blaðið - 26.08.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 blaAÍ6
CLASS
IDUETo I
/HurricMirt;
lulrWili Bg.
:f OPEN
; lr > / —t~ o
3"C'7n..i11 r*i'
QiiRS
Verri efna-
hagshorfur
Bandaríkjadollar féll gagnvart
helstu gjaldmiðlum heims í gær
eftir að fraimeiðslutölur frá Banda-
ríkjunum behtu til þess að efnahag-
urinn væri ekki eins sterkur og áður
var talið. Evran stóð í 1,2276 gagn-
vart dollaranum í eftirmiðdaginn
og breska pundið var skráð á 1,8004
dollara. Bandariska viðskiptaráðu-
neytið tilkynnti í fyrradag að nýjar
verksmiðjupantanir á vörum hefðu
dregist saman um 4,9% í júlí frá
fyrri mánuði. Þetta er mesti sam-
dráttur frá því í janúar 2004 þegar
samdrátturinn var 5,7 % á einum
mánuði. Mikill hagvöxtur getur
stuðlað að sterkum gjaldmiðli þeg-
ar alþjóðlegir fjárfestar snúa sér að
viðkomandi markaði, auk þess sem
útflutningur eykst. ■
Samdráttur
hjá Kodak
Bandaríska fyrirtækið Eastman
Kodak, sem þekktast er fyrir fram-
leiðslu á filmum og myndavélum,
hefur tilkynnt að tveimur verksmiðj-
um í Bandaríkjunum verði lokað,
auk þess sem dregið verður úr fram-
leiðslu í Kína. Þetta eru viðbrögð fyr-
irtækisins við mikilli fjölgun digital
myndavéla og myndvinnslu því sam-
fara. Þetta hefur þýtt að hefðbund-
in framleiðsla filma hefur dregist
verulega saman. Áformað er að loka
tveimur verksmiðjum í Rochester í
New York, þar sem aðalstöðvarnar
eru, auk þess sem filmuframleiðslu
í Xiamen í Kína verður hætt. Þetta
mun þýða að störfum hjá fyrirtæk-
inu fækkar um 900 og er um helm-
ingur þeirra í Rochester. ■
Danmörk
Vatnspípur
vinsælar
Meira en helmingur danskra ung-
menna á aldrinum 16 til 20 ára hefur
prófað að reykja svokallaðar vatns-
pípur samkvæmt nýrri danskri
könnun. Það er talið að ungmennin
viti ekki hversu hættulegt þetta geti
reynst. Að minnsta kosti sagði nán-
ast helmingur þeirra átján hundruð
unglinga sem tóku þátt í könnun-
inni að þeir teldu áhættuna við að
reykja vatnspípu litla sem enga.
„Vatnspípur eru hins vegar alveg
jafnhættulegar og sígarettur“, ítrek-
ar Jargen Falk frá heilsuvernd Dan-
merkur. „Tóbak er tóbak, hvort sem
í það er bætt t.d. melónu- eða epla-
bragðtegundum og það reykt í vatns-
pípu. Nikótín er líka mjög ávanabind-
andi. Við óttumst að vatnspípurnar
eigi eftir að reynast hjáleið að því að
unglingar byrji að reykja sígarettur.
Það myndi vera hund- helvíti ergi-
legt hreint út sagt, þar sem það lítur
út fyrir að færri unglingar reyki sig-
arettur nú til dags", segir Jorgen sem
kallar vatnspípuna Bacardi Breezer
tóbaksins.
Fellibylur
í Flórída
Starfsmaður Home Depot í Boca Raton í
Flórída safnaði saman vögnum fyrir utan
verslunina í gær, rétt áður en fellibylurinn
Katarina skall á ríkinu með tilheyrandi
úrkomu. Katarina myndaðist við Bahama
eyjar og hefur vindhraðinn aukist talsvert
undanfarna daga. Von var á fellibylnum
við strendur Flórída í morgun.
Því lengi býr
að íyrstu gerð
Heilbrigður vöxtur og þroski byggist að
stórum hluta á góðri byrjun, því lengi býr
að fyrstu gerð.
Fyrstu árin eru líklega það tímabil í lífi
barnsins þíns sem skiptir mestu máli frá
næringarlegu sjónarmiði.
Þess vegna vandar Gerber sig við
framleiðslu á barnamat, notar eingöngu
bestu og hreinustu hráefni sem fáanleg
eru ásamt hreinu vatni, aldrei ónáttúruleg
litar- og bragðefni og engin rotvarnarefni.
Þannig höfum við framleitt barnamat í
meira en 75 ár og munum alltaf gera.
Gerber fæst nú í glæsilegum íslenskum umbúðum
uotre™
Kalkúnakjöt
T) mfldfómdium
AVtXTlK
Epli
og bláber
Culrætur
Gerber® ©