blaðið - 26.08.2005, Page 32
32 I MENNING
FðSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 blaöið
Sumarið og ástin í
Listasafni Sigurjóns
Asumartónleikum Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar, þriðju-
dagskvöldið 30. ágúst syngur
Alda Ingibergsdóttir við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar lög eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Jóhann
Ó. Haraldsson, Jón Ásgeirsson og
Sigfús Halldórsson og aríur ítölsku
tónskáldanna Puccini og Verdi.
Alda Ingibergsdóttir lauk ein-
söngvaraprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík vorið 1994. Sama ár hóf
hún framhaldsnám við Trinity Coll-
ege of Music í London. Þaðan lauk
hún Fellowship Diploma vorið 1996.
I uppfærslum Trinity College of Mus-
ic hefur Alda sungið hlutverk Pam-
inu í Töfraflautunni og hlutverk
Lillian Russel í Mother of us all eftir
Virgil Thomson. Alda hefur farið
með mörg hlutverk í óperum hér-
lendis. Þá hefur Alda haldið tónleika
víða og komið fram sem einsöngv-
ari með Sinfóníuhljómsveit íslands
og ýmsum kórum og árið 2002 kom
út geisladiskur með söng hennar: Ég
elska þig.
Ólafur Vignir Albertsson píanó-
leikari lauk burtfararprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík árið 1961.
Hann stundaði framhaldsnám við
Royal Academy of Music í London.
Auk ótal tónleika á íslandi hefur Ól-
afur Vignir leikið í mörgum löndum
Evrópu, í Bandaríkjunum og Kan-
ada, einnig í útvarpi, sjónvarpi og
inn á hljómplötur. Hann starfar nú
sem píanóleikari við Söngskólann í
Reykjavík.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20:30. Kaffistofa safnsins er opin eft-
ir tónleika. Aðgangseyrir er 1500 kr.
1 0-70% AFSLÁTTUR
N MEIRI VERÐLÆKKUN!
SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR
HHHHHHHHHHHHMéiUMMééllMAMMéééMtélMiéUMéAtééééétééltéUtééééééééééériéUAAUI HHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH TEKK
COMPANY
1
□ PIÐ LAUGARDAG 1 □-1 B □□ SUNNUDAG 13-18
BÆJARLIND 14-16 | 2D1 KÓPAVDBI | SÍMI 564 44DD | FAX 564 4435 | TEKK@TEKK.IS
Rómað verk
í Hallgríms-
kirkju
Trond Kverno. Verk hans Mattheusar-
passfa veröur flutt í Hallgrímskirkju á
sunnudag.
Sunnudagur er lokadagur
Kirkjulistahátíðar í Hall-
grímskirkju. Klukkan 15:30
þann dag ræðir norska tónskáldið
Trond Kverno um verk sitt, Matthe-
usarpassíu sem flutt verður klukk-
an 17.00. Mattheusarpassía er fyrir
kór, 5 einsöngvara og söngflokk án
undirleiks. Þetta er rómað verk frá
árinu 1986 sem hlotið hefur lof víða
um heim, m.a. í Bandaríkjunum
fyrr á þessu ári.
Flytjendur:
Vox evangelistae: Marianne Hirsti,
cantus, Marianne E. Andersen, altus,
Ian Partridge, tenor I, Joseph Corn-
well, tenor II, Njál Sparbo, bassus
Vox Christi: David Martin, altus,
Jon English, tenor I, Colin Campbell,
tenor II, Thomas Guthrie, bassus I,
Graham Titus, bassus II. Dómkór-
inn í Osló. Stjórnandi: Terje Kvam.
Djassá
Jómfrúnni
Á tólftu tónleikum sumartónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinn-
ar við Lækjargötu, laugardaginn 27.
ágúst, kemur fram stórsöngvarinn
Ragnar Bjarnason ásamt Tríói Þóris
Baldurssonar. Auk Þóris, sem spilar
á Hammond orgel, skipa tríóið þeir
Jón Páll Bjarnason á gítar og Erik
Qvick á trommur. Þess má geta að
Ragnar Bjarnason hefur nýlega sent
frá sér geisladiskinn „Með hangandi
hendi.“ Þetta verða lokatónleikar
vel heppnaðrar sumartónleikaraðar
á Jómfrúnni í ár. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 16 og standa til kl. 18. Leikið
verður utandyra á Jómfrúartorginu
ef veður leyfir en annars inni á Jóm-
frúnni. Aðgangur er ókeypis.