blaðið - 18.01.2006, Page 16
VUBigWKMBSS
16 1 iLI MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2006 blaöiö
Um fjölmiðlarekstur 365
Árið 2002 kom ég
í fyrsta sinn að
rekstri fjölmiðla.
Við sáum að það
var framtíð í þeim
hugmyndum sem
voru uppi um
rekstur á dagblaði
sem skyldi dreift
ókeypis á öll heim-
ili á höfuðborgar-
svæðinu og að slíkur rekstur gæti
skilað viðunandi afkomu. í upphafi
settum við eina milljón í Bónus og
sú fjárfesting gekk upp. Við settum
50 milljónir í Fréttablaðið og sú fjár-
festing gekk líka upp.
Undanfarin misseri höfum við
byggt upp fjölmiðlafyrirtækið 365
ásamt um 900 öðrum hluthöfum.
Grunnurinn að því var Fréttablaðið
en svo urðu aðstæður þannig að
okkur gafst tækifæri til að bæta við
reksturinn. 365 fjölmiðlar eru í dag
framsæknasta fjölmiðlafyrirtæki
landsins þar sem innanborðs er
kraftmikið og gott starfsfólk. Rekst-
urinn hefur gengið að óskum og er
byggður á þeirri hugmyndafræði að
um sé að ræða fjölmiðlafyrirtæki
sem sinnir öllum tegundum fjöl-
miðlunar; fréttum, afþreyingu, upp-
lýsingu og skemmtun. Fyrirtækið
rekur sjónvarps- og útvarpsstöðvar,
gefur út tímarit og dagblöð auk þess
að halda úti vefsvæðum. Þetta hefur
gefist vel og fjölbreytt rekstrarform
skapar grunninn að því að hægt er
að reka stórt fjölmiðlafyrirtæki sem
skilar afkomu sem hefur ekki áður
þekkst í rekstri fjölmiðla á íslandi.
365 fjölmiðlar eru dótturfélag
Dagsbrúnar hf. sem skráð er í Kaup-
höll íslands. Fyrirtækið skilar upp-
gjörum á þriggja mánaða fresti í sam-
ræmi við þær leikreglur sem gilda í
Kauphöllinni. Þar birtast uppgjör
sem sýna að við erum að ná árangri.
Við erum að ná árangri sem hefur
reynst öðrum fjölmiðlum ógerlegt
hingað til. Það er því fjarri lagi að
einhver sé að borga með fjölmiðlum
365 þótt slíkt kunni að eiga við aðra
fjölmiðla hér á landi. Allar tölur í
uppgjörum Dagsbrúnar sýna annað.
Fjölmiðlar og stjórnmálamenn, sem
hafa að undanförnu fjallað mjög ítar-
lega um rekstur 365 fjölmiðla, geta
því leitað þangað áður en þeir full-
yrða annað um reksturinn.
Nú að undanförnu hafa fjölmiðlar
365 verið heimfærðir á mig persónu-
lega eða það fyrirtæki sem ég er í for-
svari fyrir. Það hefur orðið til þess
að fjöldi manna hefur leitað til mín
og óskað eftir því að ég beiti mér
fyrir því að breyta efnistökum fjöl-
miðla f eigu 365. Þessar beiðnir hafa
verið af ýmsum toga. Reka ritstjóra
og ráða annan, leggja niður dag-
skrárþætti fjölmiðla, skrúfa niður í
Ingva Hrafni, henda út Silfri Egils
og svona mætti lengi telja. Þeir sem
hafa óskað eftir slíku við mig, vita
að það hefur engan árangur borið.
Ritstjórn fjölmiðla er ekki á minni
könnu. Ég kem að rekstri fjölmiðla
út frá arðsemisforsendum og að þeir
peningar, sem ég lagði til verkefnis-
ins í upphafi, ávaxti sig.
Ritstjórar DV fóru hins vegar út
af brautinni. Þeir tóku poka sinn
og tóku ábyrgð á ritstjórnarstefnu
sinni. Aðrir mættu taka ákvörðun
þeirra sér til fyrirmyndar.
Höfundur erforstjóri Baugs.
