blaðið - 19.12.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 19.12.2005, Blaðsíða 6
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 blaöiö 6 I INNLENDAR FRÉTTIR Jólaös í Kringlunni Það var mikil ös í Kringlunni þegar Ijósmyndari Blaðsins mætti á svæðið enda fólk f óða önn að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn. Sumir gefa sér þó tíma til að hugsa um þá sem minna mega sfn. Þetta fólk var að leggja pakka í styrktarsöfnun Mæðrastyrksnefndar en þeim er síðan komið áfram tii þeirra er á þurfa að halda. Útgáfa: Krossgátan heldur velli Hin sígilda krossgáta virðist ætla að halda sjó þrátt fyrir hina miklu Su Duko bylgju sem gengið hefur yfir landið á þessu ári. Lítill eða enginn samdráttur er í sölu krossgátublaða og bæklinga. Salan eykst Vinsældir Su Duko talnaþrautar- innar hafa verið vaxandi á þessu ári og nú er svo komið að það heyrir til undantekningar ef dagblað eða tímarit býður lesendum sínum ekki uppá slíka þraut. í mörgum tilvikum hefur gamla krossgátan fengið að víkja af síðum blaðanna fyrir Su Duko. Ólafur Pálsson, útgef- andi Krossgátubókarinnar, segir Su Duko vera blaðra sem muni springa fyrr eða seinna. Hann segir eðlilegt að fólk vilji prófa eitthvað nýtt en þetta hafi ekki haft áhrif á sölu og að hann muni ekki setja Su Duko þraut inn í Krossgátubókina. „Þetta er bara allt öðruvísi dæmi og byggir á allt öðru en krossgátan. Su Duko er svona blaðra sem springur. Þetta er 23. árið sem ég gef út Krossgátu- bókina og salan hefur aukist jafnt og þétt öll þessi ár. Ég er ekkert mikið að auglýsa þetta en þegar fólk hefur keypt einu sinni þá kaupir það yfir- leitt aftur.“ Ólafur segist vita til þess að einhver samdráttur hafi orðið hjá öðrum útgáfuaðilum. „Ef það er eitthvað þá hefur orðið samdráttur hjá sumum. En ekki það að ég sé eitt- hvað að blása það út. Ég held bara mínu striki.“ Blaöil/Frikki (slendingar hafa tekið Su Duko opnum örmum en vilja þó greinilega ennþá spreyta sig á gömlu krossgátunni. Nýr vefur Heilaheilla: Tveir Islendingar fá heila- blóöfall dag hvern Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, opnar í dag nýjan vef Heilaheilla, sam- taka, sjúklinga, aðstandenda og fag- aðila sem blása til sóknar gegn þeim eru 25UG 5S1 7St>5 i7i\ 1 Ljósin í bænum • * SUOURVCRI Stigahlíð 45 • 105 Reykjavík heilsufarsbresti sem heilablóðföll eru. Katrín Júlíusdóttir, alþingiskona, er einn af fjórum tengihðum verkefnis- ins en samfara opnun upplýsingavefs samtakanna verða gefin út svokölluð fyrstadags kort. „Þessum kortum verður dreift til allra þeirra sem fá heilabióðfall en fjöldinn er mikill því hann nemur um 600-700 einstak- lingum á ári hverju. Fólki býðst svo að hafa samband við okkur tengiiiðina og fá upplýsingar um ýmis hagnýt at- riði og stuðning", segir Katrín. Aðrir tengiliðir eru Ragnar Axelsson, ljós- myndari, Edda Þórarinsdóttir, leik- kona, og Þórir Steingrímsson, rann- sóknarlögreglumaður og leikari en tengiliðirnir hafa allir þurft að takast á við þessa heilsufarsvá. „Við viljum með þessu freista þess að ná utan um allan hópinn og stuðla að fræðsiu, þekkingu og vitund um þennan heilsu- farsbrest sem tekur til svona margra ís- lendinga“, bætir Katrín við. Vefurinn verður opnaður með viðhöfn á Nord- ica hóteli klukkan tvö í dag. Veffangið er www.heilaheill.is Flíspeysur <&Columbia “ S[\orts\vearC. x >mpanv UTILIF SMÁRALIND S(MI 545 1550 O GLÆSIBÆ SlMI 545 1500 O KRINGLUNNI SlMI 545 1580 Landhelgisgœslan: Þyrlu snúið við Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærmorgun til að ná í slasaðan sjómann um borð í neta- bátnum Tjaldi SH-270. Skipið var statt norður af Horni þegar einn skipverji féll í lestinni með þeim afleiðingum að hann fékk slæmt höfuðhögg. Áhöfnin óskaði eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni en þegar í ljós kom að meiðsli manns- ins voru minni en óttast var í byrjun var sú beiðni afturkölluð. Þyrlan var þá komin til Isafjarðar en var snúið við eftir að skipverjar afþökkuðu hjálpina. (jjöftíl/j&la/j frá/CjiAttúmÁðjiA/í9la/ a I SMARALIND

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.