blaðið - 24.01.2006, Qupperneq 30
38IFÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 2006 blaðið
HVAÐ FINNST ÞÉR?
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
*,i,kada,ab|aðjö==
„Grínið er greinilega svona dautt í Ameríku að það þarf að hringja í gömlu
stjörnurnar. Mér finnst þetta auðvitað bara mjög jákvætt. Þetta eru einhverj-
ir bestu gamanþættir síðustu ára og það er frábært fyrir aðdáendur að fá að
berja þá augum á ný,“ segir Jón Gunnar og bætir við að uppáhalds persónan
hans úr þáttunum sé Chandler. „Kaldhæðinn snillingur."
Fréttir hafa borist af því að til standi að gera fjóra nýja þætti um ævintýri vinanna í New York.
Lítið hefur borið á Gísla Mar-
teini Baldurssyni síðan i
prófkjöri sjálfstæðismanna í
haust ogkvarta
sum flokks-
systkini hans
undan því. Á
laugardags-
kvöldið kom
hann svo fram
sem einn af
umsjónarmönnum íslenskrar
undankeppni Evróvisjón, sem
fram fer í Aþenu á Grikklandi
í maí. Vinstrimenn munu varla
sitja þegjandi ef Gísli ætlar að
nota það til að vera í fréttum
eins og á laugardagskvöldið og
munu efalítið ásaka hann um
að vera enn einu sinni að mis-
nota RÚV. Hitt er svo annað
mál að þeir vona sumir að þetta
bendi til þess að Gísli Marteinn
sé á leið úr stjórnmálum og aft-
ur í fjölmiðlahasarinn.
Jón Gunnar Geirdal, markaðsstjóri hjá Senu
Hvernig líst þér á endurkomu
vinanna í Friends?
Teri og Clooney?
Það mætti halda að það væri einhvers konar kynbótaþema í Hollywood þessa dagana þar sem ofur-
fallega fólkið virðist ekki fá nóg af hvort öðru. Allir vita af sambandi Brad Pitt og Angelinu Jolie en
nú berast þær fregnir að aðþrengda eiginkona Teri Hatcher sé að slá sér upp með gráhærða kvenna-
bósanum George Clooney.
Stjörnurnar tvær hafa sést saman á íjölmörgum stöðum í Hollywood og er haft eftir Gróu á Leiti
að vel fari á með þeim á stefnumótunum. Talsmenn stjarnanna þykja gefa furðuleg svör þegar
þeir eru spurðir um samband turtildúfanna. „Hvernig skilgreinir þú stefnumót?“ sagði tals-
maður Clooney við blaðamann MSNBC. Seinna sagði sami talsmaður að Clooney neiti
alfarið að hafa farið á „fjölmörg“ stefnumót með Teri.
Enginn veit hver sannleikurinn á bak við meint ást-
arsamband stjarnanna tveggja er, en þegar Teri
sjálf var spurð svaraði hún um hæl: „Ef ég hefði
farið á stefnumót með George Clooney þá myndi
J ég ekki tala um það.“ Þar hafiði það!
Sienna sparkar Jude... aftur
Á meðan sumir finna ástina losa aðrir sig við hana. Enn og aftur berast fréttir af sam-
bandi Hollywood parsins Jude Law og Siennu Miller. Samkvæmt breska göturitinu
The Sun á Sienna að hafa losað sig við Jude vegna áforma hans um að leigja hús með
fyrrverandi eiginkonu sinni, Sadie Frost, og tveimur börnum þeirra. Jude ætlaði að búa
í húsinu á meðan á tökum á kvikmyndarinnar Holyday stæði.
Heimildamaður The Sun sagði Siennu hafa öskrað á Jude þegar hann sagði henni frá
áformum sínum og á hún að hafa sagt að hann gæti alveg eins byrjað aftur með henni
fyrst hann væri að fara að búa með henni.
Sienna og Jude hættu saman í fyrra eftir að hann gamnaði sér með barnapíunni Daisy
Wright, en hún tók hann aftur í sátt, enda þykir strákslegt bros Jude tæla dömurnar
í röðum.
Kosningabaráttan hefur
þyngst nokkuð hjá Birni
Inga Hrafnssyni, helstu vonar-
YfT'JSyi'. stjörnu Fram-
sóknarflokks-
W . J ins, eftir að
40 fjölmiðlar
“ birtu fréttir
um að ung-
m e n n u m
undir lög-
aldri hefði verið veitt áfengi á
kosningaskrifstofu hans. Björn
Ingi er þar að auki formaður
fjölskyldunefndar Halldórs Ás-
grímssonar, sem gerir málið
enn vandræðalegra. Sjálfur seg-
ist Björn Ingi ekki hafa verið
á staðnum þegar umrætt sam-
kvæmi átti sér stað. Til að kór-
óna allt saman var svo birt skoð-
anakönnun um helgina sem
bendir til þess að framsókn nái
ekki inn manni í Reykjavík...
Gauti Eggertsson, hagfræð-
ingur hjá Seðlabanka
Bandaríkjanna, mætti í Silf-
ur Egils á
sunnudaginn
og sagðist já-
kvæður um
framtíðina
í islenskum
fjármálum.
Ástæðan fyrir
komu Gauta
til landsins er þó ekki til að
auka kaupgleði þjóðarinnar
heldur er hann hingað kominn
til að styðja Dag, bróður sinn, í
prófkjörsbaráttu Samfylkingar-
innar.
