blaðið - 26.08.2005, Síða 13
blaðið FÖSTUDAGUR26.ÁGÚST2005
VEIÐI I 13
Cameron Diaz við veiðar í
Vatnsdalsá:
Veiddi
tvo laxa
Hin heimsfræga leikkona Cameron
Diaz hefur verið við veiðar í Vatns-
dalsá í Húnavatnssýslu srðustu
daga og veiddi tvo laxa, en er farin
heim fyrir fáum dögum. Þetta voru
tveggja ára laxar sem leikkonan
veiddi á flugu.
Síðasta vika í ánni gaf roo laxa
í Vatnsdalsá en eingöngu er veitt á
flugu í ánni og hefur veiðiskapur-
inn gengið vel, en mikið hefur rignt
í Vatnsdalnum og mjög kalt er þar
núna.
Á land eru komnir 8oo laxar í
Vatnsdalsánni, en Víðidalsá er kom-
in með 1430 laxa og Miðfjarðará er
komin með 1200 laxa.
Joe Cocker kemur til landsins á
sunnudaginn og mun renna fyrir
lax í Eystri-Rangá, en Einar Bárðar-
son mun verða honum innan hand-
ar við veiðiskapinn. Joe er mikill sil-
ungsveiðikall, en hann hefur rennt
fyrir fisk í Bandaríkjunum og á
Bretlandseyjum. Joe hefur ekki mik-
ið stundað laxveiði, en þykir mjög
lipur í silungsveiðinni. ■
Grænland:
Hörku
bleikjuveiði
Margir hafa farið til veiða á Græn-
landi síðustu vikurnar og veitt vel,
Pálmi Gunnarsson var þar fyrir
skömmu og veiddi mikið af bleikj-
um. Afraksturinn verður víst sýnd-
ur í sjónvarpinu í vetur.
Annar veiðimaður var að fara í
fimmtánda sinn til veiða á Græn-
landi fyrir skömmu og veiddi hann
vel eins og hópurinn allur.
Árni Halldórsson og fleiri voru
þarna fyrir skömmu og voru á hrein-
dýraveiðum og köstuðu líka fyrir sil-
ung. Þeim gekk mjög vel.
„Þetta var frábært, en við höfum
farið áður og þetta er alltaf jafn
skemmtilegt,'1 sagði Árni um ferð-
ina til Grænlands. ■
Góður gangur
fyrir Austan
Veiði í Breiðdalsá hefur gengið ágæt-
lega það sem af er þessu ári að sögn
Súdda, veiðivarðar í ánni.
„Veiðin í ár er mjög svipuð veið-
inni í fyrra, líklega eru þó heldur
fleiri laxar komnir á land. Þeir eru
líka stærri og við erum að sjá veiði-
menn koma heim með mjög flotta
laxa“ segir veiðivörðurinn. Þannig
hefur stór hluti af þeim löxum sem
veiðst hafa í sumar verið vel yfir 9
pund og þó nokkrir á bilinu 15 til 18
pund.
Lítið vatn hefur verið í ánni í sum-
ar, þó rigningar fyrir skemmstu
hafi bætt ástandið nokkuð. Súddi
segir að lítið hafi verið vart við stór-
göngur af laxi í ánni, en hinsvegar
sé hann að ganga jafnt ogþétt.
„Við erum ennnþá að veiða lúsuga
laxa upp í 14 til 15 pund“ segir hann.
Hollið sem er við veiðar í ánni
núna veiddi 9 laxa í gærmorgun
þrátt fyrir aftaka veður. Þegar Blað-
ið ræddi við veiðivörðinn seinni-
partinn í gær höfðu veiðimenn í
umræddu holli veitt 75 laxa á sex
dögum sem hlýtur að teljast mjög
gott. ■
Auglýsingadeild 510-3744
i «1 FT«Tr»ig
Laxá á Ásum:
600 laxar
komnir á land
Veiðiskapurinn gengur ágætlega
þessa dagana, þrátt fyrir skítakulda
víða og laxinn togast á land.
„Laxá á Ásum er komin með 600
laxa, Langadalsá er komin með 330
laxa og Laugardalsá með 340 laxa,“
sagði Stefán Sigurðsson hjá Laxá, er
við spurðum um stöðuna hjá þeim
í gærdag.
„Eystri-Rangá er komin með
3180 laxa, Blanda 1578 laxa og Mið-
fjarðará með 1200“, sagði Stefán
ennfremur.
Þverá og Kjarará hafa ennþá vinn-
inginn á veiðitoppnum og eru komn-
ar með 3600 laxa á land og Norðurá
er að skríða upp í 3000 laxa. En
Eystri-Rangá er eins og fyrr segir
með 3180 laxa.
Hrútafjarðará hefur gefið 400
laxa og veiðimenn sem voru í henni
fyrir skömmu, sögðu mikið vera af
fiski. ■