blaðið - 18.01.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 18.01.2006, Blaðsíða 24
{32 il MENNIðlG MIÐVIKUDAGUR 18, JANÚAR ,2006 Maöiö Ritþing um Thor Vilhjálmsson Ótrúlegur sköpunarkraftur Ritþing um hinn þjóðþekkta rithöfund Thor Vilhjálmsson verður haldið laugardaginn 21. janúar 2006 kl 13:30. Halldór Guðmundsson, bókmennta- fræðingur verður stjórnandi Ritþingsins. „Thor er einn af þessum höf- undum sem býr yfir hreint ótrú- legum sköp- ' •**] unarkrafti," ^ segir Halldór þegar hann er spurður hvað einkenni Thor sem listamann. „Nú er meir en hálf öld, nánar tiltekið 55 ár síðan fyrsta bókin hans kom út og hann er enn í fullu fjöri. Það eru ekki nema sendi frá sér Halldór Guðmundsson stjórnandi Ritþingsins. ,Thor er stór í sniðum og engan veginn auðveldur viðfangs, og það held ég að geti gert þetta ritþing veru- lega skemmtilegt." sjö ár síðan hann sína miklu skáldsögu um öld Sturlunga, Morgunþulu í stráum, sem færði honum íslensku bók- menntaverðlaunin. Raunar er það merkilegt að þessi gamli módern- isti og mikli endurnýjunarmaður íslensks prósa skuli hafa snúið sér að íslenskum fornbókmenntum. En lýsir vel breiddinni í viðfangs- efnum hans sem kannski speglast mörg í frægustu bók hans, Grám- osanum: Ástin og valdið, orðin, sannleikurinn og þögnin, heims- borgarinn andspænis íslenskri einangrun og íslenskri hefð. Þetta er allt hlutir sem hann hefur glímt við í ótal bókum, alltaf al- gerlega óhræddur að fara sínar eigin leiðir. Og meðal annars þess vegna er gaman að ræða við hann á ritþingi, því hann hefur verið harður baráttumaður í menningar- pólitík en farið sínar eigin leiðir, andstæðingur íhalds og valdhafa Thor Vilhjálmsson. Myndin var tekin 12. ágúst, á 80 ára afmælisdegi skáldsins. en jafn andsnúinn sovétsósíalisma og skoðanakúgun. Hann var einn afútgefendum menningartímarits- ins Birtings sem hafði merkilega sérstöðu í miðju köldu stríði. Og hann hefur alla tíð varðveitt með 109 SU DOKU talnaþrautir Lausn síðustu gátu 5 1 2 8 3 7 6 9 4 3 8 6 9 5 4 2 7 1 7 4 9 6 2 1 3 5 8 6 9 8 7 4 2 1 3 5 1 3 4 5 9 6 8 2 7 2 5 7 3 1 8 9 4 6 4 6 5 2 8 9 7 1 3 9 7 3 1 6 5 4 8 2 8 2 1 4 7 3 5 6 9 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 5 6 3 8 2 3 2 8 3 6 7 3 2 3 7 5 4 1 4 3 8 2 3 9 6 9 2 7 6 1 sér forvitni og brennandi áhuga á sínum viðfangsefnum; þannig hefur hann setið með okkur yngri mönnum í stjórn Bókmenntahá- tíðar í meira en 20 ár, alltaf allra manna frjóastur svo við megum hafa okkur alla við. Thor er stór i sniðum og engan veginn auð- veldur viðfangs, og það held ég að geti gert þetta ritþing verulega skemmtilegt." Eins og áður var sagt er Halldór GuðmundssonstjórnandiRitþings- ins og spyrlar verða Sigurður Páls- son, rithöfundur, og Astráður Ey- steinsson, bókmenntafræðingur. Á Ritþinginu verða flutt tónlistar- atriði og lesið upp úr verkum Thors. FramkomalngveldurÝrJónsdóttir, söngkona, Sigrún Hjálmtýsdóttir, söngkona, Ástríður Alda Sigurð- ardóttir, píanóleikari, Helga Björg Ágústsdóttir sellóleikari og Stein- unn Ólafsdóttir, leikari. Auk Ritþingsins verður sett upp sýning á myndverkum Thors og eins verkum sem hann hefur gert í samvinnu við aðra listamenn. Einnig verða sýnd myndbönd með sjónvarpsefni og hljóðupptaka með upplestri skáldsins og sitt- hvað fleira fróðlegt frá löngum og glæsilegum ferli, meðal annars afrakstur samstarfs við aðra lista- menn. Umsjónarmaður og sýning- arstjóri er Harpa Björnsdóttir. Belgtska Kongó: ★ ★★★ Ostöðvandi skemmtun Borgarleikhúsið hefur hafið sýn- ingar á leikritinu Belgíska Kongó á Nýja sviðinu, þriðja leikárið í röð í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Höfundur verksins er Bragi Ólafsson en leikendur eru Eggert Þorleifsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Ellert A. Ingimundarson og Davið Guðbrandsson. í verkinu segir frá hinni öldruðu Rósalind sem eyðir ævikvöldinu á elliheimili. Fátt virðist raska tilbreytingarsnauðu lífi hennar þar sem hún situr á rúmstokknum og bíður þess sem verða vill. Einn daginn kemur sonarbarn hennar, Rósar, í óvænta heimsókn ásamt syni sínum. Rósa- lind og Rósar hafa ekki talast við í sjö ár vegna ósættis í tengslum við íbúð sem Rósalind leigði dóttur Rósars. Á gamansaman hátt dregur verkið fram andstæður kynslóða og viðhorfa þar sem alvarleik- inn er þó aldrei langt undan. Fer á kostum Það er ekki að undra að Eggert hafi á sínum tíma hlotið Grímuverð- launin fýrir túlkun sína á Rósalind enda fer hann á kostum í hlutverki sínu. Túlkun Eggerts á texta sem og líkamleg tjáning heppnast með eindæmum vel og persónan stendur fýrir vikið ljóslifandi á sviðinu. Ellert A. Ingimundarson er góður sem Rósar, hinn stífi og yf- irborðslegi bankamaður. Þá verður ekki hjá því komist að minnast á Ilmi Kristjánsdóttur sem túlkar hina glaðværu hjúkrunarkonu, Sigríði, afskaplega vel og augljóst að Ilmur og Eggert ná vel saman í þessu verki. Davíð Guðbrandsson sem leikur Hilmar kemst vel ffá hlutverki sínu þó vissulega sú per- sóna sé ekki eins fyrirferðarmikil i verkinu og hinar þrjár. Þá var það ánægjulegt að sjá íslenskt leikverk sem að mestu er laust við þá tilgerð og þann ofleik sem því miður er alltof algengur í leildiúsum hér á landi. Umgjörð sýningarinnar er einföld og hefðbundin. Áhorfendur fá innsýn inn í herbergi Rósalindar þar sem verkið fer að mestu leyti fram. Þá var gaman að sjá hvernig kÆ _ Eggert Þorleifsson og llmur Kristjáns- dóttir í hlutverkum sínum f leikritinu Belgíska Kongó. einn borðfótur virðist leka fram að sviðinu sem einhvers konar súreal- ísk tilvísun og undirstrikar þannig eitt af meginþemum leikritsins þ.e. afstæðni tíma og veruleika. Borgarleikhúsið - Nýja svið Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson Leikstjóri: Stefán Jónsson Leikarar: Eggert Þorleifsson, Ellert A. Ingimundarson, Davíð Guðbrandsson og llmur Kristjánsdóttir. hoskuldur@vbl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.