blaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 22
AlhliÖa lausn í
bílafjármögnun
22 I MATUR
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 biaöifi
LÝSING
Svakalegar samlokur
Allir hafa gætt sér á samlokum ein-
hvern tíman á lífsleiðinni og eflaust
eru samlokur sá biti sem mest er
borðaður í heiminum. Samlokur
heilla flesta því það er auðvelt að
búa þær til og allir geta fundið eina
við sitt hæfi. Það eru til óteljandi af-
brigði af samlokum með alls kyns
áleggi og það er um að gera að nota
ímyndunaraflið. En ef leitað er eftir
fínni tegundum af samlokum þá er
um að gera að fara á veitingastað
og láta útbúa eina ljúffenga fyrir sig.
Blaðið ákvað að gæða sér á nokkrum
góðum samlokum.
svanhvit@vbl.is
Kaffibrennslan
Kaffibrennslan á sinn stað í hjarta margra
Reykvíkinga enda hefur hún staðið á sín-
um stað frá árinu 1996. Flestir hafa komið
á þennan flotta stað enda þegar komið er á
Kaffibrennsluna er það líkt og að koma heim.
Þar myndast ætíð þessi skemmtilega klúbba-
stemmning. Á Kaffibrennslunni er veglegur
matseðill sem samanstendur meðal annars
af samlokum, hamborgurum, pasta, súpum
og smáréttum. Þar má líka finna Wishbone
steikarsamloku sem er með grillaðri nauta-
fillet, lauk, papriku, sveppum, salati og berna-
isesósu, borin fram með frönskum kartöflum
ogkokteilsósu. Steikarsamlokan eryndislega
góð og ber svo sannarlega nafn sitt með rentu.
Sósan bragðast vel og er í rauninni miklu
betri en þessi hefðbundna bernaisesósa.
Wishbone steikarsamloka með grillaðri
nautafillet, lauk, papriku, sveppum, salati
og bernaisesósu kostar 1250 krónur.
Kaffi Sólon
Kaffi Sólon er vinsæll staður í miðbæ Reykja-
víkur sem er alltaf fullur af skemmtilegu
fólki. Staðurinn er fallegur og veggina prýða
glæsilegar ljósmyndir teknar af Guðmundi
Heimsberg. Á Sólon er mikið úrval rétta
og má þar nefna samlokur, núðlur, smárétt-
ir, pasta og tapas. Þar má til dæmis fá hina
stórgóðu kjúklingasamloku með satay sósu,
salati og frönskum kartöflum sem er mjög
matarmikil. Brauðið er stökkt og gott. Sósan
er sterk en bragðgóð. Kjúklingurinn er einn-
ig fullkomlega eldaður. Saman myndar þetta
góða kjúklingasamloku og ljóst er að það er
verið að fá mikið fyrir aurinn.
Kjúklingasamloka með satay sósu, salati
og frönskum kartöflum kostar 1250 krónur.
Prikið
Þeir sem hafa gengið niður Laugaveg
hafa án efa tekið eftir Prikinu enda hef-
ur það verið hluti af bæjarlífinu í mörg ár.
Prikið er vinalegur staður þar sem alltaf
er góður andi og gott fólk. Það er ein-
hvern veginn ekki hægt annað en að láta
sér líða vel á Prikinu þar sem horft er út
á iðandi mannlífið á Laugaveginum. Á
Prikinu er hægt að snæða alls kyns rétti,
þar á meðal eru smáréttir, léttir réttir,
kjöt og pasta. Einnig er hægt að fá svo-
kallaða þynnkuloku með skinku, osti,
beikoni, tómötum, eggi, káli, hvítlauks-
sósu og frönskum. Brauðið í lokunni er
gott og þykkt og samlokan í heild sinni
er mjög bragðgóð. Það má segja að allt
áleggið passi einstaklega vel saman og
hvítlaukssósan setur punktinn yfir i-ið.
Þynnkuloku með skinku, osti, bei-
koni, tómötum, eggi, káli, hvítlauks-
sósu og frönskum kostar 994 krónur.
Café Viktor
Café Viktor er vinalegur staður í miðbæ
Reykjavíkur og hefur verið þar síðan 1998.
Á Café Viktor er andrúmsloftið huggulegt
enda skemmtilegur staður. Þar er alltaf
nóg af fólki auk þess sem miðbærinn blas-
ir við með öllu sínu lífi og lit. Matseðillinn
er fjölbreyttur og þar má meðal annars sjá
hamborgara, pasta, samlokur og eftirrétti.
Einnig má þar sjá Club FM samloku með
beikoni, skinku, osti, gráðosti og spældu
eggi. Franskar og tómatsósa fylgja með þess-
ari samloku. Samlokan er mikil og saðsöm
eftir því. Sósan er einstaklega góð og græn-
metið er ferskt og ljúffengt. Club FM sam-
lokan er því heppilegur kostur fyrir svanga
vegfarendur.
Club FM samloka með beikoni, skinku,
osti, gráðosti og spældu eggi kostar
1150 krónur.
Blaðið kynnir
rj-t * A .
■ »f .
í , í' ‘ r íA t' p;}
Njótiö Enska boltans með ekta Bresku öli og bjór frá Greene King
Greene King IPA
66 cl fl 3.6% alc/vol
Roðagullinn frekar
bragðmikill þéttur með
keim af brenndum sykri,
meðalbeiskja. Hentar með
öllum krydduðum mat td
Mexico og Indverskum
Fæst í Heiðrúnu og Kring-
lunni og fljótlega víðar
3
IK.i?
Old Speckled Hen ale
50 cl fl 5,2% alc/vol
Flaggskip Greene King, mest
útflutta öl þeirra og er fáanlegt
um allan heimjafnt í austri sem
vestri
Er í dag mest selda ölið sem
menn taka með sér heim til
drykkjar í Englandi.
Roðagullinn Góð fylling með
brenndum karmellukeim og
beisku eftirbragði
Lp N f Xl O Nfcf
L
“HENÍS
XOOTH'
Morland HensTooth ale
50 cl fl 6,5% alc/vol
Kopargullinn, þétt fylling
hálfsætur með karmellu og
ávaxtakeim og löngu léttu
eftirbragði. Botnfall
Jafn óvenjulegt öl eins og
hænu tönn er.
Prófið með öllum mat og
einan sér.
Fæst í Heiðrúnu og
Kringlunni
Strong Suffolk Vintage ale
50 cl fl 6% alc/vol
Brúnn meðalfylling þurr
mildur með soja, lakkrís og
kandístónum. Lítil beiskja
Blandaður með öli sem hefur
legið íeikítvöár
Sérstaklega góður með
enskum ostum
Fæst í Heiðrúnu og
Kringlunni
..það er ódýrt og einfalt
að framkalla stafrænar
myndir hjá okkur
mmm
Álfabakka 14 s. 557 4070
www.myndval.is