blaðið - 18.01.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLEIffDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 bla6ið
Sjónvarp
dregur úr
kynlífslöngun
Italskur kynlífsfræðingur hefur
komist að því að pör sem eru með
sjónvarpstæki í svefnherberginu
stunda helmingi sjaldnar kynlíf en
pör sem sofa í sjónvarpslausum
svefnherbergjum. „Ef það er ekkert
sjónvarp í svefnherberginu tvöfald-
ast samfaratíðnin," segir Serenella
Salomoni sem gerði könnunina
ásamt hópi af sálff æðingum. Alls
tóku 523 ítölsk pör þátt í könnun-
inni sem ætlað var að komast að
hvaða áhrif sjónvarp hefði á kynlíf.
ítalir sem ekki eru með sjónvarp
í svefnherberginu stunda kynlíf
tvisvar í viku eða átta sinnum á
mánuði að meðaltali. Hjá sjón-
varpspörunum er talan hins vegar
aðeins fjögur skipti á mánuði.
Hryðjuverka-
menn í hópi
fallinna
Að minnsta kosti fjórir erlendir
hryðjuverkamenn fórust í loft-
árásum Bandaríkjamanna á þorpið
Damadola í Pakistan, ekki langt frá
landamærunum við Afganistan, á
föstudag. Yfirvöld greindu frá þessu
í gær, en það var í fyrsta sinn sem
staðfest er að erlendir hermdar-
verkamenn hafi verið meðal falhnna.
Árásunum var ætlað að granda
Ayman al-Zawahri, næstvalda-
mesta manni A1 Kaída samtakanna
en upplýsingar höfðu borist um
að hann hefðist við í þorpinu.
Leiðrétting
Ranghermt var á forsíðu Blaðsins
í gær að 20 manns væru látnir
úr fuglaflensu í Tyrklandi. Rétt
er að 20 manns hafa greinst með
fuglaflensuveiruna í landinu.
Heilsuveilt gamalmenni
tekið af lífi
Clarence Ray Allen, 76 ára, var tekinn af lífi í gœr í Kaliforníu
þrátt fyrir beiðni lögmanna hans um náðun sökum heilsubrests og
aldurs.
Clarence Ray Allen var tekinn af
lífi með banvænni sprautu í gær í
San Quentin fangelsinu í Kaliforníu,
skömmu eftir 76. afmælisdag sinn.
Allen var elsti fanginn sem beið
aftöku í Bandaríkjunum en hann
var m.a. dæmdur til dauða fyrir að
hafa fyrirskipað þrjú morð fyrir
aldarfjórðungi. Hann er næstelsti
maður sem tekinn hefur verið af lífi
síðan dauðarefsingar voru teknar
upp á ný í Bandaríkjunum árið 1976.
1 síðasta mánuði var John B. Nixon,
77 ára gamall, tekinn af lífi í Miss-
issippi, elstur allra síðan dauðrefs-
ing var tekin upp á ný.
Allen fór í fangelsi fyrir að hafa
látið taka 17 ára kærustu sonar síns
af lífi af ótta við að hún myndi segja
lögreglunni frá innbroti í matvöru-
verslun. Á meðan hann sat á bak við
lás og slá réð hann leigumorðingja
til að myrða vitni í málinu.
Átti við heilsubrest að stríða
Allen hafði átt við heilsubrest að
stríða og var m.a. blindur, heyrnar-
sljór og haldinn sykursýki. Hann
fékk hjartastopp í september en
læknar lífguðu hann við og komu
honum aftur á dauðadeild. Lög-
fræðingar hans segja að veikindi
hans hafi ekki aðeins stafað af
aldri heldur af vanrækslu á meðan
á fangelsisdvölinni stóð. Þeir höfðu
beðið honum vægðar sökum bágrar
heilsu og aldurs en þeim beiðnum
var hafnað.
Gömul mynd af Clarence Ray Allen, næst-
elsta manni sem tekinn hefur verið af Iffi
í Bandaríkjunum stðan dauðarefsingar
voru leiddar í lög á ný fyrir um 30 árum.
Vopnahlé í
hættu á Sri Lanka
Ráðist var á stjórnarhermenn eina ferðina enn í gcer og liggja aðskilnaðarsinnar Tamíl-
tígra undir grun. Sameinuðu þjóðirnar hvetja stríðandi aðila til að virða vopnahlé og
halda áfram viðrceðum.
Tveir fórust og 12 særðust í árás á
bíl stjórnarhersins á Sri Lanka í gær.
Aðskilnaðarsinnar Tamíl-tígra eru
grunaðir um að hafa staðið að árás-
inni. Árásarmennirnir sprengdu
bílinn í loft upp í Trincomalee, 230
km norðaustur af höfuðborginni
Colombo. Eftir sprenginguna
hleyptu árásarmennirnir af skotum
á hermennina sem svöruðu í sömu
Ert þú einn afþeim sem átt stafræna upptökuvél og
langar tíl að læra að vinna efnið oggera það sem
sölumaðurinn sagði að hægt væri að gera?
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á
undirstöðuatriðum myndbandsgerðar allt frá því að breyta
hugmynd í handrit og fínpússa myndbönd með ýmsum effektum.
Nemendur verða að hafa góða almenna tölvukunnáttu og æskilegt
er að nemendur eigi eða hafi aðgang að stafrænni tökuvél.
Kennt er á Premiere klippiforritið
frá Adobe sem er eitt visælasta
forritið á markaðnum í dag.
Kvöldnámskeið
Þriðjudaga. & fimmtudaga 18-22
og laugardaga frá 8:30 - 12:30
Byrjar 24. jan og lýkur 4. feb.
UPPLÝSINCAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
mynt.
Enn fremur er talið að uppreisnar-
menn hafi staðið að árás á herbyrgi
í norðurhluta eyjarinnar á mánudag.
Einn hermaður féll í árásinni og
annar særðist.
Alls hafa 75 stjórnarhermenn
fallið í átökum sem aðskilnaðar-
sinnar Tamíl-tígra eru grunaðir um
að hafa staðið að.
Harmar árás á norræna
friðareftirlitsmenn
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, hefur hvatt stjórnvöld
á Sri Lanka og aðskilnaðarsinna
Tamíl-tígra til að virða vopnahlé
og halda áfram viðræðum. Hann
harmar jafnframt árás á norræna
eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu
þjóðanna á laugardag. Islenskur
friðareftirlitsmaður slapp með
skrekkinn í þeirri árás. Eftirlits-
mennirnir voru sendir til landsins
í kjölfar vopnahléssamkomulags
í febrúar árið 2002 og er ætlað að
binda endi á tveggja áratuga átök
í landinu sem kostað hafa 60.000
mannslíf. „Aukið ofbeldi á undan-
förnum mánuðum hefur reynt mjög
á vopnahléð," sagði Annan og bætti
við að ofbeldið kæmi enn á ný niður
á óbreyttum borgurum.
Mahmoud Ahmadinejad forseti (rans.
Starfsemi CNN
leyfð á ný
íranar leyfðu í gær bandarísku
gervihnattasjónvarpsstöðinni CNN
á ný að starfa í landinu eftir að for-
ráðamenn hennar báðust afsökunar
á því að hafa rangtúlkað ummæli
Mahmoud Ahmadinejad, forseta
landsins. Degi áður hafði frétta-
mönnum CNN verið bannað að
starfa í landinu. Ahmadinejad sagði
á fundi með fféttamönnum á laugar-
dag að „Iranar hefðu rétt á kjarn-
orkueldsneyti.“ Þessi orð voru rang-
lega þýdd á CNN sem að „notkun
kjarnorkuvopna í Iran væri rétt.“
Banni á starfsemi stöðvarinnar
var aflétt að beiðni Ahmadinejads
eftir að hún hafði beðist afsök-
unar á mistökunum. CNN hefur
ekki fasta starfsstöð í landinu en
fréttamenn á staðnum afla frétta
fyrir hana og stundum fá fréttarit-
arar leyfi til að koma til landsins
til að sinna stuttum verkefnum.
Ekki hlynntir
refsiaðgerðum
Rússar og Kínverjar tóku af allan
vafa um það í gær að þeir eru
ekki hlynntir því að Sameinuðu
þjóðirnar grípi til refsiaðgerða til
að fá írana til að draga úr kjarn-
orkuáætlunum sínum. Rússar hafa
boðið Irönum upp á aðstöðu á
rússneskri grund til auðgunar úrans
og Kínverjar hvetja til þess að reynt
verði til þrautar að ná samkomulagi.
Stjórnvöld í íran hvöttu jafnframt
Breta, Frakka og Þjóðverja til að
koma aftur að samnningaborðinu.
Þjóðirnar slitu samningaviðræðum
um kjarnorkuáform Irans í síðustu
viku í kjölfarþess að íranar tóku
á ný til við rannsóknir á auðgun
úrans. Stjórnvöld í Banda-
ríkjunum, og bandamenn þeirra í
Evrópusambandinu, hafa lýst því
yfir að þeir vilji að Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunin (LAEA) vísi
málinu til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna sem gæti leitt til þess að
lranar verði beittir refsiaðgerðum.
Háttsettur íranskur embætt-
ismaður segir að ákvörðun um
rannsóknir á kjarnorkueldsneyti
sé lögleg og verði ekki aftur tekin.
Ennfremur segir hann að fyrir-
hugaður sé fundur fulltrúa Irana í
Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni
(IÁEA) og Mohammed ElBaradei,
yfirmanns LAEA, um málið. Tals-
maður IAEA hefur ekki staðfest
að slíkur fundur sé fyrirhugaður.
Hryðjuverkasamtök kunna að beita gereyðingarvopnum:
Hætta á sýkla-
eða efnavopnaárásum
Aðeins er tímaspursmál hvenær
hryðjuvekasamtök á borð við A1
Kaída beita gereyðingarvopnum
gegn vestrænum skotmörkum
að mati Henry Crumpton, sem
hefur umsjón með aðgerðum gegn
hryðjuverkum í Bandaríkjunum.
Crumpton lýsti þessu yfir í viðtali
við breska dagblaðið The Daily Tele-
graph. Sagði hann jafnframt að árás,
þar sem notast yrði við sýkla- eða
efnavopn, kynnu að vera alvarlegri
ógn við öryggi en kjarnorkuárás.
Crumpton sem áður vann fyrir
Bandarísku leyniþjónustuna (CIA),
ræddi einnig þær breytingar sem
orðið hefðu á hryðjuverkastarfsemi
og að búast mætti við að baráttan
gegn þeim myndi vara áratugum
saman.
Crumpton sagði að í kjölfar stríðs-
ins gegn Talibanastjórninni í Afgan-
istan árið 2001 hafi hersveitir banda-
manna komist að því að A1 Kaída
hafi unnið að mistilsbrandsáætl-
unum sem beint hefði verið að vest-
urveldum. Hann sagði að samtökin
hafi verið með hæfa sérfræðinga á
sínum snærum og tekið áætlunina
mjög alvariega.
Hættaertalin ó að hryöjuverkasamtök
oeiÞ gereyðinqarvopnum gegn skot-
mórkum á Vesturlöndum.