blaðið - 14.02.2006, Side 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 blaöiö
SPORTÞRENNA
« góð leið fyrir þá sem vilja styrVjá sig 61 árangurs og auka
geVj ($róttum og Kkamsrækt Jafnframt fyrir þá sem vrtja
aukafitubrennslu etginleika Kkamans. Hver dagskammtur
af 53 Sportþremu rmiheWu 1 f/ðMtamtfntöfiu, 2 L-
KarrHtJntöflur og ettt hylki af omega-3 fitusýrum.
Fangi lést
eftir átök
mbl.is | Til átaka kom á milli fanga
af afrískum og suður-amerískum
uppruna í fangelsi í Los Angeles í
fyrradag með þeim afleiðingum
að einn maður lést. Þetta er í
annað sinn á stuttum tíma þar
sem fangi lætur lífið í kynþátta-
óeirðum í fangelsi í borginni.
Mikil ólga hefur ríkt í fangelsum
Los Angeles undanfarna viku.
Fanginn, sem var 38 ára gam-
all blökkumaður, lést síðdegis í
fyrradag effir að hann og félagi
hans höfðu slegist við fjóra fanga
af suður-amerískum uppruna
í klefa sem hýsir sex fanga.
Fangaverðir stöðvuðu slagsmálin
og fóru með særða fangann á
sjúkrastofu eftir að hann kvartaði
undan verkjum. Þegar komið var
með hann á sjúkrastofu fangelsisins
hné hann niður. Sjúkraliðar reyndu
lífgunartilraunir en án árangurs.
Réttarhöld
hefjast yf-
ir Zuma
Réttarhöld yfir yfir Jacob Zuma,
fyrrum varaforseta Suður Afríku,
hófust í gær í Jóhannesarborg en
hann er ákærður fyrir nauðgun.
Honum er gefið að sök að hafa
nauðgað konu á fertugsaldri á
heimili sínu í Jóhannesarborg í
nóvember á síðasta ári. Zuma sem
er 63 ára neitar sök og um 1000
manns komu saman fyrir utan
dómshús borgarinnar til að sýna
honum stuðning sinn. Einnig komu
þar saman um 50 manns sem létu
í ljósi andúð sína á nauðgunum.
„Við sendum út sterk skilaboð og
sýnum fórnarlömbum nauðgana
og ofbeldis samstöðu,“ sagði Carrie
Chelver sem er talsmaður samtaka
sem berst gegn ofbeldi gegn konum.
Zuma var einn af vinsælustu
stjórnmálaimönnum þjóðarinnar og
barðist méðal annars fyrir afnámi
aðskilnaðarstefnunnar á sínum
tíma. Á tímabili var hann nefndur
sem hugsanlegur eftirmaður
Thabo Mbeld, forseta, en í kjölfar
ákæra um spillingu hefur sigið á
ógæfuhliðina og nú telja menn
að stjórnmálaferli hans sé loldð.
Yoweri Musaveni forseti Úganda.
Ráðist á
forsetann
Vopnaðir menn réðust á laugar-
dag á bílalest Yoweri Museveni,
forseta Úganda, í hinum eldfima
norðausturhluta landsins.þar sem
forsetinn var á kosningaferðalagi.
Her Úganda greindi frá þessu í gær
Museveni sem er 62 ára slapp
ómeiddur úr árásinni sem átti
sér stað nærri þorpinu Kangole í
Moroto-héraði.„Forsetinn er heill
á húfi og heldur kosningabarátt-
unni áfram,“ sagði í yfirlýsingu frá
talsmanni lífvarðarsveita forsetans.
Hann sagði enn fremur að ekld væri
vitað hverjir hefðu staðið að bald
árásunum en lífvörðum forsetans
hefði tekist að hrekja þá á brott.
Breytingar á almannavörnum í Banda-
ríkjunum í kjölfar gagnrýninnar skýrslu
Starfsemi Almannavarna Bandaríkjanna verður tekin til endurskoðunar í kjölfar harðrar gagnrýni á frammistöðu
stjórnvalda við fellibylnum Katrínu. Viðbrögð voru misheppnuð á öllum stjórnsýslustigum að mati skýrsluhöfunda
Michael Chertoff, heimavarnarráð-
herra Bandaríkjanna, hyggst gera
víðtækar breytingar á Almanna-
vörnum ríkisins í kjölfar harðrar
gagnrýni á frammistöðu stjórn-
valda við hjálpar- og neyðarstarf
eftir fellibylinn Katrínu síðastliðið
haust. Meðal annars verður starfs-
mönnum fjölgað um 1500 til að gera
viðbragðskerfið áreiðanlegra.
Fjölmiðlar birtu í gær niðurstöður
skýrslu, sem gerð var á vegum Banda-
rfkjaþings en kemur út á morgun.
Efni hennar var lekið til fjölmiðla
og kemur fram að bandaríska ríkis-
stjórnin hafi ekki brugðis rétt við
afleiðingum fellibylsins.
