blaðið - 19.12.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 19.12.2005, Blaðsíða 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 blaAÍÖ ísland varnarlaust? Gengið hefur veriðfrá brotthvarfi sjóhersins frá Keflavík eigi síðar en 1. desember 2006. Ekki hefur verið gengið frá samningi við flugherinn sem vonast hafði verið til að fyllti skarðið. Skatan nærri uppseld Árviss skötusala Lionsklúbbs ísafjarðar hefur gengið vonum framar að sögn Sveins Guðbjarts- sonar Lionsmanns. „Salan hefur gengið afskaplega vel og er alltaf að aukast.“ Sveinn segir skötuna nærri uppselda og reiknar með að það sem eftir er fari í dag. „Við höfum mikið verið að selja skötu norður á land og til Reykjavíkur en ísfirðing- arnir ganga þó að sjálfsögðu fyrir“, segir Sveinn. Um er að ræða ekta vestfirska skötu sem verkuð er af kunnáttumönnum. „Þetta er vest- firsk framleiðsla sem gengið hefur í erfðir mann frá manni svo það þarf ekkert að efast um gæðin. Við pökkum skötunni snyrtilega inn í öskjur og seljum hana tilbúna í pottinn", segir Sveinn. Allur ágóði sölunnar rennur til líknarmála. Gengið hefur verið frá því innan hersins að sjóherinn hætti reksti varnarstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli á tímabilinu 1. júlí til 1. des- ember á næsta ári samkvæmt heim- ildum Blaðsins. Ekki hefur verið gengið frá því að flugherinn taki við birgðarstöðvum varnarliðsins. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins staðfestir að æðstu stjórnvöld bandaríska hersins hafi ekki samþykkt, enn sem komið er, að flugherinn taki yfir rekstri birgðastöðvanna en neitar því að sjó- herinn hafi gengið frá brotthvarfi sínu. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hefur lengi legið í loftinu að slík breyting yrði gerð, en engar upplýsingar hafa fengist um hvenær fyrirhuguð skipti eiga sér stað. Tíu yfirmenn reknir Mikill samdráttur hefur verið hjá varnarliðinu undanfarin ár. Um tvöhundruð íslensk stöðugildi hafa verið lögð niður á síðustu misserum og fjölmörgum starfsmönnum hefur verið sagt upp, fimm ís- lenskum stjórnendum nú í des- embermánuði til viðbótar við aðra fimm stjórnendur sem fengu reisu- passann í nóvember. Fyrir tveimur árum hætti Varnarliðið að greiða rútugjöld til starfsmanna sinna, auk álags eða yfirvinnukaups fyrir þann tíma sem starfsmenn af höfuð- borgarsvæðinu eyddu í ferðir til og frá vinnu. Varnarliðið var hinsvegar skikkað til að draga þá ákvörðun sína til baka og greiða starfsfólki vangoldin laun samkvæmt dómi Hæstaréttar. Samkvæmt heim- ildum Blaðsins er ástæða uppsagna íslensku stjórnendanna sú að með þeim launakostnaði sem sparast vill varnarliðið dekka kostnað- inn sem fellur til vegna dómsins. Eða eins og einn heimildarmaður Blaðsins orðaði það; „Tíu íslenskir starfsmenn eru reknir til að borga fyrir dóminn gegn varnarliðinu“. Friðþór segir uppsagnirnar hluta af hagræðingaraðgerðum. Aukinn samdráttur En sparnaðurinn kemur víðar fram. Þannig hefur stórlega verið dregið úr öllu viðhaldi á svæðinu undanfarin misseri. Þetta á við um fasteignir á svæðinu en viðhald á flugbrautum fellur einnig undir verksvið hersins. Einni flugbraut var varanlega lokað fyrir tveimur árum en Friðþór segir að þrátt fyrir samdrátt í þjónustu og sparnað á ýmsum sviðum sé hvergi farið niður fyrir lágmarkskröfur og öryggisstaðla. „Verkefnum hefur fækkað en ekki hefur verið dregið úr viðhaldi. Umsvif varnarliðsins hafa minnkað og á undanförnum árum hefur verið lokið við stór viðhalds- verkefni," segir Friðþór. ■ Jólatréssalan hefur náð hámarki og hjá Krónunni eru jólatrén nánast uppseld. Bónus og Krónan eru með ódýr- ustujólatrén í ár og hefurþetta lága verð dregið úr sölu hjá öðrum söluaðilum eins og t.d. jólatréssölu Landakosts sem