæri af :Bz. gerö
HJÉISÖSiss
Kr. 16.900,-
STINGSÖG step 1200
Kr. 19.900.-
UELTU RAFHLÖÐUVÉL bdse izt
Kr. 16.900,-
B0RVÉLSB2 630
Kr. 8.990.
BDRHAMAR pn 300002/1
Kr. 96.900.-
AEG handverkfærin sverja sig í
ættina. Þau eru eins og annað sem
kemur frá þessum þýska framleið-
anda, vönduð og traust.
ORMSSON
LÁGMÚLA 6 S(MI 530 2800