blaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 1
Barnahúsgögn sem stækka Barnahúsgögnin okkar bjóða upp á ótal samsetningarmöguleika og sveigjanleika sem gerir þér kleift að nota eitt og sama rúmið allt frá því barnið hættir í grindarrúminu og fram á unglingsár. -HÖSCflCN-fl 4J-EIÍÍ1ILI0 Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 - www.husgogn.is 14 Börn segja rangt frá séu þau spurð leið- andi spurninga 16.................. Umhverfið stuðlar að offitu 17 Flokka sorp og flagga grænum fána 18 ............ Börn hafaáhrifá neyslu heimila 20.............. Þvottaklemma verð- ur geimflaug Kjöríoreldrar vilja aiður greiðslu til œttleiðingar „Við kjörforeldrar viljum fá styrk frá ríkinu til að koma til móts við þann mikla kostað sem felst í því að ættleiða barn frá fíarlægu landi“, segir Gíslína V. Olafsdóttir kjörforeldri. „Flestir sem ættleiða barn hafa byrjað á því að fara í glasafrjóvgun sem er líka kostaðarsamt ferli“, segir Gíslína og bætir við að margir hafi reynt áraum saman að eignast barn án árangurs. Gíslína segir það réttlætismál að ríkið styrki barneignir fólks sem á við ófrjósemi að stríða til jafns við þá sem eignast börn með eðlilegum leiðum. „Það kostar rúma milljón að ættleiða barn frá Kína og inn í því eru ferðir og annað sem tilheyrir. Við hjónin ættleiddum barn fyrir tveimur árum og erum á leið út aftur í sumar að ná í annað barn. í fyrra skiptið gátum við unnið mikið fyrir ferðina en nú er það erfiðara þar sem við eigum dóttur fyrir. “ Gíslína þekkir dæmi þess að fólk fresti ættleiðingarferlinu vegna fjárskorts. Það þarf að hafa góðar tekjur til að leggja út í þetta og ekki gefið að fólk eigi þann pening í handraðanum. Gíslína segir ekki algengt að barnlaust fólk leiti inn í íslenska kerfið til að fá börn enda eru börn þar yfirleitt send í tímabundið fóstur en lítið um ættleiðingar. Guðrún Ögmundsdóttir alþingis- maður reynir nú að koma þingsályktunartillögu á dagskrá til að fá ættleiðingu niðurgreidda en ekki hefur verið ákveðið hversu hátt hlutfall ríkið myndi greiða. „Meðaaldur þeirra sem ættleiða barn er á bilinu 35-40 ára. Ferlið tekur eitt og hálft ár en reikna má með að um 35 ættleiðingar séu gerðar á ári. Fólk sem á við ófrjósemi að stríða fær niðurgreidda glasafrjóvgunaraðgerðir en þegar kemur að því að ættleiða börn erlendis frá er ekkert endurgreitt og þetta finnst okkur ekki rétt." Gíslína er að vonum ánægð með dóttur sína og segir mikla lífshamingu fólgna í því að ættleiða barn. hugrun@bladid.net Þráðlaust Internet Laugavegi 27

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.