styrkir m.a. krabbameinssjúk börn með jólatréssölu. Helmingsmunur á verði jólatrjáa „Salan hefur gengið vel þrátt fyrir að Verslunin Bónus sé farin að selja tré á mun lægra verði við hlið okkar við IKEA,“ segir Þórir Þórisson framkvæmdastjóri jóla- trésölu Landakots. „Við höfum verið með með jólatréssölu undanfarin 15 ár og hluti ágóðans rennur til góðgerðarmála eins og krabbameinssjúkra barna. Jólatréssala Landakots selur norð- mannsþin á 3.990 krónur miðað við 1.50-1.75 metra hátt tré. „Við seljum 2000 tré fyrir jól og náum alltaf að klára þann fjölda. Trén okkar þykja afar falleg og fólk fær að skoða þau vel á meðan jólatréssala Bónus fer fram í gámum og því ekki jafn að- gengileg til skoðunar", segir Þórir. Hann segir ergilegt að stórverslanir eins og Bónus planti sér við hlið sölustaða Landakots sem noti hluta ágóðans til að styrkja góð málefni. Sölustaðir jólatréssölu Landakots eru fyrir framan Landakotskirkju, á Smáratorgi og fyrir framan verslun IKEA i Holtagörðum. „Jólatrésverð hjá okkur er breyti- legt og við kappkostum að vera alltaf með lægsta verðið“, segir Matthías Árnason verslunarstjóri í Bónus. „Verð á norðmannsþin er 1.699 krónur ef trén eru 1.00-150 metrar en verð á 150-230 metra trjám er 1.899 krónur. Matthías segir jólatrjánum stillt upp fyrir utan gámana svo auðvelt sé að skoða þau. Hann segir söluna ganga ágætlega og að nóg sé eftir af trjám. Sölustaðir Bónus eru við verslunina í Holtagörðum og í Skútuvogi. Norðmannsþinurinn vinsælastur Af öðrum sölustöðum jólatrjáa má nefna Blómaval, Byko og Krónuna. Hjá Blómaval fengust þær upplýs- ingar að salan væri svipuð og í fyrra. íslensk list er góS gjöf Gallerí Fold • Kringlunni og RauSarárstíg- Opið alla daga til jóla til kl. 22.00 Sjáumst í Galleríi Fold Rau&arárstíg 14, sími 551 0400 Kringlunni, sími 568 0400 • www.myndlist.is „Við seljum mest af norðmannsþin en hann er 85% af allri sölu hjá okkur“, segir Bjarni Ásgeirsson yfirmaður jólatréssölu í Blómaval. Áfgangurinn af sölunni skiptist á milli stafafuru og rauðgrenis sem er íslensk framleiðsla. Norðmannsþin- urinn er á 2.984 krónur, rauðgrenið á 2.890 og stafafuran á 4.190 krónur.“ Bjarni segir söluna hafa verið í há- marki um síðustu helgi og gerir ráð fyrir að selja um 10 þúsund tré fyrir jólin sem er svipað og í fyrra. Utsölustaðir Blómavals eru í Skútu- voginum og Grafarholti. Salan hjá Krónunni hefur einnig gengið vel og gerir Árni Þór Frey- steinsson rekstrarstrjóri Krónunnar ráð fyrir að seld verði 3000 tré fyrir lessi jól sem er nokkur aukning frá iví í fyrra. „Við erum með sama verð á öllum stræðum trjáa og kostar norðmannsþinurinn 1.990 krónur. Krónan selur tré i Vesmanneyjum, Selfossi og í Krónunni í Breiðholti, Bíldshöfða, Skeifunni og í Hafnar- firði.“ Árni segir mestu söluna fara fram fyrir 20 desember. Jón Örvar Vanderlinden aðstoð- arverslunarstjóri i Byko Breidd- inni segir verð á norðmannsþin af stærðinni 1.50-1.75 metrar vera á 2.980 krónur en Byko selur einnig íslenska furu sem kostar 3.990 krónur. Jólatrésala Byko er í timbur- sölunni í Breiddinni. Blalll/Steinar Hugl Fjölmargir (slendingar velja lifandi jólatré, en mikill verðmunur er milli útsölustaða o Heiðskirt 0 Léttskýjað Skýjað Alskýjað Rlgnlng, litllsháttar // Rlgnlng 7 7 Súld 'j: Snjðkoma ' 7 4= Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló Parls Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 08 09 01 -13 01 01 -06 02 06 09 12 -07 -01 16 -02 06 -04 06 01 14 05 08 Slydda JJ Snjóél Skúr * á V n° V 5 /// '// / // Breytileg _2° Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands -T * '/A / // -4 O o /// A o morgun 5V 5° /// 5° 0 00 /// /// /// 3° 6° /// ///4« t

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.