blaðið - 14.02.2006, Síða 12
blaðið________________________________________
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
SKYRT UMBOÐ EN
TIL HVERS?
Dagur B. Eggertsson hefur hlotið skýrt umboð til að fara fyrir lista
Samfylkingar og óháðra í borgarstjórnarkosningunum i vor. Það
er mikið og krefjandi verkefni fyrir ungan stjórnmálamann.
Árangur Dags, sem taldist óháður þar til fyrir skömmu að hann gekk
til liðs við Samfylkinguna, og Oddnýjar Sturludóttur, sem hafnaði í 5.
sæti, má auðveldlega túlka sem kröfu um endurnýjun og breytingar. Ekki
fer á milli mála að Dagur B. Eggertsson er hæfileikamaður. Hann sýnist
fær um að sameina vinstri menn í höfuðborginni líkt og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir forðum og fram er kominn leiðtogi, sem pólitískir and-
stæðingar hljóta að taka mjög alvarlega. Á hinn bóginn er oft erfitt að
átta sig á stefnumálum hans og afstöðu. I kosningabaráttunni varð Degi
tíðrætt um „breytingar" í Reykjavík en lítið fór fyrir efnislegri útfærslu
og áætlun um framkvæmdir. Þessi nálgun, sem er í eðli sínu „pópúlísk“
og lítt upplýsandi fyrir kjósendur, er raunar einkennandi fyrir stjórnmál
samtimans. Reykvíkingar hljóta því að bíða þess að Dagur geri grein fyrir
tillögum sínum og hvernig hann hyggst framkvæma þær, hljóti hann til
þess umboð kjósenda.
Dagur B. Eggertsson er maður „greiningarferla“, „samráðs" og „umræðu-
stjórnmála“ nema þegar annað þykir eiga við, t.a.m. að fá stofnunum
lóðir við dýrmæt útivistarsvæði Reykvíkinga líkt og gerðist þegar Háskól-
anum í Reykjavík var úthlutað byggingarsvæði við Öskjuhlíð. Hann getur
á hinn bóginn játað mistök og gerði það þegar í ljós kom þvílíkt klúður
hina nýja Hringbraut er. Útfærsla þeirrar framkvæmdar er að sönnu með
öllu óskiljanleg en það er þroska- og styrkleikamerki að geta játað mistök
sín.
Stefán Jón Hafstein hafnaði í þriðja sæti. Sú niðurstaða kemur nokkuð á
óvart þar sem hann er sá forustumaður Samfylkingarinnar í Reykjavík
sem mestan pólitískan skriðþunga hefur. Steinunn V. Óskarsdóttir borg-
arstjóri getur trúlega verið sátt við annað sætið. Hún vann vel úr þröngri
stöðu, sem mótaðist m.a. af því að hana skorti skýrt umboð í embætti
borgarstjóra.
Árangur Bjarkar Vilhelmsdóttur er einnig athyglisverður. Hún fór nú
fram sem óháður fulltrúi en nýtur greinilega persónufylgis enda fer þar
skörulegur sósíalisti. Björk gæti því unnið fylgi af vinstri-grænum.
Þátttaka í prófkjörinu hlýtur að teljast mjög góð þótt það hafi að sönnu
verið galopið. Listi Samfylkingarinnar í borginni sýnist öflugur og nú er
það undir leiðtoganum nýja komið að móta áherslur og framtiðarsýn á
máli, sem er venjulegu fólki sæmilega skiljanlegt.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
FRJÁLST
blaöiö
12 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 blaöiö
.ÓKEV OGi líuwv 'REGLlMl/flR,
HiGÍí> BÐ HVo^N
^ ALvEG GraVEiKT
oq SÁ SEM ViNHuR
\\ Tft-R nv VFLJA MG
vjL ( sm ponGmSTjóvA.
Oleysanlegt reiknings
dæmi hins ófyrirséða
Ég skrifaði einu sinni sögu um stúlku
sem fær sent póstkort úr mjög náinni
framtíð (Sú sem er ekki hér; Tvisvar
á ævinni - 2004). Póstkortið virðist
vera ástarbréf frá giftum, miðaldra
karlmanni. Stúlkan er aðeins 18 ára
og erfitt að spá henni því að eignast
miðaldra elskhuga innan tíðar. Á
hinn bóginn er hún þunglynd, ein-
angruð og sinnulaus. Þar að auki
er einn viðskiptavinur í sjoppunni
þar sem hún vinnur farinn að gefa
henni auga. Á einum stað í sögunni
segir svo um eðli framtíðarinnar: “...
alltaf ófyrirsjáanleg en samt svo rök-
rétt þegar hún var orðin að nútið og
manni fannst að allir hlytu að hafa
séð hana fyrir.”
Ófyrirsjáanlelki
Sífellt gerast gjörsamlega ófyrirsjá-
anlegir atburðir sem þó virðast full-
komlega rökréttir þegar þeir eru út-
skýrðir eftir á. Sífellt sannast að það
er erfitt að spá um framtíðina en
auðvelt að vera vitur eftir á. Glöggt
dæmi um þetta er skopmyndamálið
danska. Hver hefði getað trúað því
fyrir stuttu að skopmyndir í Jótal-
andspóstinum gætu valdið jafnmik-
illi ólgu og leitt af sér annað eins
fár? Næstum allir stórviðburðir
síðustu ára hafa verið ófyrirsjáan-
legir. Mér vitanlega sá enginn fyrir
hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin
þann 11. september 2001. Ég minnist
þess ekki að nokkur hafi spáð fyrir
um hrun kommúnismans á þeim
timapunkti sem það átti sér það.