Misjafn er smekkur manna! Það sannaði
sig enn einu sinni á laugardaginn þegar
undankeppni Eurovision fór fram f ein-
hverjum fáránlega glæsilegum sal niðri
á Granda. Smáborgaranum finnst alveg
órúlegt hvað það rata glötuð lög inn í
þessa keppni ár eftir ár, sama hvernig
gengið var í keppninni árið áður.
Selma var með allan pakkann í fyrra,
gott „bylgju-power-popp" lag að hætti
Þorvalds Bjarna, kynþokkafulla dansara,
réttu sporin og fiðluútsetningar sem
myndu láta Roland Hartwell svitna!
Hún var einnig með einvala lið bak við
sig, frægan kærasta, íslensku þjóðina
og fyndna gaurinn með skræku röddina
(Gísla Martein). En allt kom fyrir ekki,
við töpuðum og vorum ótrúlega sár og
leið yfir því. Fólk vissi ekki sitt rjúkandi
ráð og fussaði yfir þessu pakki í Evrópu
sem kann ekki gott að meta. Loks fór
fólk að greina þetta og komst að því að
það þýðir ekkert að taka þessa keppni
svona alvarlega því að það vinna alltaf
einhverjir trúðar frá Austur-Evrópu.
Nú ári síðar er komið að undankeppn-
inni og hvernig lög rata í undankeppn-
ina? Léleg „bylgju-power popp" lög og
ekkert annað! Smáborgarinn ætlaði ekki
að trúa sínum eigin eyrum, erum við
virkilega svona fljót að gleyma? Heldur
þetta fólk, sem komst áfram, virkilega
að það sigri með þessum lögum, eða er
þetta bara svona „vera með" dæmi?
Smáborgarinn vonar svo sannarlega
að næsta umferð söngvakeppninnar
verði skemmtilegri og að það verði
eitthvað fútt í lögunum sem keppa þá.
Hvernig væri samt að gera eitthvað
sérstakt á næsta ári? Til dæmis láta ís-
lenska handknattleikslandsliðið syngja
keppnislegt lag sem gæti verið eins og
lítil ópera með tilheyrandi látum á svið-
inu. Guðjón Valur gæti stokkið um með
þráðlausan hljóðnema og sungið ein-
söng á meðan Ólafur, Sigfús og allir hin-
ir myndu „humma" einhverja frábæra
línu undir. Unnur Birna, ungfrú heimur,
myndi að sjálfsögðu vera með og stíga
vel valin dansspor og Jón Ásgeir Jóhann-
esson myndi valsa um og dreifa íslensk-
um peningaseðlum yfir sviðið. Loks
gæti Viggó Sigurðsson stokkið inn á
sviðið um miðbik lagsins með rafmagns-
gítar, tekið þungarokkssóló og mölvað
gítarinn í lok lagsins. Lagið myndi heita
„Afram ísland!" og textinn væri um stór-
sigra okkar á alþjóða vettvangi síðast-
liðin ár. Með þessu atriði væri sigur ekki
aðeins möguleiki heldur staðreynd!
&
© Jlm Ungor/dist. by Unlted Modía, 2001
eftir Jim Unger
4-6
Robbie semur frið við 50 Cent
Vondi strákur breska poppsins, Robbie Williams, samdi frið við harðjaxlinn með skæru
röddina, 50 cent, eftir að hafa sigrað hann í flokknum Besti alþjóðlegi listamaðurinn á NRJ
tónlistarhátíðinni í Frakklandi um helgina.
Peyjarnir urðu víst eitthvað ósáttir eftir að þeir gistu á sama hóteli í Þýskalandi á síðasta ári,
en Robbie var alls ekki sáttur við hávaða sem barst frá herbergi 50 cent og á að hafa kvartað
marg oft. Maður spyr sig hversu mikinn hávaða maður þarf að gefa frá sér til að pirra partí-
ljónið Robbie Williams, en við látum það liggja milli hluta. Stuttu eftir Þýskalandsförina sagði
50 að Robbie hafi kvartað vegna biturleika í sinn garð eftir að hafa neitað að hitta hann.
En ævintýrin gerast enn og Robbie tók vinalega í höndina í 50 þegar hann rölti upp á
svið um helgina til að ná í verðlaunin sín. í ræðu sinni vann hann sér svo inn fleiri vina-
stig með orðunum „Ég vil líka votta herra 50 cent virðingu mína.“ Já það er gaman þegar
dýrin í skóginum geta verið vinir.
HEYRST HEFUR...
Pað rak marga í rogastans
þegar þeir lásu DV í gær. Þar
var viðtal við pólsku stúlkuna
■■mr« mrnmmxcm* M O II Í k U
I il$ k sem óttast
m-jSM það mest
af öllu að fyrrverandi sambýl-
ismaður hennar dreifi nektar-
myndum af henni á Netið. Hið
versta mál auðvitað og full
ástæða til að vorkenna stúlk-
unni. En það sem var athyglis-
vert við fréttina var niðurlag
hennar en þar biður Monika
þá sem hafa séð slíkar myndir
af henni að hafa samband við
ritstjórn DV....ekki lögregluna
heldur DV. Öðruvísi mér áður
brá.
Þú ættir kannski að borða minni fisk,