Frammistaða Chertoffs er sérstak-
lega gagnrýnd í skýrslunni. Að sögn
skýrsluhöfunda hleypti hann af
stokkunum neyðarviðbragðsáætlun
.seint, illa eða alls ekki“ sem gerði
það að verkum að björgunarsveitir
og vistir bárust allt að þremur
dögum of seint á hamfarasvæðin.
Þegar á heildina er litið hafi
viðbrögð stjórnvalda einkennst
Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru harðlega gagnrýnd fyrir slæleg viöbrögð við fellibyln-
um Katrínu síðastliðið haust. Meira en 1300 manns fórust í hamförunum, hundruð
þúsunda misstu heimili sín og stór hluti New Orleans fór undir vatn.
af úrræðaleysi, mistökum og
skipulagsleysi. Viðbrögð við felli-
bylnum Katrínu voru misheppnuð
á öllum stjórnsýslustigum að mati
skýrsluhöfunda.
Fréttaritari Breska ríkisútvarps-
ins í Washington segir að skýrslan
bendi til að um eins konar þjóðar-
skömm hafi verið að ræða.
Rýming húsa fyrirskipuð of seint
I skýrslunni segir að stjórnvöldum
hafi ekki tekist að skilgreina og
vinna sem skyldi úr þeim upplýs-
ingum sem þeim bárust. Ray Nagin,
borgarstjóra í New Orleans og Kathl-
een Blanco, ríkisstjóri í Louisiana,
gáfu of seint út fyrirskipanir um
rýmingu húsa sem leiddu til dauðs-
falla og juku enn á þjáningar fólks.
Ennfremur liðu Almannavarnir
fyrir skort á þjálfuðu og reynslu-
miklu starfsfólki.
Skýrsluhöfundar segjast eiga í
erfiðleikum með að skilja hvernig
standi á þeim mikla klaufaskap og
vangetu sem hafi einkennt viðbrögð
stjórnvalda fyrir og eftir bylinn. „Ef
þetta er það sem gerist þegar við
erum vöruð við fyrirfram, þá hryllir
okkur við tilhugsuninni um hverjar
afleiðingarnar yrðu þegar svo er
ekki,“ segja skýrsluhöfundar.
Hamas lofar friði fyrir land
Smlðjuvegl 66, 200 Kópavogl - http://Www.landvelar.ls
Hamas-samtökin munu binda endi
á vopnaða baráttu sína gegn ísrael ef
ríkisstjórn landsins lætur af hendi
herteknu svæðin. „Ef ísrael viður-
kennir rétt okkar og heitir því að
hörfa af öllum herteknum svæðum,
munu Hamas-samtökin og pal-
estínska þjóðin, ákveða að láta af
vopnaðri andspyrnu,“ sagði Khaled
Meshaal, leiðtogi samtakanna í við-
tali við rússneska dagblaðið Nezavis-
imaya Gazeta.
Áður hafði Meshaal sagt að
Hamas-samtökin myndu aðeins
samþykkja langtímavopnahlé við
ísraelsmenn ef þeir myndu viður-
kenna rétt Palesínumanna til sjálf-
stjórnar og koma landamærum
landanna aftur í það horf sem þau
voru fyrir sex daga stríðið 1967.
Meshaal sagði einnig í viðtal-
inu við Nezavisimaya Gazeta að
Hamas-samtökin teldu sig ekki
skuldbundin af Vegvísinum svo
kallaða, alþjóðlegu friðarsamkomu-
lagi, þar sem enginn annar færi
eftir honum.
Mersaal greindi einnig frá þvi að
fulltrúar Hamas myndu sækja leið-
togafund Arabaríkja í næsta mán-
uði til að fara fram á stuðning við
hina nýju forystu Palestínumanna.
Forsætisráðherra fundinn
Mushir al-Masri, talsmaður Hamas-
samtakanna, greindi frá því í gær
að samtökin hefðu valið einn úr
sínum röðum til að verða næsti for-
Khaled Mershaal, leiðtogi Hamas-samtakanna, ræðir við fjölmiðla á flugvellinum í
Khartoum, höfuðborg Súdans. Mershaal segir að Hamas-samtökin séu tilbúin til að láta
af vopnaðri baráttu sinni gegn ísrael ef (sraelsmenn láta af hendi herteknu svæðin.
sætisráðherra Palestínu. Hann vildi
þó ekki gefa upp hver hefði orðið
fyrir valinu.
Heimildarmenn Reuters-frétta-
stofunnar innan Hamas-samtak-
anna, telja að Ismail Haniyeh, efsti
maður á framboðslista samtakanna,
sé líklegastur til að taka að sér
embættið.
Hamas-samtökin unnu óvænt
sigur í þingkosningum í Palestínu
í janúar og er ráðgert að þau hefji
formlegar stjórnarmyndunarvið-
ræður í næstu viku. Samtökin von-
ast til að mynda stjórn með öðrum
flokkum sem geti tryggt einingu
þjóðarinnar.
..kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
LANDVELAR ehf.