Jón Asgeir
Jóhannesson
Varist farisea og fræöimenn
‘Varist farisea
og fræðimenn”,
sagði Jesús, en
þeir voru ekki
verkfræðingar
né hagfræðingar
heldur öfgafullir
bókstafstrúar-
menn, semboðuðu
gyðingdóminn
gamla. Blessunar-
lega hefur íslenskri alþýðu tekist
að ná góðum lífskjörum ásamt heil-
brigðisþjónustu og öryggi. Það gat
gerst með því að fólk flutti úr sveit-
unum og tileinkaði sér ný viðhorf og
veiðiskap; já, þorskurinn kom fólki
til bjargar. Fiskvinnsla og sjósókn
skapaði störf í strandbyggðum og
losaði um tök bænda á verkafólki.
Atvinnuleysi er böl, sem ungt fólk
á Islandi hefur ekki kynnst og það
er verra en hátt verð á matvælum.
Marga hálfmenntaða framsóknar-
menn má kalla fræðimenn í gamla
skilningnum, en þeir hafa margir
verið teknir fram yfir betur mennt-
aða í störf. Jónas frá Hriflu sagði að
framsóknamenn væru einfaldlega
betri en aðrir. Margir töldu vera þver-
sögn milli manngildisins og auðsins,
en hún er nú leyst með því að láta
gullið vinna með manngildinu; slag-
orðið um “manngildið umfram auð-
Íildið” er því innantómt og óþarft.
kvörðun á kartöfluverði með
Hrifluaðferðum, þ.e. það nægilega
háu svo unnt sé að borga verkafólki
í kartöflugörðunum lífvænlegt kaup,
eru úreltar því markaðurinn sjálfur
er betur til þess fallinn. Hagræðing
Adams Smiths gerðist með vélvæð-
ingu og framförum í viðskiptum.
Vélvæðingin í sveitunum kom svo
í staðinn fyrir verkafólkið og leysti
heilabrot Bjarna Harðarsonar um
fátæklingana og kartöflurnar fyrir
áratugum á íslandi.
Hann lætur fara í taugarnar á
sér málflutningur Neytendasam-
takanna og óskar sér þess yfir
hátíðirnar að vera laus við vand-
lætingu þeirra um orsakir hás mat-
vælaverðs. Hann talar sjálfur eins
og fræðimennirnir í landinu helga
áður fyrr og segir svo að ég láti að
því liggja í svargrein minni 29.12. í
Blaðinu undir fyrirsögninni “Jóla-
bænir beitarhúsamanna” að ég geti
leyst vandann, sem sagt hátt mat-
vælaverð. Auðvitað er það rangt og
ég hef hvergi látið að því liggja, en
málið er afar flókið og Bjarni sjálfur
leggur lítið sem ekkert fram um það
efni. Auðvitað á hann að vita að verð
á helstu mjólkur- og kjötafurðum er
hæst hér á landi miðað við senni-
lega öll samanburðarlönd í okkar
heimshluta og er það þungt í skauti
fyrir fátækar íslenskar barnafjöl-
skyldur. Honum finnst greinilega
að kröfur um lækkun matvælaverðs
muni bitna á íslenskum bændum
og því örlar á gömlum Hrifluskýr-
ingum um það hvernig neytendur
og bændur leysi vandamálið um fá-
tæklinga. Auðvitað eru það gamlir
órar og Bjarni Harðarson á ekkert
að skammta fátæku fólki pylsur og
gosdrykki, sem finnast í vísitölunni
og matarverðinu.
Eins og öllum er kunnugt þá hefur
forsætisráðherra nú skipað nefnd til
að fara niður í ástæður fyrir háu
matarverði á Islandi. Ráðherrann
hefur talið það við hæfi að skipa
fulltrúa bændasamtakanna en ekki
Neytendasamtakanna í nefndina
og lýsir það nokkuð hvernig hugsað
er á þeim bæ. Ekki er heldur að sjá
að Bjarni Harðarson telji málstað
Neytendasamtakanna um matvæla-
verð verðan viðlits í þessu sambandi
og sé frekar til þess fallinn að láta
hann fara í taugarnar á sér og skrifa
óræðar yfirlýsingar í Blaðinu um
matarverð og fátæklinga.
Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur
Jónas
Bjarnason
Aðalflutningar
Öryggi alla leið
í
|við flytjum 1 stærra husnæði
helgina 27. - 30. janúar.
OPID VIRKA DAGA TIL KL. 17.00 FÖSt. tll kl. 16.00
Vatnagörðum 6 • S. 581 3030 • Fax: 471 2564 • adaleg@simnet.is