Hvorttveggja eru samt afar rökréttir
atburðir, skoðaðir eftir á.
Völvuspádómar þykja mér litilfjör-
legir, gjörsneyddir skynbragði á hið
ófyrirsjáanlega en spá ýmsu líklegu:
KR eða FH verður íslandsmeistari,
fylgi Samfylkingarinnar minnkar,
Davíð hættir, einhverjar náttúru-
hamfarir verða á árinu, og svo fram-
n
vegis. Ég man ekki til þess að völva
hafi séð fyrir einhverja af þeim
ófyrirsjáanlegu atburðum sem við
höfum upplifað undanfarin ár.
En ef stúlkan í sögunni minni
hefur rétt fyrir sér, um að framtíðin
sé ófyrirsjáanleg en rökrétt eftir á,
þá vaknar sú spurning hvers vegna
við getum ekki séð hana út. Margir
hinna ófyrirsjáanlegu atburða eru
svo fullkomlega rökréttir að þeir
vekja þann grun að framtíðin sé
rökrétt afleiðing nútíðarinnar. En
annaðhvort eru möguleikarnir í sér-
hverri stöðu of margir til að hægt sé
að einu sinni ímynda sér þann rétta
eða þá að það vantar alltaf of mikið
af forsendum, of mikið er óvitað.
Framtíðin virðist semsagt vera
óleysanlegt reikningsdæmi. Nýlega
skoraði forsætisráðherrann okkar
ófyrirsjáanleikann á hólm með
því að spá því að ísland gengi inn í
Evrópusambandið fyrir árið 2015. I
augnablikinu virðumst við ekkert
hafa þangað að sækja. En þegar við
verðum gengin þangað inn árið 2105
mun sú niðurstaða virðast rakin þó
að manni þyki hún út í hött núna, sé
hann á annað borð svona spámann-
lega vaxinn.
Hérerég
Þessir pistlar mínir hér eru lítið og
einfalt dæmi um ófyrirsjáanleikann.
Fyrir tæpu ári skrifaði ég ritstjórnar-
fulltrúa Fréttablaðsins og falaðist
eftir Bakþankaskrifum fyrir blaðið.
Brugðist var vingjarnlega við beiðn-
inni en mér tjáð að nýbúið væri að
ráða í laus pláss pistlahöfunda en
hafa mætti mig í huga síðar. Síðast-
liðið haust var ég síðan farinn að
skrifa í Blaðið, að beiðni þess, fjöl-
miðils sem ég hafði ekki hugmynd
um að sæi nokkurn tíma dagsins
ljós þegar ég sótti um hjá Fréttablað-
inu. Ekkert virðist eðlilegra en ég
eigi orðastað við ykkur hér í dag en
fyrir ári síðan gat enginn séð það
fyrir.
Verði ykkur að góðu.
Höfundur er rithöfundur.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbUs
forsíðu DV í gær er Hannes Smára-
son, hinn kappsami forstjóri FL
Group, tekinn
til bæna fyrir að hafa
lagt jeppa sínum í
stæði fatlaðra við Nord-
ica Hotel síðastliðinn
föstudag, þegar hann
hafi komið til blaða-
mannafundar þar sem
kynnt voru áform um að skrá lcelandair á
hlutabréfamarkað. Þessi rassskelling DV hefur
fengið menn til þess að velta því fyrirsér hvert
blaðið sé eiginlega að fara. Hingað til hefur
hnífurinn ekki komist á milli þeirra Hannesar
og Jóns Asgeirs Jóhannessonar, eiganda
DV, enda margvísleg eignavensl þeirra á milli,
en ntí spyrja menn hvort slettst hafi upp á
vinskapinn. Ntí eða hvort hinir nýju ritstjórar
DV séu að sýna fram á sjálfstæði sitt gagnvart
eigendunum.
n svo vekur fréttin af jeppa Hannesar
sjálfstæðar spurningar um vinnu-
brögðin. Fundur-
innvarnefnilega haldinn
áaðalskrifstofulcelandair
við Reykjavíkurflugvöll,
en ekki Nordica eins og
glögglega má sjá á mynd,
sem fréttinni fylgdi.
Ritstjórarnir nýju, þeir
Björgvin Guðmunds-
son og Páll Baldvin Baldvinsson, geta þá
hugsanlega varið sig gagnvart eigendunum
með því að fréttin hafi verið skrifuð af óvönum
utanbæjarmanni.
tí styttist í hið árlega pressuball
Blaðamannafélags íslands, en þar
verða jafnmframt
veitt blaðamannaverðlaun
fyrir sérstaklega vandaða eða
athyglisverða umfjöllun á
liðnu ári. Á meðal þeirra, sem
þar eru komin ( úrslit, er Sig-
ríður Dögg Auðunsdóttir, blaðamaður á
Fréttablaðinu, en hún ertilnefnd til verðlauna
fyrir rannsóknarblaðamennsku, nánar tiltekið
fyrir „títtekt á einkavæðingu rfkisbankanna
og umtöluð fréttaskrif um aðkomu áhrifa-
manna f aðdraganda málaferla gegn forsvars-
mönnum Baugs." Á sfnum tíma héldu ýmsir
þvf fram að f umfjöllun um bankana styddist
Sigríður að mestu við endursögn tír gamalli
skýrslu Rfkisendurskoðanda en niðurstaða
tilnefningarnefndarinnar er greinilega önnur.